Feykir


Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 12

Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 12
12 48/2019 Þorbergur Skagfjörð Ólafsson, búsettur í Kópavogi, fæddist 1974 og er Jobbi eins og hann segir sjálfur, kallaður Beggi Óla. Hann ólst upp á Sauðárkróki til 14 ára aldurs hjá ömmu og afa, Svövu og Begga Jóseps á Grundarstígnum. Pabbi hans er Óli Begga, húsasmiður á Trésmiðjunni Björk. Beggi spilar á trommur og slagverk. „Þegar ég var ungur spilaði ég í mörgum bílskúrsböndum þ.a.m á Sauðárkróki,“ segir Beggi. „Eftir að ég flutti til Reykjavíkur fór ég að spila með hinum og þessum hljómsveitum með alls konar tónlistarstefnur; jazz, popp, rokk, metal, dauðarokk, gospel og svo mætti lengi telja. Mest varð þó úr hljómsveitunum Poppers, Tilþrif og Undryð en með þeim spilaði ég út um allt land og þ.a.m á Sauðárkróki. Þaðan fór ég svo að tromma fyrir nokkra kóra, t.d. Vocal Project, Gospelkór Ástjarnarkirkju, Rokkkór Íslands og nú síðast Fjarðartóna og Lögreglukór Íslands. Í dag er ég svo í frábærri hljómsveit sem heitir Reggie Óðins og erum við að taka upp okkar fjórða disk núna með frumsömdu efni.“ Beggi hefur í gegnum tíðina einnig spilað undir hjá nokkrum fremstu tónlistamönnum Íslands, t.d. Páli Óskari, Pálma Gunnars, Bjart- mari Guðlaugs, Bjarna Ara, Páli Rósinkrans, Andreu Gylfa og Rúnari Þór. „Einu má ég þó ekki gleyma en síðasta vetur var ég beðinn um að tromma inn á nýtt Tindastólslag sem samið var fyrir körfuna,“ segir Beggi. Það er lagið Stólar sem Hljómsveit Baldvins I. Símonarsonar tók upp ásamt Hólavegs- dúettnum en lag og texta samdi Héðinn Sigurðs- son. Hvaða lag varstu að hlusta á? Rooftops, Culture. Uppáhalds tónlistartímabil? Tónlist frá 1980 og eftir það, aðallega Kiss og Duran Duran. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Gospel tónlist. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Tom Jones og Pops-plöturnar en oftast var kveikt á útvarpinu. Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/ niðurhalið sem þú keyptir þér? Vínylplata með Kiss, Love Gun. Hvaða græjur varstu þá með? Gamlar steríó græjur frá afa og ömmu en headphone-inn þurfti alltaf að vera tengdur. Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa fílað í botn? Love Gun – annars er ég algör alæta á tónlist. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Ungir strákar með Flóna, þoli ekki íslensk dóprapplög, ömurlegur boðskapur fyrir unga fólkið okkar Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Duran Duran, Stuðmenn og 80’s tónlist. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Pink, Adele eða Lauren Diagle. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Til Evrópu á U2 tónleika, verð ég ekki að segja að ég myndi taka konuna mína með. Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Skidrow og Whitesnake. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Phil Collins. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Arena og Rio með Duran Duran. ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Headphone-inn þurfti alltaf að vera tengdur Þorbergur Skagfjörð Ólafsson / trommur og slagverk toppurinn Vinsælustu lögin á playlistanum hjá Begga Óla: You Say LAUREN DIAGLE Hot Fudge ROBBIE WILLIAMS Veisses Fleisch RAMMSTEIN Freedome CULTURE Africa TOTO Yellow COLDPLAY Feykir í jólafríi! Feykir kemur næst út 8. janúar 2020. Blaðamenn á vakt eru í síma 861 9842 (Palli) og 867 9744 (Fríða) eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.