Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Regnbogagatan í Norðurgötunni er eitt þekktasta kenni- leitið í kaupstaðnum. Vinsældirnar aukast stöðugt og myndir birtast í þekktum ferðatímaritum um allan heim. Ferða- fólk, sem kemur í þúsundatali til Seyðisfjarðar, lætur taka myndir af sér í götunni. Bláa kirkjan, sem er við norðurenda götunnar, hefur einn- ig fengið mikla umfjöllun enda þekkt m.a. fyrir sínar árlegu sumartónleikaraðir. Pör og brúð- hjón víða að sækjast eftir að gifta sig þar og eru þá kirkjan og gat- an umgjörðin sem sótt er í. Fyrir kemur á vetrum að moka þarf snjó burt svo að sjá megi í sjálfa götuna þar sem brúðhjónin stilla sér svo upp og skarta sínu feg- ursta til myndatöku. En hvert er þá upphafið og af hverju hefur þessi gata, með gömlum brotnum máluðum gangstéttarhellum orðið svona vinsæl og þekkt? Það mun hafa verið snemma á níunda áratug síðustu aldar að vinnu vantaði tímabundið fyrir verkamenn í áhaldahúsi bæjarins Til að bæta úr því voru keypt notuð gangstéttarhellusteypumót hjá þeim í efra á Héraði. Stefnt var á að tveir til þrír verkamenn ynnu við að steypa hellur í verk- efnaleysi að vetrinum. Efni í hell- urnar var að mestu sótt í lónið, sem á þeim tíma tók við mest- öllum úrgangi bæjarbúa, lausum og föstum, sem til féll á leið sinni út fjörðinn til sjávar. Hellur voru steyptar í að minnsta kosti tvo vetur í helluhúsinu á Haföldunni sem enn stendur. Ekki reyndist mikil eftirspurn eftir hellum þessum. Gekk því lítið hjá bæn- um að koma þeim út, jafnvel þótt gefins væru. Þær þóttu illa standast mál, vera ósléttar og brothættar. Engar sögur eru til um að þær hafi verið illa lykt- andi. Allnokkurt magn af þessum hellum hlóðst því upp við helluhúsið og sátu þær þar sem fastast í nokkur ár. Haft er fyrir satt að þær megi þó víða finna í görðum og gróður- húsum í kaup- staðnum. Lónsleiru- hellurnar kallaði einn starfsmaður áhalda- hússins þessa afurð þeirra félaga. Um miðjan tíunda áratuginn, skömmu fyrir 100 ára kaupstaðarafmælið, var ákveðið að gera Norðurgötuna að vist/ göngugötu. Miðja hennar var grafin upp frá enda til enda, fyllt upp, þjöppuð vel og búin undir hellulögn. Lónsleiruhellurnar voru enn á sínum stað við hellu- húsið. Það þótti því tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi; leggja þær í göngugötuna og spara með því skattpeninga bæjarbúa. Það var gert. Í götuna fóru hellurnar og hafa setið þar síðan. Fljótlega fór að bera á því að þeir sem við götuna bjuggu og aðrir virtu ekki friðhelgi gangandi umferðar. Ökutækjum var ekið inn í götuna báðum megin frá. Hellurnar brugðust þannig við þessum óboðna átroðningi að þær létu margar undan þunganum, brotn- uðu, sigu og gliðnuðu í sundur. Brotnar línur og mynstur komu víða fram í hrjúfu yfirborðinu. Settur var upp hestasteinn mikill og traustur við suðurenda göt- unnar, skammt frá Restaurant Frú Láru/El Grillo, til að hefta innkeyrslu í götuna þeim megin frá. Engin miskunn. Steinninn hvarf eina nóttina. Honum var stolið. Brotnu hellunum fjölgaði því hægt og rólega með árunum. Af og til kom til tals að taka göt- una upp, laga og leggja nýjar hellur. Allt slíkt tal var jafn- harðan snarlega þaggað niður. „Á Seyðisfirði um nótt – léttir á fæti – máluðu nokkrir strákar Regnbogans stræti,“ segir í text- anum hans Bubba. Hinsegin dag- ar hafa verið haldnir í kaup- staðnum með skrúðgöngum í nokkur