Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Landfestar varðskipsins Óðins
voru leystar í gær og eftir aðstoð
frá dráttarbátnum Haka út úr
höfninni var Óðni siglt fyrir eigin
vélarafli um Sundin. Guðmundur
Hallvarðsson, formaður Hollvina-
samtaka Óðins, segir að siglingin
hafi í raun gengið ótrúlega vel og
vélarnar staðið sig í hvívetna.
„Þetta var bráðskemmtilegt og
ekki laust við að hugurinn hvarfl-
aði meira en hálfa öld til baka þeg-
ar ég var á Óðni í 158 daga,“ segir
Guðmundur. Vart varð lítils háttar
olíuleka í upphafi siglingar en því
var snarlega kippt í lag, að sögn
Guðmundar, og engin olía fór í
sjóinn.
Skipið kom nýtt til landsins fyrir
60 árum og tók þátt í þremur
þorskastríðum. Óðinn lenti tíu
sinnum í árekstrum við breskar
freigátur, dráttarbáta og togara og
klippti aftan úr 30 erlendum tog-
urum, en reyndist einnig sérstak-
lega vel sem björgunarskip.
Einn stærsti safngripurinn
Skipherra í siglingunni var Páll
Geirdal, en auk áhafnar var stjórn
Hollvinasamtakanna um borð.
Meðal gesta voru Georg Lárusson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar,
Gísli Gíslason hafnarstjóri og Guð-
brandur Benediktsson, safnstjóri
Borgarsögusafns. Fyrirhuguð er
sigling með hollvini Óðins og fleiri
á næstunni, en takmarka þurfti
fjöldann í siglingunni í gær vegna
ráðstafana vegna kórónuveikinnar.
Óðinn var í notkun fram til
ársins 2006 og afhenti ríkisstjórnin
hollvinasamtökum Óðins skipið ár-
ið 2008. Frá þeim tíma hefur skipið
legið við Grandagarð og verið hluti
af sýningu Sjóminjasafnsins, sem
varðveitir skipið og sér um rekstur
þess. Hollvinirnir sjá hins vegar
um ýmislegt viðhald. Óhætt er að
segja að Óðinn sé einn stærsti
safngripur sem finnst á landinu.
Vélstjórar á eftirlaunum
Fyrir fjórum árum byrjuðu tveir
vélstjórar að huga að vélunum í
Óðni og smátt og smátt fjölgaði í
hópnum. Undanfarið hafa átta vél-
stjórar, flestir á eftirlaunum, unnið
í sjálfboðavinnu alla mánudaga í
vélarrúmi skipsins. Í vetur kom
fram í samtali við Guðmund Hall-
varðsson að skipið væri í ótrúlega
góðu standi miðað við aldur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Óðinn Varðskipið siglir út um hafnarkjaftinn eftir að hafa legið bundinn við bryggju við Grandagarð frá árinu 2006 þar sem það er hluti af sýningu Sjóminjasafnsins.
Safngripurinn sigldi um Sundin
Sextíu ár frá því að varðskipið Óðinn kom fyrst til landsins Tók þátt í þremur þorskastríðum
Í vélarrúminu Ingólfur Kristmundsson stóð vaktina og fylgdist með að allt
gengi eftir áætlun. Hann þekkir vel til eftir að hafa verið vélstjóri á Óðni,
fyrst 1973, og er meðal þeirra sem hafa sýslað við vélarnar síðustu ár.
Sex fyrirtæki hafa tilkynnt að þau
ætli sér að hætta að nýta hlutabóta-
leið stjórnvalda og/eða endur-
greiða þá fjármuni sem fyrirtækin
höfðu fengið út úr leiðinni.
Ekkert fyrirtækjanna er í
rekstrarvanda, en markmið hluta-
bótaleiðarinnar er að ríkið aðstoði
fyrirtæki í rekstrarvanda með því
að greiða allt að 75% launa starfs-
fólks.
Þannig setti fyrirtækið Origo 50
starfsmenn á hlutabætur sama dag
og það tilkynnti 425 milljóna króna
hagnað á fyrsta ársfjórðungi.
