Feykir


Feykir - 18.12.2019, Qupperneq 27

Feykir - 18.12.2019, Qupperneq 27
48/2019 27 Staðan á Norðurlandi vestra Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar Ég held að fólk geri sér enga grein fyrir áhrifum veðursins undanfarna daga á líf fólks hér á Norðurlandi vestra (og víðar á landsbyggðinni). Ég og mín f j ö l s k y l d a getum ekki yfir neinu kvartað þó rafmagnslaust hafi verið í hátt í 40 klukkustund- ir. Við höfð- um hita á húsinu, áttum batterísútvarp, ég hafði hlaðið tvo hleðslubanka svo ég hafði hlaðinn síma allan tímann, nóg var af kertum, tvær luktir og nóg af rafhlöðum. Í húsinu er varmaskiptir svo ég gat látið heitt vatnið renna beint í kakóbollana svo það kom ekki að sök að við vorum ekki með prímus. Við áttum nægan mat þó flestar máltíðir væru kaldar en reyndar er ótrúlegt hvað hægt er að hita mikið með heitu vatni einu. Skóflunni hafði ég stungið inn í forstofu sem kom sér vel því ítrekað þurftum við að moka okkur út. Það kann að vera að einhverjum þyki þetta kósí og vissulega eru myndir sem ég hef birt á samfélagsmiðlum jólalegar að sjá. En það er fátt kósí og jólalegt við eftirfarandi (samantekið úr stöðufærsl- um vina á fb - tekið upp orðrétt – vona að viðkomandi fbvinir fyrirgefi að þetta sé tekið upp án leyfis): - Enn rafmagnslaust. Hiti inni 7,4°C. Símasamband en internet kemur og fer. - Búin að hella niður hátt í 1000 lítrum sem voru í mjólkurtanknum. Það má ekki selja mjólk sem lendir í kælirofi. - Fordinn stendur sig með prýði. Hann er notaður til að hlaða símana og er eina farartækið á bænum sem ekki er lokað inni eða týnt í skafli. - Kýrnar fá bara vatn og hey, ekkert kjarnfóður og ekkert mjólkað…Við þrífum básana ekstra vel og ekstra mikið af sagi í básana. Þær voru bara ekkert pirraðar við mig áðan. Sögðu bara að við yrðum að sætta okkur við að þær færu ekki í fulla nyt aftur eftir svona meðferð. - Við erum komin í á annan sólarhring af rafmagnsleysi - og af því að húsin okkar eru hituð með rafmagni; þá er ástandið orðið vægast sagt kuldalegt. Það er úlpuveður inni, það gengur hratt á kerta- og batterísbirgðir heim- ilisins. - [bóndinn] hefur verið að dunda sér við að gefa og sæða í svarta myrkri til þess að sauðburðurinn okkar fari ekki í fokk. - Í gær fór ég að vitja að hrossum í vonsku veðri kom að 10 hrossum í snjó og var byrjað að fenna yfir þau náði að bjarga þeim úr snjónum. Í morgun fór ég aftur, sá í snoppuna á henni Freyju. Fórum að moka henni upp, henni var náð með góðra hjálp nágranna. Freyja er núna inn í hesthúsi og vona ég svo innilega að hún nái sér. maður vonar að enginn þurfi að lenda í þessu því þó maður sé með breitt bak þá er stutt í tárin. - Það var svo sannarlega áskorun að vinna við þessar aðstæður, sinna fólkinu okkar [á heilbrigðisstofnuninni] með höfuðljós og með nokkkur batterískerti. Aðgerðir á Sauðárkrókshöfn er bryggjupolli slitnaði upp. MYND: FB SKAGFIRÐINGASVEITAR UMSJÓN Páll Friðriksson að mestu lætin í hamfaraveðrinu, sem geisaði sólarhringana þar á undan, voru um garð gengin. Hún velti fyrir sér, líkt og margir aðrir, hvernig stæði á því að innviðir á okkar svæði, sem og víða annars staðar, á landinu, væru ekki í betra lagi en kom í ljós þessa dimmu daga kulda og rafmagnsleysis. Feykir fékk leyfi Unnar Valborgar til að birta pistilinn hér í Feyki, til að minna okkur á hversu mikilvægt er að hafa öll kerfi undirbúin þvílíku stórviðri, sem sannarlega geta dunið á