Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 SAMNINGAR VIÐ ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is Hægt er að bóka tjónaskoðun hj LÁTTU OKKUR UM MÁLIÐ • BÍLARÉTTINGAR • PLASTVIÐGERÐIR • SPRAUTUN á okkur á net n • Fagleg þjónusta • Vönduð vinnubrögð • Frítt tjónamat HSRETTING.IS 547 0330 SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég sendi borgarstjóra bréfið og ræddi við hann í síma. Hann tók já- kvætt í erindi mitt og sagðist myndu láta sitt fólk fara yfir það,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, í samtali við Morg- unblaðið og vísar í máli sínu til bréfs, dagsett 7. maí, sem sent var Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Í bréfinu mótmælir Ásgerður fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar fram- kvæmdum Reykjavíkurborgar á Geirsgötu í miðbænum. En eins og greint hefur verið frá hér í Morgun- blaðinu er þar verið að setja upp nýja stoppistöð Strætó og verður hún án útskots. Þetta veldur því að strætis- vagnar munu þurfa að stoppa á miðri akbraut til að hleypa farþegum sínum inn og út úr vagninum, með fyrir- séðum töfum á umferð. Ásgerður segir framkvæmdir þessar ekki í samræmi við samkomulag Reykja- víkurborgar og Seltjarnarness um skipulag svæðisins, sem undirritað var 12. nóvember 2013, þar sem þær þrengi að umferð að Seltjarnarnesi. Hindrar eðlilegan akstur „Samkomulagið var gert í tengslum við að Seltjarnarnesbær féllst á niðurfellingu Holtsgangna úr svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis- ins, en þeim hafði verið ætlað að auð- velda umferð gegnum miðbæinn og Þingholtin. Var á breytinguna fallist fyrir mjög eindregna ósk Reykja- víkurborgar því bæjaryfirvöld á Sel- tjarnarnesi höfðu þá um nokkurt skeið ítrekað lýst áhyggjum af þróun samgöngumála vesturhluta höfuð- borgarsvæðisins til framtíðar litið og lagt áherslu á að tryggð verði bæði hversdagslega og í hugsanlegum neyðartilvikum greið og örugg um- ferð bifreiða um borgarhlutana, enda sé það jafnt í þágu íbúa á Seltjarn- arnesi og í Reykjavík,“ segir í bréfi til borgarstjóra sem Morgunblaðið hef- ur undir höndum. Bent er á í bréfinu að þótt ekki sé ráðgerð niðurfelling akreinar á Geirsgötu í bókstaflegri merkingu sé „fullljóst að reglubundnar stöðvanir strætisvagna með tilheyrandi bið eft- ir að farþegar fari í og út úr vögnum mun koma í veg fyrir eðlilegan akstur um götuna sem nú þegar er iðulega þungur“. Mun stoppistöðin, að mati Seltjarnarnesbæjar, valda svo mikilli truflun að það samrýmist engan veg- inn tilgangi og texta samkomulagsins og þeim skuldbindingum sem Reykjavíkurborg tók á sig með gerð þess. Er því óskað eftir því að núver- andi framkvæmd verði endurskoðuð og/eða horfið með öllu frá biðstöð strætisvagna á þessum stað. „Við erum með skýr markmið“ Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs, segir stoppistöð ekki vera eitt af „stóru málunum“ um þessar mundir. „Við hljótum að geta leyst úr þessu. Það eru sameiginlegir hags- munir sveitarfélaga að breyta ferða- venjum og skapa góða aðstöðu fyrir hjólandi og almenningssamgöngur. [...] Þetta er ekki stórt mál, hér er verið að gera úlfalda úr mýflugu. Að strætó stoppi í örskamma stund get- ur ekki verið eitt af stóru málunum í samfélagi okkar,“ segir hún. Spurð hvort framkvæmdin sé brot á samkomulagi milli sveitarfélaganna segir Sigurborg Ósk þörf á að kanna það. „Þetta er ekki þrenging, það er í raun verið að bæta flæði og bæta flutningsgetu með því að hafa tvö- faldan hjólreiðastíg eftir Miðbakkan- um. Þó að einkabíllinn þurfi að stoppa í örskamma stund er það fullkomlega sjálfsagður hlutur.