ár. Aðstandendur hennar hafa frá upphafi haft skemmti- legar uppákomur í götunni. Þeir máluðu hana í regnbogalitunum sem tákn dagsins Nágrannar hafa nú tekið við árlegri málun og heyrst hefur að til standi að friða götuna og fá hana skráða á heimsminjaskrá. Sagt er að sum- arið sé komið í fjörðinn þegar regnbogans litir eru komnir á sinn stað. Lónsleiruhellurnar eru því komnar til að vera og prýða því áfram Regnbogans stræti. P.s.: Stutt er síðan, eða í vetur sem leið, að erlent par/brúðhjón á leið til Seyðisfjarðar yfir Fjarðarheiði lentu í hremmingum miklum á leið til myndatöku í Regnbogagötunni. Fjarðarheiði var kolófær, mikil blinda og snjó- koma. Uppábúin festu þau bíl sinn í norðurfjallinu Egilsstaða- megin. Snjóblásarinn hafði gefist upp við snjómokstur neðar í fjall- inu, slík var ófærðin. Bílstjórinn skildi því blásarann eftir. Fór hann í Egilsstaði og beið þar fær- is. Þegar veður lægði fór hann upp eftir að skoða aðstæður. Heldur brá honum í brún er hann ætlaði að stíga um borð í snjó- blásarann er þar sat maður inni, uppáklæddur vel í brúðarskarti. Þar var brúðguminn illa kaldur. Hann hafði snúið til baka fót- gangandi niður fjallið og fann sér skjól um borð í snjóblásaranum. Brúðarmærin sat hins vegar og beið í bíl þeirra ofar í heiðinni. Til að gera langa sögu stutta fóru þeir félagar á blásaranum, sóttu brúðina og saman sneru þau öll til baka í Egilsstaði. Hellurnar í Regnboga- götunni á Seyðisfirði Eftir Þorvald Jóhannsson »Engar sögur eru til um að þær hafi verið illa lyktandi. En spurt er: Hvaðan koma þær, hverjar eru þær, hvert fara þær? Þorvaldur Jóhannsson Höfundur er fv. bæjarstjóri og nú eldri borgari á Seyðisfirði. brattahlid10@simnet.is Vágesturinn kór- ónuveiran flæddi inn í landið í mars og gjör- breytti lífi starfsfólks og íbúa á hjúkrunar- heimilum. Þangað vildu menn ekki fá vá- gestinn, þar sem há- aldraðir íbúarnir búa við fjölþættan heilsu- farsvanda og færnis- skerðingu. Kraftur þeirra til að berjast gegn Covid er viðkvæmari en ella og aðbúnaður hjúkrunarheimila mismunandi til að viðhafa sóttvarnir sem skyldi, sér- staklega þar sem þarf að deila sam- an herbergi og salernisaðstöðu. Starfsfólk tók niður giftingar- hringinn í bókstaflegri merkingu, og líf þess snerist um að verja íbúana á hjúkrunarheimilunum. Fjölskyldur starfsfólks tóku við heimilishaldi, sáu um útréttingar og sumir makar breyttu eigin vinnu- tilhögun til að sjá til þess að sá sem vann á hjúkrunarheimilinu gæti umgengist sem fæsta utan vinnu. Starfsfólk hitti jafnvel ekki börn sín eða barnabörn, það fór í sjálfskip- aða sóttkví milli þess sem það stóð vaktina. Fjöldi starfsfólks var skip- aður í sóttkví heima hjá sér strax í upphafi, flest vegna þess að það var að koma úr vetrar- fríum erlendis. Þá vantaði starfsfólk á hjúkrunarheimilin, starfsemin var mun viðkvæmari en ella og ekki varð það betra þegar heimsóknabann hafði verið sett á 6. mars. Mörgum íbúum varð um og ó, enda samvera með fjöl- skyldu það dýrmætasta í lífinu. Reyndi þá enn frekar á starfsfólk að hlúa sem best að þeim og umvefja ásamt því að hjúkra, líkna, þjálfa og hjálpa til við umönnun tengda at- höfnum daglegs lífs allan sólar- hringinn. Bjargvættir komu, bakvarða- sveitir mynduðust úr hópi fyrrver- andi starfsmanna og nemenda sem höfðu ráðið sig til sumarstarfa. Stjórnendur og starfsfólk hjúkr- unarheimila breyttu verkferlum, endurskipulögðu