Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 11
48/2019 11
matar- og handverksmörkuð-
um. Borgin býður upp á fjöl-
margt til skoðunar og margir
lögðu leið sína í kastalann á
meðan aðrir fóru í dagsferðir
upp í Hálöndin eða í neðan-
jarðarborgina. Flestir hverjir litu
svo eðlilega eitthvað í búðir og
sumir endurnýjuðu jafnvel
fermingarfötin.
Samskot
kirkjugesta
Sunnudagsmorguninn marser-
aði svo hópurinn til guðs-
þjónustu í St. Cuthberts
kirkjunni sem stendur við enda
dalsins niður undan kastalanum
en umsamið var að við syngjum
þar tvo sálma. Höfðu sr. Gísli og
Stefán farið í könnunarferð
daginn áður og orðið sér úti um
ákaflega vandaða messuskrá
dagsins en þar stóð reyndar að
stjórnandi væri Gísli Gunnars-
son og skapaði það nokkra
spennu í hópnum um hvort nú
væru einhver áhættuatriði í
uppsiglingu. Organisti kirkj-
unnar tók á móti okkur, glað-
legur ungur maður, Graham að
nafni, sem tjáði okkur að hann
hefði m.a. spilað á tónleikum í
Hallgrímskirkju sl. sumar.
Skömmu áður en guðsþjón-
ustan hófst tiplaði inn lágvaxinn
og hokinn prestur í eldrauðri
hempu, bauð okkur velkomin
og fór yfir komandi atburðarás.
Hér var kominn sr. Charles,
leiftrandi húmoristi sem
predikaði síðar með miklum
tilþrifum, handasveiflum og
tilbrigðum ásamt því að velta sér
ýmist á hæl eða tá í stólnum.
Kórinn söng svo við undirleik
organistans en Stefán stjórnaði
að venju. Eftir predikun dró svo
til tíðinda svona miðað við það
sem tíðkast á heimaslóðum,
þegar formaður sóknarnefndar
gekk fyrir altarið og hvatti
kirkjugesti til að mótmæla með
bréfaskrifum til borgaryfir-
valda fyrirhuguðum bílastæða-
gjöldum við kirkjuna á sunnu-
dögum sem hann taldi að gætu
haft mikil áhrif á messusókn og
helgihald almennt. Síðan var
haldið áfram eins og ekkert
hefði í skorist og tóku þá við
samskot kirkjugesta. Þarna
tíðkast að söfnuðurinn standi
undir söng og þar sem töluvert
var sungið bæði af okkur og kór
kirkjunnar þá var sífellt verið að
standa upp og setjast. Því hafði
einn ferðafélaga okkar á orði
eftir athöfnina að það væri ekki
nóg að reka mann á fætur trekk
ofan í æ heldur rukkuðu þeir
fyrir það líka... Sóknarnefndin
bauð svo kaffi og te að
þarlendum hætti í kirkjuand-
dyrinu þar sem við blönduðum
geði við kirkjugesti og þáðum
lofsamleg ummæli um sönginn.
Um kvöldið var sameiginleg
máltíð á hótelinu og eins
gestrisnir og Skotar eru þá vakti
nokkra athygli það sem á borð
Presturinn í Cutberths og Glaumbæ, sr. Charles og sr. Gísli.
Sameiginlegur kvöldverður á lokadegi.
„Þetta er nú engin kindabyssa“ hugsar Óli þar sem hann styður hönd á „stóru Bertu“
í Edinborgarkastala.
var borið en t.d. samanstóð
forrétturinn af gröfnum laxi
með hafrakexi....
Stolt af kórum og
kirkjunni okkar
Svona ferðir eru fyrst og fremst
skemmtiferðir, en um leið eru
þær gríðar mikilvægur þáttur í
því öfluga safnaðarstarfi sem
fram fer í prestakallinu okkar og
víðar um land. Að syngja í
kirkjukór er hluti af kirkju-
starfinu og við erum heppin hve
fjölmennur og vel skipaður
okkar kór er, blanda af eldri og
yngri með einstakan leiðtoga
sem Stefán Gíslason er og okkar
góða prest sr. Gísla í Glaumbæ.
Til gamans má geta þess að elsti
félaginn, Sigurður á Grófargili,
hefur sungið í 67 ár í kirkju-
kórnum eða frá fæðingu Hadda
frænda síns í Brautarholti.
„Kirkjan er fólkið“ er vel
þekkt staðreynd sem stundum
gleymist í Mammonsdýrkandi
samfélagi. Út um allt land leggur
fjöldi fólks mikið á sig til að
halda uppi kór, eldri borgara og
barnastarfi, viðhalda kirkju og
görðum og er um leið hrygg-
stykkið í kirkjustarfinu. Þar
kannast menn ekki við þær
fréttir sem fjölmiðlar blása upp
um flótta úr kirkjunni eða
sundurlyndi innan hennar.
Hér í Glaumbæjarprestakalli
ætlum við að minnsta kosti ekki
að taka þátt í þeim hrunadansi
heldur ylja okkur lengi við
minningar úr vel heppnaðri ferð
með mannbætandi ferðafélög-
um og héldum svo áfram að æfa
fyrir aðventusamkomuna sem
haldin var á Löngumýri 8.
desember. Við munum hér eftir
sem hingað til leggja okkur fram
um að syngja af okkar bestu getu
því við erum stolt af kórum og
kirkjunni okkar.
St. Cutberts kirkjan þar sem kórinn tók þátt í guðsþjónustu.
Lýtingsstaðahjónin nýttu tímann vel til skoðunarferða.
Þeir Olli og Sveinn voru að leita að þægilegum klæðnaði fyrir þorrablót Lýtinga.
Jólamarkaðurinn að kvöldi.