Ákvörðun um að setja starfsfólkið á
bætur var í gær dregin til baka.
Esja Gæðafæði ehf. ákvað í gær að
endurgreiða 17 milljóna króna
stuðning sem Vinnumálastofnun
hafði veitt fyrirtækinu vegna hluta-
bóta. Brim ætlar einnig að endur-
greiða þær hlutabætur sem félagið
nýtti sér, sem og Skeljungur og
Hagar. Festi hefur hætt að nýta sér
hlutabótaleiðina.
Stöndug fyrirtæki endurgreiða hlutabætur
Morgunblaðið/Eggert
Bætur Vinnumálastofnun hefur staðið í
ströngu við að greiða út hlutabætur.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
Engin ný smit kórónuveiru voru til-
kynnt í gær, fjórða daginn í röð. Er
þetta í fyrsta sinn síðan faraldurinn
gerði vart við sig hérlendis að engin
smit greinast samfleytt í svo langan
tíma.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir hefur talsverðar áhyggjur af
því að hópsýkingar geti komið upp
við opnun skemmtistaða, eins og
gerst hefur í Suður-Kóreu og Þýska-
landi, og segir að eitt af því sem verið
sé að skoða hérlendis sé hvort bíða
eigi með að opna skemmtistaði.
Í viðtali sem birtist á mbl.is um
helgina gagnrýndi kráareigandi það
að staðir þyrftu að vera með veit-
ingaleyfi til þess að hafa opið til
klukkan ellefu að kvöldi til. Þannig
safnaðist fjöldi fólks saman á veit-
ingastöðum í stað þess að fólk gæti
bæði sest niður og fengið sér í glas á
krám og veitingastöðum og þannig
dreifst betur og haldið sig í öruggri
fjarlægð frá öðrum gestum.
Þórólfur sagði á upplýsingafundi
almannavarna í gær að ekki þyrfti
mikið ímyndunarafl til að sjá að þar
sem fólk hrúgaðist saman og passaði
sig ekki væru kjöraðstæður fyrir
veiruna.
Aðgerðum aflétt á Vestfjörðum
Hertum aðgerðum var aflétt á
Vestfjörðum í gær og miðast sam-
komubann þar nú við 50 manns eins
og annars staðar.
„Nú erum við ekkert sérstök,“
segir Gylfi Ólafsson, forstjóri Heil-
brigðisstofnunar Vestfjarða.
Staðan á stofnuninni er „ljómandi
fín“ að sögn Gylfa og hann nýbúinn
að fara í klippingu.
Hópsýking kom upp á norðan-
verðum Vestfjörðum og á öllum
Vestfjörðum smituðust alls 97
manns af kórónuveirunni, en nú eru
einungis fimm með virkt smit.
Veiran ekki horfin
Þrátt fyrir að faraldurinn sé
greinilega á niðurleið sagði Þórólfur
á fundinum í gær að veiran væri ekki
horfin.
„Eins og staðan er núna eru fá
samfélagsleg smit í gangi en við get-
um líka sagt að veiran er ekki farin
úr samfélaginu. Hún er einhvers
staðar.“
Næstu skref í tilslökunum á sótt-
varnaaðgerðum verða 25. maí og
sagði Þórólfur að staðan væri
óbreytt hvað varðar að hægt verði að
aflétta takmörkunum hraðar ef vel
gengur að hemja faraldurinn.
Í gær sendi Þórólfur heilbrigðis-
ráðherra tillögur um ferðatakmark-
anir sem taka gildi eftir 15. maí.
Þórólfur býst við að þriggja vikna
millibili verði haldið milli afléttinga
samkomutakmarkana og því megi
búast við þar næstu afléttingu 15.
júní. „Við getum tekið nokkuð stór
skref í hvert skipti en við þurfum líka
að vera undir það búin að geta séð
nokkurs konar bakslag.“
Engin ný smit tilkynnt
fjórða daginn í röð
Hefur áhyggjur af hópsýkingum við opnun skemmtistaða
Ljósmynd/Lögreglan
Fundur Víðir Reynisson, Þórólfur og Óskar Reykdalsson héldu fund í gær.