Læknablaðið - dec. 2020, Side 50
608 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
V I Ð T A L
„Pólitík og peningar,“ segir Teitur Guð
mundsson, læknir og framkvæmdastjóri
Heilsuverndar, um þá stöðu að fyrirtæk
inu hafi ekki verið svarað um rekstur
hjúkrunarúrræðis að Urðarhvarfi 8.
Athygli vakti meðal annars í ársbyrjun
þegar Teitur steig fram og bauðst til að
opna hjúkrunarrými fyrir um 160 sjúk
linga, stoðþjónustu fyrir Landspítalann;
legurými og flæðirými.
„Við fengum neitun á sínum tíma, en
við höfum farið marga hringi með verk
efnið og byrjuðum að bjóða þáverandi ráð
herra þjónustu árið 2015. Við vorum svo
hvött til að endurvekja hugmyndir núna
í haust um 100 rými, en höfum ekki enn
fengið formlegt svar við þeirri beiðni.“
Teitur er ekki einn um að fá ekki svar
frá yfirvöldum. Önnu Birnu Jensdóttur,
framkvæmdastjóra Öldungs sem rekur
Sóltún, hefur ekki verið svarað um að reka
hjúkrunarrými á Oddsson hóteli. Ásdís
Halla Bragadóttir, framkvæmdastjóri
Heilsumiðstöðvarinnar í Ármúla, sem
rekur meðal annars sjúkradvöl á Hótel
Íslandi, sagði sömu sögu í Fréttablaðinu í
byrjun nóvember.
Ákall um hjálp án aðgerða
Heilbrigðisráðuneytið sendi ákall um
fleiri hjúkrunarrými til forstjóra hjúkr
unarheimila í tölvupósti þann 5. október.
Þar er vandi spítalans áréttaður og beðið
um hjálparhönd – það muni um hvert
rými. Anna Birna segir að þótt ráðuneytið
segi málið skoðað alvarlega hafi ekki
borist símtal þaðan. „Ekki eitt einasta.“
Hún hafi heyrt hvernig forstjórarnir
hafi tínt eitt og eitt pláss til en stærri hug
myndum hafi ekki verið svarað. „Ryki er
slegið í augu almennings með ákalli án að
gerða.“ Anna Birna bendir á að ákallið hafi
komið fyrir COVID19smitin á Landakoti
sem dregið hafa á annan tug einstaklinga
til dauða. Nú geti hjúkrunarheimilin ekki
tekið við fólki fyrr en því sé batnað.
„Smitin á Landakoti vekja upp sorg.
Sorg yfir hvernig þetta gerðist. Sorg að
ekki sé löngu búið að laga ástandið. Við
hefðum getað verið löngu búin að því,“
segir hún.
„Við höfum í áraraðir boðið ríkinu að
fjölga hjúkrunarrýmum á Sóltúni en það
hefur lítið sem ekkert gengið. Ég bauðst
meira að segja til þess að byggja utan um
öldrunarþjónustuna á Landakoti. Við höf
um lóð og getum tvöfaldað starfsemina,“
segir hún og bendir á að Sóltún hafi á
dögunum gert samning um 40 viðbótar
hjúkrunarrými á lóðinni sinni. „Við gæt
um hafist handa ef ekki strandaði á samn
ingum um húsaleigu.“ Óljóst er við hvaða
stjórnsýslueiningu á að semja.
„Ég hef verið í efsta lagi þessa bransa
allt frá árinu 1987. Við berjumst alltaf fyrir
sömu málunum. Sömu fyrirsagnirnar,
sömu erfiðleikarnir.“ Ástæða þess að illa
gangi séu að kröfulýsingar séu gerðar án
kostnaðargreininga og ekkert rekstrarfé sé
svo til að mæta þjónustukröfunum.
„Þetta snýst um peninga og þekkingar
leysi stjórnmálamanna sem kynnast ekki
vandanum fyrr en ættingi þeirra þarf á
þjónustunni að halda,“ segir hún. Vandinn
sem við sé að etja kristallist í COVID
smitunum á Landakoti; lélegt húsnæði,
skortur á mönnun og fræðslu. Vanda sem
hefði mátt afstýra með framsýni í mála
flokknum.
„Ég vona að forsætisráðherra standi við
orð sín um að taka eigi til hendinni innan
málaflokksins.“
Bjóða hjálparhönd sem
ekki er þegin
Á sama tíma og rétt liðlega 100 sjúklingar sitja fastir á Landspítala standa
sjálfstætt starfandi heilbrigðisstofnanir á hliðarlínunni. Þær segjast tilbúnar að taka
við sjúklingunum en er ekki svarað. „Við gefumst ekki upp,“ segir
Teitur Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri Heilsuverndar.
Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri Sóltúns, segir úrræðaleysi stjórnvalda
í málaflokknum kristallast í andlátunum á Landakoti vegna COVID-19
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins