Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Dómstólar fundu það upp fyrirfáeinum árum að tilteknar stéttir, einkum þó lögfræðingar, ættu eins konar síðbúinn fæð- ingarrétt á því að fá störf hjá hinu opinbera og ættu þeir að fá miskabætur frá al- menningi fengju þeir ekki þau störf sem þeim hugnað- ist.    Þetta hefurgengið svo langt að sumir úr þeirri stétt sækja um öll störf sem losna og þeir gætu hugsanlega fallið undir og eru þá í raun að sækja um miskabæturnar.    Páll Magnússon alþingismaðurbendir á þetta og fleira:    Mér sýnist Hæstiréttur aðal-lega vilja vera að dunda sér í einhverjum innansveitarkrón- íkum lögfræðinga.    Meiðyrðamáli eins hæsta-réttardómara gegn öðrum – fyrrverandi – hæstaréttardómara; kærumálum um ávítur inni í Lög- mannafélaginu og nú þetta: lög- fræðingar sem vilja fá meiri pen- inga frá almenningi fyrir að fá ekki störfin sem þeim fannst þeir eiga að fá þegar þeir vildu fá þau.    Hafa þessi mál svona gríðar-lega almenna þýðingu og fordæmisgildi – eða finnst hæsta- réttardómurunum bara skemmti- legra að fjalla um mál sem varða aðra lögfræðinga en önnur og mikilvægari?    Er hið nýja hlutverk Hæsta-réttar að standa í þessu?“ Er nema von að spurt sé? Páll Magnússon Karl prins ekki einn um sinn rétt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tvö tilboð bárust í dráttarbátinn Jötun sem Faxa- flóahafnir auglýstu til sölu nýlega. Nýr og öflugur dráttarbátur, Magni, bættist nýlega við í flotann og því var ekki lengur þörf fyrir Jötun. Hafnarsjóður Þorlákshafnar átti hærra boðið, 220,5 milljónir. Hafnarfjarðarhöfn bauð 202 millj- ónir. Hafnarstjórn samþykkti á fundi sínum á föstudaginn að fela Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að ganga til samninga við hæstbjóðanda. Jötunn er tæplega 100 tonna stálbátur sem smíðaður var í Hollandi árið 2008. Hann hefur 27,8 tonna togkraft. Nú þjónar dráttarbáturinn Ölver höfninni í Þorlákshöfn, en hann er rúmlega 40 tonn og með 14 tonna togkraft. Hann er úr stáli, smíðaður í Hollandi 2002 fyrir Faxaflóahafnir og hét þá Jötunn. Hann var seldur hafnarsjóði Þor- lákshafnar í september 2007 og fékk sem fyrr seg- ir nafnið Ölver. Nú er Jötunn sem sagt að fara til Þorlákshafnar á ný. Vegna stóraukinnar umferðar vöruflutningaskipa til Þorlákshafnar var talin þörf á öflugri dráttarbáti. Auglýst var eftir tilboðum í notaðan bát. Þrjú tilboð bárust, öll nýsmíði. Var þeim öllum hafnað. sisi@mbl.is Jötunn fer til Þorlákshafnar  Bátur með sama nafni til Þorlákshafnar 2007 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jötunn Báturinn fær bráðlega nýja heimahöfn. Heiti sækonunga í þulum Snorra- Eddu verða notuð sem nöfn á nýj- um götum í Bryggjuhverfi við Elliðaárvog. Þetta er tillaga nafna- nefndar Reykjavíkur, sem hefur verið samþykkt. Umræddar götur, sem eru á svæði 1, munu heita Beimabryggja, Buðlabryggja, Endilsbryggja, Gjúkabryggja og Leifnisbryggja. Jafnframt hefur verið lagt fram erindi nafnanefndar þar sem gerð er tillaga að nöfnum gatna á svæði 2 í Elliðaárvogi. Göturnar þar munu heita: Ála- bryggja, Eitilsbryggja, Gautreks- bryggja, Geitisbryggja, Haka- bryggja, Högnabryggja, Lyngva- bryggja, Mundilsbryggja og Rökkvabryggja. Í nafnanefndinni sitja Ármann Jakobsson, Ásrún Kristjánsdóttir, Guðrún Kvaran og Nikulás Úlfar Másson. Að þessu sinni hittist nefndin ekki á fundi heldur fóru samskiptin fram með tölvupóstum vegna COVID-19-faraldursins. sisi@mbl.is Nýjar götur nefndar eftir sækonungum Morgunblaðið/Ófeigur Bryggjuhverfið Fleiri götur munu bætast við í hverfinu á næstu árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.