Feykir


Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 3

Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 3
48/2019 3 Atburðir síðustu viku eru Norðlendingum líklega efst í huga þessa dagana. Dagar sem einkenndust af rafmagnsleysi, óveðri og líklega óvissu í hugum margra sem áttu ástvini úti í veðrinu við að leitast við að bjarga því sem aflaga fór í veðurofsanum. Mikið hefur verið rætt og ritað um óásættanlegt ástand innviða samfélagsins sem engan veginn stóðust álagið sem skapaðist. Væntanlega eru allir sammála um að hér þurfi að bretta upp ermar og ráðast í gagngerar úrbætur. Sum-ir eru duglegri en aðrir að benda á sökudólga og gagnrýna hina og þessa sem hefðu átt að gera betur. Þeir sem harðast hafa deilt á Vegagerðina fyrir lokanir vega í óvissu veðurfari hafa hins vegar látið lítið fyrir sér fara enda sannaði það sig að slíkar aðgerðir komu í veg fyrir mikinn vanda. Ekki dettur mér í hug að blanda mér í ádeiluna enda tel ég mig varla hafa forsendur né vit til að dæma. Hins vegar sýnist mér að okkur sé flestum hollt að líta í eigin barm og athuga hvað gera megi betur í eigin ranni. Þrátt fyrir að rafmagnsleysið hafi varað óvenju lengi að þessu sinni, og sé raunar ekki séð fyrir endann á því alls staðar, vitum við öll ósköp vel að þetta er eitthvað sem hefur gerst áður og gerist örugglega enn reglulega á sumum stöðum á landinu. Það sem hefur breyst er að almenningur er verr undir það búinn að takast á við verkefnið. Við erum orðin svo háð því að hafa stöðugan aðgang að rafmagni og öllum þeim tækjum og tólum sem því eru tengd og svo sannarlega höfum við, bæði einstaklingar og stofnanir, sofnað á verðinum. Hvað skyldu margir þeir sem sátu í rafmagnslausum húsum sínum hafa mænt á símaskjáinn og hugsað með hryllingi til þess að brátt yrði rafhlaðan tóm, versta martröð margra, og hvað væri þá til ráða. Jú, það var kannski hægt að fara út í bíl í óveðrinu og hlaða tækið en fáa hefur líklega langað út í veðrið. Hvað ætli margir eigi ennþá hina „úreltu“ heimilissíma sem ekki ganga fyrir rafmagni. Hversu margir eru svo fyrir- hyggjusamir að eiga rafhlöður í útvarp, ef slík tæki eru þá til á heimilinu, eða prímus til að nota í neyðartilfellum. Sumir eiga kannski ekki einu sinni kerti og eldfæri eða vasaljós með nýlegum batteríum. Ég er svo sannarlega ein þeirra sem þarf að skoða mín mál. Ekki það, það væsti ekkert um mig í rafmagnsleysinu og hefði alveg þolað við lengur enda kona á besta aldri og hafði engan nema sjálfa mig að hugsa um. En nú eru að koma jól og þá munu jólaljósin vonandi lýsa í sérhverjum ranni. Þau eru kærkomin að vanda, að minnsta kosti hjá flestum þó vissulega séu þeir margir sem eiga erfiðar stundir á hátíðum sem þessum. Við Feykisfólk sendum lesendum okkar bestu jólakveðjur og ósk um góðar stundir um leið og við þökkum fyrir samfylgdina á árinu. Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður LEIÐARI Eftir myrkrið kemur jólaljós Rauð viðvörun í fyrsta sinn Óveður á Norðurlandi Í aðdraganda fárviðrisins sem yfir landið reið í síðustu viku gaf Veðurstofa Íslands í fyrsta skiptið út rauða viðvörun. Svo virðist sem almenningur hafi tekið viðvörunina alvarlega því ekki þurfti að eyða dýrmætum tíma og orku í að eltast við hluti sem trassað hafði verið að binda niður eða komið í skjól. Mikil selta var í blotanum sem fór illa með spennivirki og rafmagnsstaura sem brotnuðu undan ægiþunga ísaðra raflína í kolbrjáluðu veðri. Í gær var enn rafmagnslaust á nokkrum bæjum í nágrenni Hvamms- tanga og Laugarbakka og samkvæmt stöðuuppfærslu RARIK um miðjan dag mátti búast við einhverju rafmagns- leysi fram eftir kvöldi, sem og í Miðfirði. Þá er liðin vika síðan aftaka- Veðurstofa Íslands stóð vaktina með mikilli prýði og skellti rauðri viðvörun á NV. Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Engan þarf að undra að fáir hafi sótt sjóinn í vikunni sem leið þar sem tíðarfarið lék ekki beinlínis við landann. Tæpum 19 tonnum var landað á Skagaströnd og tæpum 300 tonnum á Sauðárkróki. Heildarafli vikunnar á Norður- landi vestra þessa viku var 307.364 kíló. /FE Aflatölur á Norðurlandi vestra 8. – 14. desember 2019 Fáir sóttu sjóinn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKAGASTRÖND Kristinn HU 812 Landbeitt lína 17.603 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.210 Alls á Skagaströnd 18.813 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 168.539 Málmey SK 1 Botnvarpa 120.012 Alls á Sauðárkróki 288.551 Aukasýning á föstudag Skógarlífi vel tekið Leikflokkur Húnaþings vestra heimsfrumflutti sl. laugardag Skógarlíf, leikgerð og leikstjórn Gretu Clough byggða á The Jungle Book eftir Rudyard Kipling við mikinn fögnuð. Vegna góðra viðtaka hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu næsta föstudag, 20. desember. Skógarlíf, í uppsetningu Leikflokks Húnaþings vestra, fékk mjög góðar viðtökur á þeim tveimur sýningum sem haldnar hafa verið fyrir nánast fullu húsi. Á sýningunni fá, á meðal fullorðna, börn og ung- menni á aldrinum 5 – 18 ára að láta ljós sitt skína á sviðinu. Í heild skapar hópurinn fallega og raunsæja sýningu með flott- um brúðum, tónlist, leikmynd og lýsingu. Leikstjórinn, Greta Clough, sem m.a. hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna innan sviðlistar, kemur ekki aðeins inn í verkið sem leikstjóri held- ur einnig sem höfundur leik- gerðar, brúðuhönnuður, leik- myndahönnuður og hefur umsjón með búningum. Ákveðið hefur verið að bæta við aukasýningu næsta föstu- dag, 20. desember kl. 19:00. Miðasala er á heimasíðu leik- flokksins: www.leikflokkurinn. is/midi/ eða í síma 655-9052. /PF veðrið reið yfir og rafmagn fór að detta út á hverju svæðinu á fætur öðru. Á mánudagskvöld og aðfaranótt þriðjudags voru truflanir á kerfi RARIK út frá Hrútatungu og Laxárvatni. Fjórar truflanir höfðu fundist í gær og jafnvel var búist við að fleiri gætu fundist. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing- ur, segir sennilegt að um versta veður sé að ræða síðan 1973 en þá gerði mikið illviðri af svip- aðri gerð í miðju Heimaeyjar- gosinu. Önnur óveður sem koma til álita frá árinu 1949 geisuðu 12. febrúar 1965 og 10. des 1950. /PF Frá uppsetningu Skógarlífs á Hvammstanga. MYND: AUÐUR ÞÓRHALLSDÓTTIR Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti samhljóða á fundi sínum fimmtudaginn 12. desember, að styrkja Björgunarsveitina Húna um eina milljón króna fyrir óeigingjarnt starf, oft við erfiðar aðstæður, í þágu samfélagsins. Á Facebooksíðu Húna- þings vestra segir: „Sveitar- stjórn færir öllum starfs- mönnum sveitarfélagsins, annarra stofnana og öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem leggja á sig gríðarlega vinnu í þágu samfélagsins við fádæma erfiðar aðstæður bestu þakkir. Þetta fólk leggur nótt við dag til að lágmarka þann skaða sem orðið hefur og koma sveitarfélaginu okkar á rétt ról.“ /FE Húnaþing vestra Styrkir Húnana um eina milljón

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.