Feykir


Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 30

Feykir - 18.12.2019, Blaðsíða 30
30 48/2019 4 eggjarauður 100 g sykur 100 g suðusúkkulaði ½ l rjómi 4 eggjahvítur 1 dl rjómi 4 apríkósur 50 g súkkulaði Aðferð: Fínsaxið apríkósurnar og leggið í bleyti í líkjörnum í a.m.k. tvær klukkustundir, gjarnan lengur. Þeytið eggjarauðurnar mjög vel með sykrinum. Grófsaxið súkku- laðið. Blandið apríkósum og súkkulaði út í eggjablönduna. Stífþeytið rjómann og blandið saman við maukið með sleikju og frystið í 20 mínútur. Hrærið kremið aftur. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið saman við ísinn með sleikju. Gætið þess að loft haldist í. Hellið í 22 sm smelluform og frystið í a.m.k. fjóra klukkutíma. Setjið tertuna á fat og skreytið með rjómatoppum, söxuðum apríkósum og súkkulaði. Verði ykkur að góðu og gleðileg jól. FEYKIFÍN AFÞREYING Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ég er í norðannæðingnum. Nýtist vel í eldsmiðjum. Þéna lúðurþeyturum. Þysmikill hjá hvölunum. Feykir spyr... Hvað hefur þú í matinn á aðfanga- dagskvöld? Spurt á Facebook UMSJÓN frida@feykir.is „Hamborgarhryggur og nautalund fyrir prinsessuna.“ Guðjón Örn Jóhannsson „Það er alltaf svínahamborgarhryggur á aðfangadagskvöld hjá okkur.“ Ásta Pálmadóttir Ótrúlegt en kannski satt... Nú er kominn sá tími þar sem tunga mannskepnunnar þarf að vera í hvað bestu formi til að finna öll þau afbrigði bragðtegunda sem jólin hafa upp á að bjóða. Tungan er stór vöðvi, eða öllu heldur átta tengdir vöðvar, í munni sem vinnur fæðu til að tyggja og gleypa, eins og segir á Wikipedia. Yfirborð tungunnar er þakið bragðlaukum sem greina bragð. Áður var talið að bragðlaukarnir dreifðust misjafnt á tunguna þannig að ákveðnir hlutar hennar skynjuðu tiltekið bragð, þannig að tungubroddurinn skynjaði sætt bragð en aðrir hlutar tungunnar salt, beiskt og súrt bragð. Ótrúlegt, en kannski satt þá hafa rannsóknir leitt í ljós að svo er ekki. Allir hlutar tungunnar skynja allar bragðtegundir. FORRÉTTUR Humar með eplarjómasósu (fyrir 6) 500 g skelflettur humar 50 g smjör 2 stk. epli, gul Sósa: 2 stk. skalottlaukar, litlir 1 dl hvítvín 1 peli rjómi salt og pipar 1 tsk. dijon sinnep ½ stk. fiskteningur (Knorr) 1 stk. súputeningur (Maggi) sósujafnari Aðferð: Sósan er löguð fyrst. Saxið laukinn og steikið glæran í olíu á pönnu. Bætið hvítvíni og rjóma saman við og sjóðið við vægan hita í fimm mínútur, þykkið með sósujafnara. Bragðbætið með súputeningi, salti, pipar og sinepi. Eplin afhýdd og kjarnhreinsuð, skorin smátt. Bræðið smjörið á pönnu og steikið humarinn ásamt eplunum í 1–2 mínútur. Hellið sósunni á pönnuna og látið sjóða í 1 mínútu. Sett á diska og skreytt með fallegu salati. Borið fram með góðu brauði. AÐALRÉTTUR Appelsínuönd 1 önd 2 dl ferskur appelsínusafi 4-5 msk. sykur 4-6 dl andasoð (Oscar andakraftur og vatn) eða soð lagað úr vængjum og innmat 2-3 msk. smjör Grand Marnier Aðferð: Kryddið öndina með salti og pipar. Steikið hana í u.þ.b. 90 mínútur við 140-150°C. Hækkið hitann í 220°C og bakið öndina í u.þ.b. 20-25 mínútur eða þar til puran verður stökk. Gætið vel að því að fuglinn brenni ekki. Appelsínusósa: Brúnið sykurinn og hellið appelsínusafanum og soðinu út í. Bakið upp með maizena sósujafnara. Hellið góðri skvettu af Grand Marnier út í og bætið köldu smjöri út í að lokum. Berið öndina fram með sósunni, brúnuðum kartöflum og salati, t.d. góðu ávaxtasalati. EFTIRRÉTTUR Apríkósuísterta 200 g þurrkaðar apríkósur 1 dl appelsínu- eða apríkósulíkjör „Í aðalhlutverki er lambakjöt, þá hefð tökum við bæði hjónin frá okkar bernskuheimilum. Svo hafa ýmis tilbrigði komið inn eins og hamborgarhryggur, en þá er það tvíréttað. Þar sem mér ferst margt betur en að kokka þá hef ég ekki lagt aftur í kalkúninn. Reyndi það einu sinni og mér var kurteislega bent á að lambið færi mér betur. Meðlætið breytilegt og fer eftir hvaða undirbúningstími er í boði og hverjir heiðra okkur við hátíðarborðið. En kaffið, serrýið og konfektið er skilyrði með jólakortalestrinum.“ Halla Signý Kristjánsdóttir Appelsínuönd. MYND AF NETINU Sudoku SV AR V IÐ V ÍS NA GÁ TU NN I:: Bl ás tu r. Humar, önd og ísterta á jólaborðið Þá styttist óðfluga í mestu matarvertíð heimilanna og eflaust flestir búnir að ákveða hvað hafa skuli á borðum um jólin. Hamborgarhryggurinn mun vera vinsælastur hjá landanum á aðfangadagskvöld samkvæmt könnunum og státar af býsna öruggri forystu. Hefðin er sterk og hjá mörgum kemur ekki til greina að breyta til. En fyrir þá sem það vilja fylgir hér uppskrift að ljúffengri appelsínuönd sem ekki er erfitt að útbúa ásamt léttum forrétti og apríkósuís sem hægt er að útbúa með góðum fyrirvara. Svo má að sjálfsögðu elda þessa rétti á hvaða tíma sem hugurinn girnist. ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) frida@feykir.is Apríkósuísterta. MYND: NÝIR UPPÁHALDSRÉTTIR Tilvitnun vikunnar Hrein samviska er endalaus jól. – Benjamin Franklin

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.