Harmonikublaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 7
Nýkjörin stjórn SÍHU. ífremri röðjv. Sigurður Ólafison, Pétur Bjarnason, Haraldur Konráðsson varaformaður, Melkorka
Benediktsdóttir gjaldkeri. Afiar röð fv. Sólveig ínga Friðriksdóttir, Filippía Sigurjónsdóttir formaður, Sigrún B.
Halldórsdóttir ritari
dansspilurum landsins. Að sjálfsögðu var
öllum skilað heim á hótel í langferðabifreið á
vegum FHUE og lauk þar með ánægjulegum
fundardegi. Oll framkvæmd aðalfundarins
var eins og best verður á kosið af hendi
Eyfirðinga undir stjórn Filippíu og það sem
fylgdi með ekki síðra. Að loknum morgunverði
á sunnudag hófust kveðjur og óskir um góðar
heimferðir. Aðalfundi SÍHU 2018 var lokið.
FH
Fréttir frá
Hornafirði
Frekar er nú tíðindalítið að frétta frá
Félagi harmonikuunnenda á
Hornafirði. Þó höfum við ákveðið að
koma saman eftir áramót og dansa
einu sinni í mánuði og rifja upp
gömlu dansa sporin og langar okkur
að fá unga fólkið með okkur í þetta.
Eins og sést í auglýsingu í blaðinu
stefnum við að því að hafa
hagyrðingarkvöld og dansleik að
Smyrlabjörgum 13. apríl 2019.
Félag harmonikuunnenda á
Hornafirði óskar öllum gleðilegra
jóla.
Með ktttrri kveðju,
stjórnin
Áætlun dansleikja
veturinn 2019
Laugardaginn 5. janúar í Lóni
Laugardaginn 9. febrúar í Lóni
Laugardaginn 9. mars í Lóni
Laugardaginn 6. apríl í Lóni
Laugardaginn 4. maí í Lóni Harmonikudagurinn
7