vaktaáætlanir og skipulögðu sóttvarnarhólf eftir að- stæðum á hverjum stað. Heil- brigðisstarfsfólk yfirfór sýkinga- varnaráætlanir og undirbjó upp- setningu á Covid-stofu/deild þar sem því varð viðkomið. Stöðug kennsla fór fram, gerð voru mynd- bönd og haldnir fjarfundir innan heimilanna. Víða var hægt að sjón- varpa eða útvarpa efni og nota samskiptaforrit til að deila þekk- ingu og æft var að klæða sig í og úr sérhæfðum hlífðarbúnaði. Starfs- fólk í eldhúsum endurskipulagði verkferla og ræstingarfólk sótt- hreinsaði og sprittaði sem aldrei fyrr. Engir ættingjar fengu að koma í heimsókn nema í undantekningar- tilvikum. Reyndi það mikið á ætt- ingja og jukust samskipti hjúkr- unarfræðinga í síma til að gefa upplýsingar um heilsufar og líðan. Samskipti milli íbúa og ættingja fóru gegnum spjaldtölvur og síma þar sem það var hægt og hjálpaði það töluvert. Þá fóru að greinast smit hjá starfsfólki eða ættingjum þeirra. Flest af þeim höfðu verið í hópi þeirra sem sett voru í sóttkví í upp- hafi, og það endaði síðan með smiti hjá sumum. Í hvert skipti sem grunur var um smit hjá starfs- manni var beðið með öndina í háls- inum og vonað að það reyndist nei- kvætt. Ef það var jákvætt fór smitrakning í gang og sum hjúkr- unarheimili þurftu að setja upp sóttkví hjá fjölda íbúa. Fleiri starfs- menn voru þá sendir heim í sóttkví. Aðrir starfsmenn settir inn í stað- inn, sóttvarnahólfið einangrað í 14 daga með tilheyrandi sóttvarnabún- aði og forvörnum. Fylgst var grannt með því hvort smit var í uppsiglingu hjá íbúum sem voru í sóttkví og sýni tekin. Sem betur fer greindust ekki smit hjá íbúum enn sem komið er nema á einu heimili í Bolungarvík. Þar hefur starfsfólk staðið sig mjög vel í að takmarka alvarlegar afleiðingar sýkingar- innar. Á þessum tíma hafa dunið yfir Íslendinga fréttir af mannfalli hjá íbúum hjúkrunarheimila erlendis, allt að 30-50% ef smit hefur náð að festa rætur. Þakka má samstilltu átaki starfsfólks hjúkrunarheimila á Íslandi og samvinnu þess við íbúa og ættingja þeirra hvernig til hefur tekist hér á landi enn sem komið er. Íbúar hafa sýnt æðruleysi og þakklæti og stappað stálið í ætt- ingja sína með því að bera sig vel. Stuðningur sóttvarnayfirvalda við tillögu Samtaka fyrirtækja í vel- ferðarþjónustu við að koma á fót starfshópi til að gera Leiðbeiningar til dagdvala og hjúkrunarheimila vegna Covid hefur reynst ómetan- legur. Íris Marelsdóttir, verkefnis- stjóri hjá Embætti landlæknis, hef- ur haldið vel utan um þetta krefjandi verkefni og haldnir hafa verið fjarfundir vikulega þar sem starfsfólk hjúkrunarheimila og dagdvala hefur haft aðgang. Fagráð hjúkrunar innan Samtaka fyrir- tækja í velferðarþjónustu hefur reglulega haft samráð um mál sem komið hafa upp hér og hvar á land- inu og deilt ráðum sín á milli. Þann- ig hefur skýr upplýsingagjöf, skipu- lögð samræmd vinnubrögð þar sem allir eru í sama liðinu styrkt starfið á vettvangi og skilað ríkulegum ár- angri. Starfsfólk hjúkrunarheimila hef- ur staðið sig afburðavel á þessum erfiðu og krefjandi tímum, helgað sig framlínustörfum í heilbrigðis- þjónusta svo eftir er tekið víða um heim. Það og fjölskyldur þess eiga mikið þakklæti skilið fyrir þá virð- ingu sem það hefur sýnt með þátt- töku sinni í að starfsfólk heilbrigð- isþjónustunnar hafi getað helgað sig íbúum þegar mest á reyndi. Nú birtir til og hringarnir verða settir upp á