Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 27
48/2019 27
Staðan á Norðurlandi vestra
Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar
Ég held að fólk geri sér enga grein fyrir
áhrifum veðursins undanfarna daga á
líf fólks hér á Norðurlandi vestra (og
víðar á landsbyggðinni). Ég og mín
f j ö l s k y l d a
getum ekki
yfir neinu
kvartað þó
rafmagnslaust
hafi verið í
hátt í 40
klukkustund-
ir. Við höfð-
um hita á
húsinu, áttum
batterísútvarp,
ég hafði hlaðið tvo hleðslubanka svo ég
hafði hlaðinn síma allan tímann, nóg
var af kertum, tvær luktir og nóg af
rafhlöðum. Í húsinu er varmaskiptir
svo ég gat látið heitt vatnið renna beint
í kakóbollana svo það kom ekki að sök
að við vorum ekki með prímus. Við
áttum nægan mat þó flestar máltíðir
væru kaldar en reyndar er ótrúlegt
hvað hægt er að hita mikið með heitu
vatni einu. Skóflunni hafði ég stungið
inn í forstofu sem kom sér vel því
ítrekað þurftum við að moka okkur út.
Það kann að vera að einhverjum þyki
þetta kósí og vissulega eru myndir sem
ég hef birt á samfélagsmiðlum jólalegar
að sjá. En það er fátt kósí og jólalegt við
eftirfarandi (samantekið úr stöðufærsl-
um vina á fb - tekið upp orðrétt – vona
að viðkomandi fbvinir fyrirgefi að
þetta sé tekið upp án leyfis):
- Enn rafmagnslaust. Hiti inni 7,4°C.
Símasamband en internet kemur og
fer.
- Búin að hella niður hátt í 1000 lítrum
sem voru í mjólkurtanknum. Það má
ekki selja mjólk sem lendir í kælirofi.
- Fordinn stendur sig með prýði. Hann
er notaður til að hlaða símana og er
eina farartækið á bænum sem ekki er
lokað inni eða týnt í skafli.
- Kýrnar fá bara vatn og hey, ekkert
kjarnfóður og ekkert mjólkað…Við
þrífum básana ekstra vel og ekstra
mikið af sagi í básana. Þær voru bara
ekkert pirraðar við mig áðan. Sögðu
bara að við yrðum að sætta okkur við
að þær færu ekki í fulla nyt aftur eftir
svona meðferð.
- Við erum komin í á annan sólarhring
af rafmagnsleysi - og af því að húsin
okkar eru hituð með rafmagni; þá er
ástandið orðið vægast sagt kuldalegt.
Það er úlpuveður inni, það gengur
hratt á kerta- og batterísbirgðir heim-
ilisins.
- [bóndinn] hefur verið að dunda sér
við að gefa og sæða í svarta myrkri til
þess að sauðburðurinn okkar fari ekki
í fokk.
- Í gær fór ég að vitja að hrossum í
vonsku veðri kom að 10 hrossum í
snjó og var byrjað að fenna yfir þau
náði að bjarga þeim úr snjónum. Í
morgun fór ég aftur, sá í snoppuna á
henni Freyju. Fórum að moka henni
upp, henni var náð með góðra hjálp
nágranna. Freyja er núna inn í
hesthúsi og vona ég svo innilega að
hún nái sér. maður vonar að enginn
þurfi að lenda í þessu því þó maður sé
með breitt bak þá er stutt í tárin.
- Það var svo sannarlega áskorun að
vinna við þessar aðstæður, sinna fólkinu
okkar [á heilbrigðisstofnuninni] með
höfuðljós og með nokkkur batterískerti.
Aðgerðir á Sauðárkrókshöfn er bryggjupolli slitnaði upp.
MYND: FB SKAGFIRÐINGASVEITAR
UMSJÓN
Páll Friðriksson
að mestu lætin í hamfaraveðrinu, sem geisaði sólarhringana þar á undan,
voru um garð gengin. Hún velti fyrir sér, líkt og margir aðrir, hvernig stæði
á því að innviðir á okkar svæði, sem og víða annars staðar, á landinu, væru
ekki í betra lagi en kom í ljós þessa dimmu daga kulda og rafmagnsleysis.
Feykir fékk leyfi Unnar Valborgar til að birta pistilinn hér í Feyki, til að
minna okkur á hversu mikilvægt er að hafa öll kerfi undirbúin þvílíku
stórviðri, sem sannarlega geta dunið á aftur.
