Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 4
4 48/2019
Kjörið hefst á föstudaginn
Norðurland vestra : Tilnefningar til Manns ársins 2019
Eins og undanfarin ár stendur Feykir
fyrir kjöri á manni ársins. Gefst
íbúum á svæðinu og öðrum lesend-
um Feykis kostur á að velja úr hópi
þeirra sem tilnefndir voru af lesend-
um. Í þetta skiptið bárust sex tilnefn-
ingar sem teknar voru til greina.
Hægt verður að greiða atkvæði á
vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í
pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550
Sauðárkróki. Kosningin hefst kl. 13 á
föstudaginn, 20. desember og lýkur kl.
12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar.
Tilnefndir eru, í stafrófsröð:
Álfhildur Leifsdóttir
SAUÐÁRKRÓKI
Álfhildur hefur á árinu hlotið fjölda
viðurkenninga, meðal annars frá
Apple, er einstaklega
framtakssöm í
fræðslu fyrir kennara
um tækni í skólastarfi
og hefur haldið fjölda
námskeiða og fyrir-
lestra bæði innan-
lands og utan. Í sveitarstjórn
Skagafjarðar gerir hún góða hluti með
því að velta ýmsum hlutum upp, sem
hafa ekki komið á yfirborðið. Þá gerir
hún góða hluti í stjórn SSNV sem og
annars staðar þar sem hún kemur að
málum.
Ársæll Daníelsson
HVAMMSTANGA
Þar sem stutt er síðan mesta óveður í
háa herrans tíð reið
yfir Norðurland
vestra er tilvalið að
tilnefna Ársæl Daní-
elsson, rafvirkja á
Hvammstanga, en
hann lagði sig í hættu
UMSJÓN
Páll Friðriksson
við að reyna að koma samborgurum
sínum í tengsl við umheiminn með níu
tíma ferð í brjáluðu veðri sem tekur
einungis hálftíma á venjulegum degi.
Ferðaðist hann í snjóbíl sem a.m.k. valt
einu sinni á leiðinni en hann leitaði
skjóls til að ná sér í hita og hélt svo
áfram. Alvöru maður!
Hólmfríður Sigrún
Óskarsdóttir
BLÖNDUÓSI
Hólmfríður Sigrún Óskarsdóttir má
ekkert aumt sjá, annast föður sinn sem
á við veikindi að
stríða. Hún sinnir
þremur launuðum
störfum auk heim-
ilisstarfa en einhvern
veginn virðist hún
finna fleiri klukku-
tíma í sólarhringnum en aðrir. Vel að
titli um Mann ársins komin með sínum
mikla dugnaði og eljusemi í annarra
þágu.
Sigurður Hansen
KRINGLUMÝRI Í SKAGAFIRÐI
Sigurður Hansen í Kringlumýri er vel
að því kominn að vera valinn maður
ársins á Norðurlandi
vestra. Uppbygg-
ingin á Kakalaskála
er stórmerkilegt
þrekvirki og ekki
síður eitt merkasta
og mesta útilistar-
verk landsins, til minningar um
Haugsnesbardaga. Í sumar opnaði
hann sýningu fjórtán alþjóðlegra
listamanna sem sköpuðu margbrotin
verk um hina stórkostlegu sögu
Sturlunga, í Kakalaskála, sem ber heitið
Á söguslóð Þórðar kakala. Svo í dauða
tímanum gaf hann út á haustdögum
ljóðabókina Glóðir.
Valdimar Guðmannsson
BLÖNDUÓSI
Valdimar hefur verið ötull við að
markaðssetja og kynna lambakjöt með
alls kyns uppákom-
um og skrifum og án
efa gert mikið gagn í
markaðssetningu á
þessari mikilvægu
landbúnaðarvöru frá
Norðurlandi vestra.
Þá hefur hann einnig verið öflugur við
að styðja við ýmis önnur samfélags-
verkefni eins og t.d. lagfæringar á
umhverfi kirkjugarðsins á Blönduósi
o.fl. Það er vegna baráttumanna eins og
Valdimars að lífið í litlum þorpum úti á
landi, sem eiga í vök að verjast vegna
fólksflótta, hefur haldið velli og jafnvel
tekist að snúa vörn í sókn.
