Harmonikublaðið - 01.12.2018, Side 14
Vetrarstarf Félags harmonikuunnenda
við Eyjafjörð
Breytingar á stjórn félagsins
Aðalfundur F.H.U.E. var haldinn 14. október
síðastliðinn þar sem fram fóru venjuleg
aðalfundarstörf ásamt kosningu til nýrrar
stjórnar. Nýja stjórn F.H.U.E. skipa: Agnes
Harpa Jósavinsdóttir formaður, Jóhann G
Möller varaformaður, Jóhannes Jónsson
gjaldkeri, Bryngeir Kristinsson ritari, Einar
Guðmundsson meðstjórnandi, Elsa Auður
Sigfúsdóttir varamaður, Pálmi Björnsson
varamaður, Stella Dröfn Guðjónsdóttir
varamaður, Filippía J Sigurjónsdóttir
skoðunarmaður reikninga, Hörður Kristinsson
skoðunarmaður reikninga. Filippía J
Sigurjónsdóttir lét af störfum sem formaður
félagsins eftir níu ára setu. Eru henni færðar
bestu þakkir frá félaginu fýrir ötult starf í þágu
félagins og árnaðaróskir í nýju embætti.
Haustfundur S.Í.H.U. og dansleikir
Það kom í okkar hlut í ár að sjá um haustfund
S.I.H.U. og var hann haldinn í Kjarnalundi
á Akureyri þann 6. október. A meðan félagar
þinguðu á góðum fundi fengu makar þeirra
skoðunarferð um Eyjafjörð og Akureyri. Um
kvöldið var svo haldinn dansleikur í Lóni þar
sem þátttakendur af haustfundinum tóku
virkan þátt í undirleik fyrir dansþyrsta gesti
sem fjölmenntu á staðinn. Næsti
dansleikur félagsins var haldinn
fyrsta vetrardag í Hofi,
menningarhúsi þar sem aðsókn
var dræmari en vonir stóðu til.
Síðasti dansleikur fyrir jól var
síðan 24. nóvember í Lóni þar
sem mæting var stórgóð og
stemmingin eftir því.
.. •«rt*
Starfið framundan
Stórsveit F.H.U.E. hefur hafið
æfingar og fýlla harmonikuleikarar
tuginn að þessu sinni auk þriggja
manna hrynsveitar. Sveitin æfir
einu sinni í viku undir stjórn Roar
Kvam og stefnir á tónleika á
vormánuðum.
Farið var af stað með dansæfingar
fýrir félagsmenn, þær mæltust vel
fýrir síðasta vetur og var fýrsta
æfing 16. nóvember sl. Ekki mættu mörg pör
til að dansa en undirleikarar fengu góða æfingu
þetta kvöldið. Stefnt er að því að halda
dansæfingar reglulega í vetur við lifandi
undirleik, vonandi verður þátttaka góð og að
þessi kvöld skapi skemmtilega stemmingu fýrir
félagsmenn.
Þegar þetta er ritað hefur opið hús á aðventu
ekki enn farið fram en það mun verða 2.
Allir í polka
Agnes Harpa Jósavinsdóttir nýkjörin formaður FHUE.
Langt er síðan svo ungur formaður hefur verið í forsvari
fyrir harmonikufélag.
desember þar sem boðið verður upp á kakó
og piparkökur sem munu renna ljúflega niður
með harmonikutónunum sem munu svífa yfir
salinn.
Eftir áramót mun félagið halda dansleiki einu
sinni í mánuði fram að harmonikudeginum
ásamt áframhaldandi dansæfingum og opnum
húsum fýrir félagsmenn, harmonikudagurinn
verður haldinn hátíðlegur eins og endra nær
ásamt vortónleikum stórsveitarinnar og er von
til þess að allir þessir viðburðir verði vel sóttir
af félagsmönnum sem og öðrum gestum.
Agnes Harpa Jósavinsdóttir
Ljósmyndir: Siggi Harðar
Skottís í Lóni
Þá skal dansa vals og vals og valsa inn á milli, eins og sagði í vísunni
14