“ Komi aftur á móti í ljós að fram- kvæmdin sé brot á samkomulaginu segir Sigurborg Ósk sveitarfélögin þá þurfa að ræða lausnir. „Við erum með skýr markmið um hvað við viljum gera og hverju við viljum ná fram. Við teljum okkur vera að gera það með framkvæmdinni eins og hún er,“ segir hún. Nánar má lesa um þetta mál á mbl.is í vefútgáfu Morgunblaðsins. Hindrar eðlilegan akstur  Borgarstjóri fékk fyrir helgi mótmælabréf vegna framkvæmdar við Geirsgötu  Verið að gera úlfalda úr mýflugu, segir formaður skipulags- og samgönguráðs Morgunblaðið/Árni Sæberg Ágreiningur Seltjarnarnes vill að Reykjavíkurborg breyti framkvæmdinni án tafar og segir hana samningsbrot. Ásgerður Halldórsdóttir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Skannaðu kóðann til að lesa meira um þetta á mbl.is „Samningurinn byggist á lífskjara- samningnum sem Samband ís- lenskra sveitarfélaga hefur gert við 47 stéttarfélög með 7.000 félags- menn, en það er farið inn í lægstu tekjuhópana og þeir hækkaðir að- eins umfram hina, enda held ég að það sé sátt í samfélaginu um að leggja sérstaklega á þá tekjuhópa sem verst eru settir,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópa- vogi. Skrifað var undir kjarasamning Eflingar og samninganefndar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga undir miðnætti á sunnudagskvöld. Þar með var verkfalli um 270 félags- manna sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Ölfusi aflýst. Verkfallið hafði staðið frá 5. maí. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, tekur undir orð bæjarstjórans. „Við erum auðvitað mjög ánægð með að hafa náð þessari lendingu og að verkföll skuli hafa verið blásin af. Það er auðvitað gott og ég vona bara að allir geti gengið sáttir frá þessu borði.“ „Þetta var frábær stund fyrir okk- ur í samninganefndinni þegar við skrifuðum undir,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í gær. „Auðvitað er það mikill léttir fyrir fólk. Við þurftum náttúrlega að fara tvisvar í verkfall og það er ekkert grín,“ segir Sólveig Anna. „Fólk var ótrúlega einbeitt og staðfast og eina ferðina enn sjáum við að það sem skilar árangri fyrir láglaunafólk – að mestu leyti láglaunakonur – er að fara fram með samstöðuna að vopni.“ Samningur Eflingar og SÍS er afturvirkur til 1. janúar, auk þess sem félagsfólk fær sérstaka auka- greiðslu. Samningurinn gildir fram í mars 2023 en niðurstaða atkvæða- greiðslu um hann verður að vera komin fram 23. maí. Telur sátt um að hækka lægstu laun  Ánægja með kjarasamning Eflingar Sólveig Anna Jónsdóttir Ármann Kr. Ólafsson Erlendir gestir afbóka seint gistingu í smáhýsunum á tjaldsvæðinu á Höfn í Hornafirði. Enn er mikið bókað í júlí og ágúst. Framkvæmdastjórinn dregur þá ályktun að gestirnir séu til- búnir að nýta þjónustuna um leið og þeir komast til landsins. Þjónustumiðstöð SKG er með ell- efu smáhýsi og rekur tjaldsvæðið. Smáhýsin hafa verið vel nýtt síðustu árin og erlendir gestir hafa pantað stóran hluta þeirra fyrirfram. Vel var bókað fyrir sumarið og margir bókuðu í janúar og febrúar og fram í mars. Það eru mest Evrópu- búar. Tryggvi Árnason, sem annast reksturinn, segir að fólk bíði í lengstu lög með að afbóka. Enn séu bókanir í húsin síðustu níu dagana í maí og þótt búið sé að afpanta einhverjar nætur fyrrihluta júnímánaðar sé vel bókað í mánuðinum og enn frekar í júlí og ágúst. Þá er enn verið að bóka eitt og eitt hús í sumar. Vonast eftir ágætis ferðasumri „Þetta segir manni að gestirnir eru að verða svartsýnir á að komast hing- að í maí og fyrrihluta júní. Þetta gef- ur manni einnig vísbendingar um að fólkið sé til í að koma um leið og hægt verður að ferðast,“ segir Tryggvi og segist bjartsýnn á ágætis ferðasumar um leið og opnast fyrir ferðir. Segist hann ekki sjá annað en hægt verði að bjóða eitthvert flug undir lok júní eða í byrjun júlí. helgi@mbl.is Ljósmynd/Aðsend Smáhýsi Eigendur vonast eftir góðu ferðasumri, þrátt fyrir allt. Koma um leið og opnast  Enn mikið bókað í smáhýsin á Höfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.