Þröstur Heiðar Erlingsson
BIRKIHLÍÐ Í SKAGAFIRÐI
Þrastar verður lengi minnst fyrir
framlag sitt og baráttu við valdakerfið,
ásamt Sveini Mar-
geirssyni fv. forstjóra
Matvís, þar sem
reynt er að bæta
lagaumhverfi fyrir
bændur sem vilja
auka framleiðni búa
sinna og bæta gæði lambakjöts. Mark-
miðið er að koma á löglegri starfsemi
svokallaðra örsláturhúsa í landinu
bændum og neytendum til heilla.
- - - - -
Tökum þátt í skemmtilegri kosningu
og kjósum mann ársins á
Norðurlandi vestra!
Kosningin fer fram
líkt og vanalega
á vefnum góða
– Feykir.is
Maður ársins á Norðurlandi vestra árið 2018 var
Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka í Hrútafirði.
Tilnefninguna fékk Ólöf fyrir jákvæðni sína
og baráttu við Parkinsons sjúkdóminn sem hún
greindist með fyrir fjórum árum. Meðal þess
sem Ólöf hefur tekið sér fyrir hendur eftir að
hún greindist er að sauma bútasaumsteppi og
selja. Hefur hún gefið andvirði þeirra til
góðgerðamála í Húnaþingi vestra og nú á
dögunum færði hún Velferðarsjóði Húnaþings
vestra og Styrktarsjóði Austur-Húnvetninga
myndarlegar peningagjafir. /FE
Ólöf Ólafsdóttir
Tannstaðabakka
Maður ársins 2018
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum í myndagátunni sem birtist
í jólablaði Feykis. Líkt og fyrri ár var
fín þátttaka meðal lesenda sem voru
ekki í vandræðum með lausnina að
þessu sinni.
Lausnin er eftirfarandi: Vatnsnes-
vegur er kominn á samgönguáætlun
ríkisstjórnainnar sem betur fer, annars
hefðu holurnar endað á náttúruminja-
skrá.
Þrír bókavinningar eru í verðlaun og
vinningshafar eftirfarandi:
María Gréta Ólafsdóttir Sauðárkróki ::
„Það eru ekki svellin“ – sögur og sagnir
af Borgfirðingum eystri.
Erla Unnur Sigurðardóttir Sauðárkróki ::
105 „sannar“ þingeyskar lygasögur.
Kristmundur Valberg Blönduósi ::
„Hann hefur engu gleymt … nema
textunum!“ Gamansögur úr íslenska
tónlistarheim-inum.
Feykir þakkar þátttakendum fyrir inn-
sendar lausnir og vinningshöfum til
hamingju. /PF
Verðlaunahafar jólamyndagátu
Þrjú heppin
fá bókavinninga
Á Kirkjuþingi 2019 var fjallað um
breytingar sem framundan eru á
skipulagi þjóðkirkjunnar og snúa þær
að sameiningu prestakalla eða flutningi
þeirra milli prófastsdæma. Meðal
þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru
er að Breiðabólstaðar-, Melstaðar-,
Skagastrandar- og Þingeyraklausturs-
prestakall í Húnavatns- og Skaga-
fjarðarprófastsdæmi sameinist í
Húnavatnsprestakall.
Pétur Georg
Markan, samskipta-
stjóri Biskupsstofu
sagði í viðtali við
Morgunblaðið í
vikunni að prests-
embættum muni
ekki fækka heldur
verði fleiri prestar í
hverju hinna sameinuðu prestakalla. Af því
leiði öflugri sóknir, betri þjónustu og meiri
samvinnu starfsfólks. Segir hann að haft
verði samráð við sóknarnefndir um sam-
einingu prestakalla en kirkjuþing, sem er
æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar,
taki svo endanlega ákvörðun um skipu-
lagsbreytingarnar.
Önnur umræða um sameiningartil-
lögurnar mun fara fram á framhaldsþingi
Kirkjuþings í mars 2020. /FE
Kirkjan í A-Hún
Tillögur um
sameiningu
prestakalla