Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 18. maí NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105, kata@mbl.is Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumar- húsgögn og grill ásamt ótal girnilegum uppskriftum. Garðablað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 22. maí SÉRBLAÐ Það sem fær mig hér til að stinga niður penna er klárlega stærsta ógnin sem ég veit til að mannkynið hafi staðið frammi fyrir. Loftslagsváin! Mér þótti afar vænt um að heyra frú Agnesi Sigurðardóttur biskup nefna þessa vá í predikun sinni á páskadagsmorgni 12. apríl síðastlið- inn, sem var útvarpað frá Dómkirkj- unni í Reykjavík. Frú Agnes notaði þar orðalag um loftslagsmál, sem var frumlegt, sterkt og í anda páskanna. Hún talaði þar um krossfestingu jarðarinnar af mannavöldum. Orðið krossfesting í tilfelli jarðarinnar fékk mig til að ganga einu skrefi lengra og ég setti þetta orð í sam- band við orðið upprisa. Verði sá ólýsanlegi harmleikur að veruleika að mannkyninu takist að krossfesta jörðina, hvað verður þá um uppris- una? Er hún möguleg í þessu tilfelli? Já, hún er möguleg, en einungis ef mannkyni tekst að koma í veg fyrir krossfestinguna. Þá blasir nýtt tímabil við jarðarbúum, sem vel væri hægt að kalla upp- risu. Tími, þar sem virðing fyrir öllu lífi væri í hásæti. Ástæðan fyrir titli mínum á þessu greinarkorni, „Ákall til kirkjunnar“, er einfaldlega sú bón mín og von að prestar landsins taki þetta mál, þessa heimsógn, upp í ræðum sínum og hvetji til aðgerða á heimsvísu ásamt öllum öðrum sem láta sig þessi mál varða. Því fleiri sem fjalla um þessi mál og skilja alvöru þess því betra. Mér er það fullljóst eins og öllum öðrum að kórónuveirufaraldurinn hefur nú þegar leikið heiminn grátt. Enginn getur nákvæmlega séð fyrir hvernig heimsmyndin verður þegar búið verður að ná tökum á honum. Eitt er víst að margt mun breytast þegar þar að kemur, en mikilvæg- astar eru þær breytingar sem verða hið innra með manneskjunni, bæði hugarfarslega og viðhorfslega. Þeir sem sigrast á kreppum koma út úr þeim sterkari, reyndari og þakklát- ari. Svo mun einnig vera um þjóðir og þar með gjörvallan mannheim. Það er til mikils að vinna að bjarga jörðinni frá meiri eyðileggingu en nú þegar hefur átt sér stað. Hvað þá frá óafturkræfri tortímingu. Þetta eru stór orð og þung, en við hljótum að taka alvarlega mark á öllum þeim mikla fjölda aðvarana sem færustu vísinda- og fræðimenn heimsins hafa látið frá sér fara á undanförnum ár- um og áratugum. Ég trúi að hin al- heimslega barátta við kórónufarald- urinn muni auka skilning, bræðralag og samkennd milli þjóða. Gjörvallur heimur hlýtur og verður að nýta sér þetta. Kórónufaraldurinn og lofts- lagsváin eiga það sameiginlegt að þau snerta alla heimsbyggðina. Ákall til kirkjunnar Eftir Gunnar Kvaran Gunnar Kvaran » Verði sá ólýsanlegi harmleikur að veru- leika að mannkyninu takist að krossfesta jörðina, hvað verður þá um upprisuna? Höfundur er sellóleikari og prófessor emeritus við Listaháskóla Íslands. sellokvaran@gmail.com Í dag, 12. maí, eru 200 ár liðin frá fæð- ingu Florence Night- ingale. Af þessu tilefni tilnefndi Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin árið 2020 ár hjúkr- unarfræðinga og ljós- mæðra. Hjúkrun innan heilsugæslunnar hér á höfuðborgarsvæðinu á sér langa sögu og má rekja hana aftur til 1915 þegar Hjúkrunarfélagið Líkn var stofnað að frumkvæði Christophine Bjarn- héðinsson sem var fyrsta fulllærða hjúkrunarkonan sem starfaði á Ís- landi. Líkn var mjög framsýnt félag og fólst starfsemi þess í heima- hjúkrun, aðstoð við fátæka, berkla- vernd, mæðra- og ungbarnavernd. Hjúkrunarkonur Líknar reyndu að aðstoða fátækar fjölskyldur eftir föngum hvað húsnæði snerti og koma börnum í sveit eða á barna- heimili til sumardvalar. Árið 1927 hóf Líkn skipulagða ungbarnavernd í Templarasundi 3. Þangað gátu mæður komið með börn sín og fengið læknisskoðun og leiðbeiningar um meðferð ungbarna endurgjaldslaust. Fyrsta hjúkrunar- konan var Bjarney Samúelsdóttir og fyrsti yfirlæknirinn var Katrín Thoroddsen barnalæknir. Heima- vitjanir voru frá fæðingu og hálfs- mánaðarlega til sex mánaða aldurs. Fátækt var mikil á þessum árum og deildi ungbarnaverndin út mjólk, lýsi, matvörum, fatnaði, útvegaði barnarúm, sængurfatnað og fleiri nauðsynjar til fátækra fjölskyldna. Boðið var upp á ljósböð fyrir börn með langvarandi kvef, beinkröm og þau sem þrifust illa. Reykjavík var skipt í 3 hverfi og fékk hver hjúkr- unarkona vigt og leðurtösku til að hafa með sér í heimavitjanir. Skólaheilsugæslan á sér einnig langa sögu. Árið 1910 var fyrsti skólalæknirinn, Guðmundur Hannesson, ráðinn við Barnaskól- ann í Reykjavík til að fylgjast með heilsufari barna. Árið 1920 var síðan fyrsta skólahjúkrunar- konan ráðin, Guðný Jónsdóttir, ásamt fyrsta skólatannlækn- inum og fyrsta skóla- augnlækninum. Helstu vandamál skólabarna á þessum tímum voru næringarskortur, berklar og almenn fá- tækt vegna kreppu. Heilsuverndin fólst fyrst og fremst í matar- gjöfum og hreinlæt- isuppeldi. Börnin fengu lýsi í skólanum og þau sem á þurftu að halda að mati læknis fengu ljós- böð. Á þessum rúmum 100 árum hafa aðstæður og tíðarandi breyst. Hjúkrun hefur þróast af miklum metnaði en tilvistin sem fagið byggir á er ávallt sú sama. Tilvistin að standa nærri náunganum, efla heilsu hans og fyrirbyggja sjúkdóma. Þessi tilvist er sérstaklega sterk í heilsu- gæsluhjúkrun. Að vera hluti af nær- samfélaginu, fylgja þar fólki frá vöggu til grafar, taka þátt í sorgum þess, gleði og sögu. Vera talsmaður heilsu í samfélaginu og hafa áhrif á samfélagið, í því felst heilsugæslu- hjúkrun. Hjúkrun innan heilsugæslunnar mun halda áfram að takast á við nýj- ar áskoranir á hverjum degi. Við horfum til framtíðar með virði hjúkrunar að leiðarljósi. Sýn og vilji munu finna veg og vegferð fyrir það sem við teljum vera mikils virði. Sögulegar heimildir: Bergljót Líndal, 2016. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur 1953-2006 Nýjar áskoranir á hverjum degi Eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir » Í dag eru 200 ár frá fæðingu Florence Nightingale. Til hamingju með dag- inn, kæru hjúkrunar- fræðingar og ljósmæður heilsugæslunnar. Höfundur er framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins. Fyrir um þremur áratugum hrundi kommúnisminn í Aust- ur-Evrópu enda engar efnahagslegar for- sendur fyrir honum lengur. Nú stendur kapítalisminn gagn- vart hliðstæðum örlög- um. Í höfuðlandi kap- ítalismans, Bandaríkjum Norður- Ameríku, er nú svo komið að pestin hefur lagt gjörvalla byggðina í dróma og er staðan þannig að heil- brigðiskerfið er allt að því handónýtt nema gagnvart því 1% þjóð- arinnar sem hefur efni á því að leita sér heil- brigðisþjónustu. Allir aðrir sjá fram á gjald- þrot þurfi þeir á dýrri heilbrigðisþjónustu á að halda enda hefur lítil áhersla verið lögð á samfélagslega ábyrgð Bandaríkja- manna í uppbyggingu góðs og trausts heil- brigðiskerfis á vegum hins opin- bera. Að þessu leyti standa sjúkrahús og heilbrigðiskerfið mun betur í Norður- og Mið-Evrópu. Í þeim löndum standa heilbrigðisstofnanir opnar öllum þjóðfélagsþegnum án tillits til efnahags. Að halda úti góðu opinberu heilbrigðiskerfi hef- ur reynst nokkuð dýrt, mjög mis- jafnt eftir löndum. Einhvers staðar milli 5 og 15% ríkisútgjalda. En hvað er einna dýrast í opin- berum rekstri meðal þegna BNA? Ætli það sé ekki bandaríski herinn sem tekur um 20% af öllum ríkisút- gjöldum BNA. Ekkert þróunarland leggur jafnmikla áherslu á hernað með tilheyrandi kostnaði og BNA. Það er helst að líta til olíufram- leiðslulanda eins og Sádi-Arabíu þar sem þarlend stjórnvöld eru nánast áskrifendur að nýjusta her- gagnaframleiðslu BNA og annarra ríkja. Þegar Dwight Eisenhover lét af embætti 35. forseta BNA 21. janúar 1961 varaði hann bandarísku þjóð- ina við ofurvaldi hergagnaiðnaðar- ins og óhóflegum fjárframlögum BNA til hernaðarmála í kveðjuræðu í Hvíta húsinu. Þetta eru mjög áhugaverð sjónarmið þar sem hern- aður hafði verið hans aðalatvinna, þekktastur sem yfirhershöfðingi BNA í Evrópu í seinni heimsstyrj- öldinni. Eiginlega var hann enginn sérstakur herforingi í strategt- ískum herstjórnarfræðum en hann var einkar laginn við að skipuleggja allar birgðaflutningaleiðir þannig að allir hermenn BNA gátu verið bar- dagafærir, nægur matarforði, her- gögn og varnarbúnaður. Því miður áttu Bandaríkjamenn eftir að horfa upp á meiri dýrkun hergagna með sívaxandi þátttöku sinni í Víetnam- stríðinu sem var Bandaríkjunum til mikils vansa. Hergagnaiðnaðurinn hafði forseta BNA meira og minna í vasanum eftir forsetatíð Kennedy, sem hafði meiri áhuga fyrir fögrum konum en kjarnorkuvopnum og öðrum hertólum. Spurning er hversu mikil áhrif þessi heimspest hafi á samfélög heimsins. Ljóst er að forsendur kapítalismans eru brostnar rétt eins og kommúnismans áður. Nú reynir meira á samvinnu allra frem- ur en frumkvæði einstaklingsins að skara að eigin hagsmunum. Ef kap- ítalisminn á sér framtíð verður hann að aðlagast raunveruleikanum en byggja ekki tilveru sína einungis á stundargróða m.a. með hergagna- framleiðslu. Því er óskandi að upp- gangur hergagnaiðnaðar verði stöðvaður með þessum heimsfar- aldri enda þarf að nýta hráefni, fjármuni og orku betur og þá til hagsbóta fyrir mannkynið. Er kapítalisminn að líða undir lok? Eftir Guðjón Jensson » Ljóst er að for- sendur kapítalism- ans eru brostnar rétt eins og komm- únismans áður. Guðjón Jensson Höfundur er eldri borgari og leið- sögumaður búsettur í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.