aftur. Pistillinn er eftirfarandi: Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV og íbúi á Hvammstanga, ritaði athyglisverðan pistil á Facebooksíðu sína þann 12. desember, eftir - Hér hefur t.d. verið rafmagnslaust í tæpa 51 klukkustund! - það verður kalt... En við förum undir sæng og höldum okkur þar. - Komið á þriðja sólarhring í stöðugu rafmagnsleysi á mínu heimili. - Rafmagnslaust síðan 14 í gær, hita- veitulaust síðan í nótt og sömuleiðis símasambandslaust. - Sjúkrahúsið á Hvammstanga þar sem mamma dvelur, hefur nú verið raf- magnslaust síðan um miðjan dag í gær, sjúkrahúsið er án vararafstöðvar. - þurfti í óveðrinu að finna til lyf handa sjúklingum í svartamyrkri með vasa- ljós á enninu. Bærinn rafmagnslaus og ekkert varaafl. - Fékk loksins langþráð símtal að heiman þegar pabbi og [bróðir] náðu að brjótast út á þjóðveg og ná daufu símasambandi loksins þegar hríðinni slotaði. Allt í lagi með bæði fólk og eignir en ennþá rafmagnslaust og kalt orðið í húsum. Ef ekki kemst rafmagn á á morgun gætu leiðslur farið að gefa eftir í kuldanum framundan. - Hann hætti lífi sínu til að reyna að koma rafmagni á svæðið í þessu bandvitlausa veðri sem hefur verið síðustu daga. snjóbíllinn sem hann var á valt á leiðinni og þurfti hann að ganga á næsta bæ í aftakaveðri til að komast í skjól, svo hélt hann áfram á endastöð sem tók í allt 9 klst (tekur venjulega 30 mín) einnig var síma- sambandslaust svo ekki var hægt að ná í hann og vissum við fjölskyldan ekkert hvar hann var niður kominn í allt of langan tíma! Hann stóð svo rafmagnsvaktina í bandvitlausu veðri í einn og hálfan sólarhring. - Bjargað af ísköldum bænum ásamt tveimur ungum dætrum (af visir.is) - Ein kunningjakona mín var ein heima, án hita, en náði að hita sér vatn með teljósum… Það væri hægt að halda áfram. Það er árið 2019! Eins og sjá má þá hefur ástandið hér verið grafalvarlegt og sér ekki fyrir endann á því enn. Innviðir hér og víða annars staðar á landinu eru augljóslega ekki í lagi. Við því verða ráðamenn að bregðast – og það strax. Sveitarstjórnir tveggja sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa ályktað um stöðuna og eins og gefur að skilja er þungt hljóð í sveitarstjórnarmönnum. Það er því ekkert kósí og jólalegt við þetta óveður og eftirköst þess. Það er ekki bara kalt á þeim bæjum sem eru búnir að vera rafmagnslausir lengi heldur eru bændur að verða fyrir eignatjóni og verulegu tekjutapi. Verst er að horfa upp á dýrin, að þurfa að grafa hross upp úr snjó og eru júgurbólgur og annað farið að hrjá sumar kýrnar þar sem ekki er varaafl til að knýja róbóta í fjósum. Því til viðbótar þurfa þau framleiðslufyrir- tæki sem hér eru að henda vörum af kælum og framleiðsla liggur eðlilega niðri. Verslanir þurfa mögulega að henda skemmdri kælivöru o.s.frv. Það er því ljóst að um stórtjón er að ræða. Ég get ekki látið hjá líða að þakka viðbragðsaðilum, björgunarsveitar- mönnum, heilbrigðisstarfsfólki, lög- reglumönnum, viðgerðarmönnum og konum, og einstaklingum sem hafa staðið vaktina nótt sem dag til að gera líf okkar hinna bærilegra á meðan á þessum hremmingum stendur. Þeirra framlag er ómetanlegt. Reynt var að hreinsa seltu af spennum með hjálp slökkviliðsmanna. MYND: RARIK Spennistöð sem sprakk í vikunni við Þóreyjarnúp í V-Hún. MYND: RARIK Yfirlitskort sem RARIK gaf út sýnir hve rafmagnsleysið var víðtækt á landinu. MYND: RARIK

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.