Feykir - 18.12.2019, Qupperneq 12
12 48/2019
Þorbergur Skagfjörð Ólafsson,
búsettur í Kópavogi, fæddist 1974 og er
Jobbi eins og hann segir sjálfur,
kallaður Beggi Óla. Hann ólst upp á
Sauðárkróki til 14 ára aldurs hjá ömmu
og afa, Svövu og Begga Jóseps á
Grundarstígnum. Pabbi hans er Óli
Begga, húsasmiður á Trésmiðjunni
Björk. Beggi spilar á trommur og
slagverk.
„Þegar ég var ungur spilaði ég í mörgum
bílskúrsböndum þ.a.m á Sauðárkróki,“ segir
Beggi. „Eftir að ég flutti til Reykjavíkur fór ég
að spila með hinum og þessum hljómsveitum
með alls konar tónlistarstefnur; jazz, popp,
rokk, metal, dauðarokk, gospel og svo mætti
lengi telja. Mest varð þó úr hljómsveitunum
Poppers, Tilþrif og Undryð en með þeim spilaði
ég út um allt land og þ.a.m á Sauðárkróki.
Þaðan fór ég svo að tromma fyrir nokkra kóra,
t.d. Vocal Project, Gospelkór Ástjarnarkirkju,
Rokkkór Íslands og nú síðast Fjarðartóna og
Lögreglukór Íslands. Í dag er ég svo í frábærri
hljómsveit sem heitir Reggie Óðins og erum
við að taka upp okkar fjórða disk núna með
frumsömdu efni.“
Beggi hefur í gegnum tíðina einnig spilað
undir hjá nokkrum fremstu tónlistamönnum
Íslands, t.d. Páli Óskari, Pálma Gunnars, Bjart-
mari Guðlaugs, Bjarna
Ara, Páli Rósinkrans,
Andreu Gylfa og Rúnari
Þór. „Einu má ég þó ekki
gleyma en síðasta vetur
var ég beðinn um að
tromma inn á nýtt
Tindastólslag sem samið
var fyrir körfuna,“ segir
Beggi. Það er lagið
Stólar sem Hljómsveit
Baldvins I. Símonarsonar
tók upp ásamt Hólavegs-
dúettnum en lag og texta
samdi Héðinn Sigurðs-
son.
Hvaða lag varstu að
hlusta á? Rooftops, Culture.
Uppáhalds tónlistartímabil? Tónlist frá 1980
og eftir það, aðallega Kiss og Duran Duran.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Gospel tónlist.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili? Tom Jones og Pops-plöturnar en
oftast var kveikt á útvarpinu.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/
niðurhalið sem þú keyptir þér? Vínylplata
með Kiss, Love Gun.
Hvaða græjur varstu þá með? Gamlar steríó
græjur frá afa og ömmu en headphone-inn
þurfti alltaf að vera tengdur.
Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að
hafa fílað í botn? Love Gun – annars er ég
algör alæta á tónlist.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn?
Ungir strákar með Flóna, þoli ekki íslensk
dóprapplög, ömurlegur boðskapur fyrir unga
fólkið okkar
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu
hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð?
Duran Duran, Stuðmenn og 80’s tónlist.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni,
hvað viltu helst heyra? Pink, Adele eða
Lauren Diagle.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í
heiminum og skella þér á tónleika. Hvert
færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Til Evrópu á U2
tónleika, verð ég ekki að
segja að ég myndi taka
konuna mína með.
Hvaða músík var helst
blastað í bílnum þegar
þú varst nýkominn með
bílpróf? Skidrow og
Whitesnake.
Hvaða tónlistarmaður
hefur þig dreymt um að
vera? Phil Collins.
Hver er að þínu mati
besta plata sem gefin
hefur verið út? Arena og
Rio með Duran Duran.
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Headphone-inn þurfti
alltaf að vera tengdur
Þorbergur Skagfjörð Ólafsson / trommur og slagverk
toppurinn
Vinsælustu lögin
á playlistanum hjá Begga Óla:
You Say
LAUREN DIAGLE
Hot Fudge
ROBBIE WILLIAMS
Veisses Fleisch
RAMMSTEIN
Freedome
CULTURE
Africa
TOTO
Yellow
COLDPLAY
Feykir í jólafríi!
Feykir kemur næst út 8. janúar 2020.
Blaðamenn á vakt eru í síma
861 9842 (Palli) og 867 9744 (Fríða)
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is