Pistillinn er eftirfarandi:
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri
SSNV og íbúi á Hvammstanga, ritaði athyglisverðan
pistil á Facebooksíðu sína þann 12. desember, eftir
- Hér hefur t.d. verið rafmagnslaust í
tæpa 51 klukkustund!
- það verður kalt... En við förum undir
sæng og höldum okkur þar.
- Komið á þriðja sólarhring í stöðugu
rafmagnsleysi á mínu heimili.
- Rafmagnslaust síðan 14 í gær, hita-
veitulaust síðan í nótt og sömuleiðis
símasambandslaust.
- Sjúkrahúsið á Hvammstanga þar sem
mamma dvelur, hefur nú verið raf-
magnslaust síðan um miðjan dag í
gær, sjúkrahúsið er án vararafstöðvar.
- þurfti í óveðrinu að finna til lyf handa
sjúklingum í svartamyrkri með vasa-
ljós á enninu. Bærinn rafmagnslaus
og ekkert varaafl.
- Fékk loksins langþráð símtal að
heiman þegar pabbi og [bróðir] náðu
að brjótast út á þjóðveg og ná daufu
símasambandi loksins þegar hríðinni
slotaði. Allt í lagi með bæði fólk og
eignir en ennþá rafmagnslaust og kalt
orðið í húsum. Ef ekki kemst rafmagn
á á morgun gætu leiðslur farið að gefa
eftir í kuldanum framundan.
- Hann hætti lífi sínu til að reyna að
koma rafmagni á svæðið í þessu
bandvitlausa veðri sem hefur verið
síðustu daga. snjóbíllinn sem hann
var á valt á leiðinni og þurfti hann að
ganga á næsta bæ í aftakaveðri til að
komast í skjól, svo hélt hann áfram á
endastöð sem tók í allt 9 klst (tekur
venjulega 30 mín) einnig var síma-
sambandslaust svo ekki var hægt að
ná í hann og vissum við fjölskyldan
ekkert hvar hann var niður kominn í
allt of langan tíma! Hann stóð svo
rafmagnsvaktina í bandvitlausu veðri
í einn og hálfan sólarhring.
- Bjargað af ísköldum bænum ásamt
tveimur ungum dætrum (af visir.is)
- Ein kunningjakona mín var ein
heima, án hita, en náði að hita sér
vatn með teljósum…
Það væri hægt að halda áfram.
Það er árið 2019!
Eins og sjá má þá hefur ástandið hér
verið grafalvarlegt og sér ekki fyrir
endann á því enn. Innviðir hér og víða
annars staðar á landinu eru augljóslega
ekki í lagi. Við því verða ráðamenn að
bregðast – og það strax. Sveitarstjórnir
tveggja sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra hafa ályktað um stöðuna og eins
og gefur að skilja er þungt hljóð í
sveitarstjórnarmönnum.
Það er því ekkert kósí og jólalegt við
þetta óveður og eftirköst þess. Það er
ekki bara kalt á þeim bæjum sem eru
búnir að vera rafmagnslausir lengi
heldur eru bændur að verða fyrir
eignatjóni og verulegu tekjutapi. Verst
er að horfa upp á dýrin, að þurfa að
grafa hross upp úr snjó og eru
júgurbólgur og annað farið að hrjá
sumar kýrnar þar sem ekki er varaafl
til að knýja róbóta í fjósum. Því til
viðbótar þurfa þau framleiðslufyrir-
tæki sem hér eru að henda vörum af
kælum og framleiðsla liggur eðlilega
niðri. Verslanir þurfa mögulega að
henda skemmdri kælivöru o.s.frv. Það
er því ljóst að um stórtjón er að ræða.
Ég get ekki látið hjá líða að þakka
viðbragðsaðilum, björgunarsveitar-
mönnum, heilbrigðisstarfsfólki, lög-
reglumönnum, viðgerðarmönnum og
konum, og einstaklingum sem hafa
staðið vaktina nótt sem dag til að gera
líf okkar hinna bærilegra á meðan á
þessum hremmingum stendur. Þeirra
framlag er ómetanlegt.
Reynt var að hreinsa seltu af spennum með hjálp slökkviliðsmanna.
MYND: RARIK
Spennistöð sem sprakk í vikunni við Þóreyjarnúp í V-Hún.
MYND: RARIK
Yfirlitskort sem RARIK gaf út sýnir hve rafmagnsleysið var víðtækt á landinu. MYND: RARIK