ný. Mikilvægt er að við öll höldum þolinmóð áfram vöku okkar. Tóku niður hringana og helguðu sig starfinu Eftir Önnu Birnu Jensdóttur Anna Birna Jensdóttir » Starfsfólk hjúkr- unarheimila hefur staðið sig afburðavel, helgað sig framlínu- störfum í heilbrigðis- þjónustu svo eftir er tekið víða um heim. Höfundur er formaður Fagráðs hjúkrunar innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og fram- kvæmdastjóri Sóltúns. annabirna@soltun.is Hvað tekur við að sigri loknum á þessari veiru? Það verður margt breytt í þjóð- félagi okkar og margs að gæta við uppbygg- ingu þjóðfélagsins á komandi árum. Mig langar til að benda á nokkur atriði sem ég tel verða að vera í forgangi þegar ríkisvaldið fer að deila fjármunum (sameignarsjóði þjóðar- innar) út í þjóðfélagið til endur- reisnar og uppbyggingar á ný. Fyrst af öllu á ríkið að stórefla fjárframlög til heilbrigðiskerfisins þannig að öll heilsugæsla verði á höndum þess, ekki aðeins sérhæfð- ustu læknisstörf á háskólasjúkra- húsum, heldur einnig til allrar ann- arrar heilsugæslu, heimilislækna, barnalækna, geðlækna, öldrunar- lækna og annarra sérhæfðra lækna. Þetta þarf að vera þannig að hvert heilsugæsluumdæmi á landinu hafi heimild til að hafa alla skilgreinda sérfræðilækna innan síns umdæmis. Vilji læknar og annað heilsugæslu- fólk starfa utan ríkisrekna heil- brigðiskerfisins þá er það á eigin forsendum og á engar kröfur á ríkisvaldið svipað og er um aðra sjálfstæða atvinnurekendur. Annað sem ég vil benda á þegar farið verður að úthluta fjármunum úr ríkissjóði (sameignarsjóði þjóð- arinnar) að vanda þar vel til verka. Tryggt verði að Atvinnumálastofn- un fái alltaf nægilegt fjármagn til atvinnuleysisbóta, þannig að allir hafi til hnífs og skeiðar, og að bætur til allra bótaþega verði þær sömu óháð mismunandi tekjumissi. Þriðja atriðið er vandamest og veldur efalaust mestum deilum um styrki til atvinnugreina. Þar er fremst í flokki ferðamannavett- vangurinn. Það er öruggt að ferða- mannastraumur á milli landa verður á næstu árum mikið minni en hann var á síðustu ár- um vegna áhrifa kór- ónuveirufaraldursins. Þess vegna tel ég óráð- legt að setja fé í at- vinnugrein sem á enga möguleika til sjálfbærs reksturs í náinni fram- tíð. Kyrrstæðar rútur eða auð hótelherbergi þurfa enga peninga. Besta nýting þess fjármagns sem eftir verður þegar búið er að tryggja fjármagn til þeirra tveggja þátta er að framan greinir er mann- aflafrekar framkvæmdir. Mannaflafrekar framkvæmdir eru t.d. að allt sjávarfang tekið úr ísenskri lögsögu skuli fullunnið á Ís- landi (fjöldi fiskvinnslustöðva er illa nýttur, t.d. á Akranesi og víðar). Og garðyrkjuframkvæmdir, t.d. með því að skylda Landsvirkjun til að láta þær hafa raforku (ljósorku) á því verði að hægt væri að framleiða hér á landi allar tegundir græn- metis. Allt eru þetta efnislegir þættir, grunnþættir lífs í hverju þjóðfélagi til sjálfbærni. Huglægir þættir sem ég kalla svo eru t.d. lögfræði, við- skiptafræði o.fl. sem skila engu brauði til borðs. Að sjálfsögðu eru öll nútímavædd þjóðfélög flóknari en svo að hægt sé komast hjá þjónustugeiranum, en hann má aldrei vera ráðandi í þjóð- félaginu. Framtíðin Eftir Hafstein Sigurbjörnsson »Um tillögur við út- hlutun fjármagns ríkisins til uppbygg- ingar eftir faraldurinn Hafsteinn Sigurbjörnsson Höfundur er eldri borgari. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.