Morgunblaðið - 12.05.2020, Page 10

Morgunblaðið - 12.05.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Ranglega var sagt í myndatexta á forsíðu blaðsins í gær að krakkarnir hefðu verið að busla í sundlauginni í Reykjafirði í Árneshreppi. Hið rétta er að sundlaugin er í Reykjafirði inn af Arnarfirði í Norður-Ísafjarðar- sýslu. Beðist er velvirðingar á rang- herminu. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Leikur Krakkar hoppuðu í laugina í Reykjafirði inn af Arnarfirði. Sundlaugin í Reykja- firði í Arnarfirði LEIÐRÉTT Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mörg fyrirtæki, sem svigrúm hafa, hafa gert vel við sitt fólk til að þakka því vel unnin störf að undan- förnu, undir miklu álagi af völdum kórónuveirunnar. Hjá Krónunni fær allt starfsfólk gjafabréf sem hægt er að nýta hvar og hvenær sem er. Upp- hæðin, sem hæst getur orðið 50 þúsund krónur, miðast við starfs- hlutfall hvers og eins. „Þá fá allir gjafaöskju í byrj- un júní í tengslum við rafrænt partí sem ver- ið er að undirbúa. Við ætlum einnig að gefa starfsmönnum Krónunnar aukinn afslátt í lok hvers mánaðar. Við er- um meðvituð um að álag undanfarinna mánaða get- ur hafa tekið sinn toll og höfum því tekið ákvörðun um að bjóða starfsfólki okkar upp á sálfræðiþjón- ustu,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. „Fólkið okkar hefur staðið vaktina undir gríðarlegri pressu, bæði hefur verið mikið að gera við hefðbundin störf og þá lögðum við einnig mikla áherslu á sóttvarnir til að vernda starfsfólk og viðskiptavini, sem krafist hafa mikils af fólkinu okkar. Við erum endalaust þakklát fyrir fólkið okkar og hversu vel það hefur staðið sig og stefnum á að halda veglegt starfsmannapartí um leið og Víðir hjá almannavörnum gefur okkur grænt ljós.“ Afsláttur og aukafrí Stjórn Samkaupa samþykkti þeg- ar kórónuveirufaraldurinn fór að láta á sér kræla að veita um 150 milljónir króna í aðgerðapakka til starfsfólks fyrirtækisins. Yfirskrift pakkans er Takk fyrir að standa vaktina. Í heild eru starfsmenn Samkaupa um 1.400 talsins og fá þeir viðbótarorlofsdag á launum, verulega aukinn afslátt af matvöru í verslunum fyrirtækisins, sjónvarps- áskrift í einn mánuð og fleira gott. Seinna hluti aðgerðapakkans kemur til framkvæmda nú í lok mánaðarins. Starfsmenn verða þá hvattir til að ferðast innanlands í sum- ar og fá meðal annars gjafabréf fyrir hótelgist- ingu, bílaleigubíl, á veit- ingastaði, leikrit eða aðra afþreyingu. Vörðu starfsfólk Lyfju Sem þakklætisvottur fyrir vel unnin störf á tímum kórónuveir- unnar var starfsfólki Lyfju boðið á rafræna tónleika með Páli Óskari sem vöktu lukku. Aukinheldur fékk starfsfólkið gjafabréf fyrir að standa vaktina, en upphæð þess er ekki gefin upp. „Mikið álag var á starfsfólki Lyfju vikurnar sem faraldurinn var í hámæli. Það var forgangsmál að verja starfsfólk okkar og tryggja að við gætum sinnt þjónustu við við- skiptavini okkar við þessar einstöku aðstæður. Við þurftum því að grípa til ýmissa öryggisráðstafana, svo sem hólfunar vakta og annars, sem kallaði á aukaálag og mikinn sveigj- anleika af hálfu starfsfólks, sem sýndi einstaka samstöðu og þraut- seigju á þessum erfiðu tímum og á mikið hrós skilið,“ segir Hildur Þór- isdóttir, mannauðsstjóri Lyfju, við Morgunblaðið. Rafrænt partí og gjafabréf til starfsfólksins  Þakka fyrir störf á veirutíma  Sálfræðiþjónusta fyrir Krónufólkið Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Nettó Mikið hefur verið að gera í matvöruverslunum að undanförnu. Miklar framkvæmdir standa yfir við húsið Bakkaveg 5 í Neskaupstað en þar var verslunin Nesbakki áður til húsa. Verið er að breyta húsinu og byggja við það til að hýsa skrifstofu- klasa og miðstöð nýsköpunar í Nes- kaupstað sem fengið hefur nafnið Múlinn – samvinnuhús. Gert er ráð fyrir að klasinn verði tekinn í notkun fyrir lok þessa árs. Örfá rými laus til útleigu Áhugi fyrir væntanlegum klasa reyndist mikill og nú eru einungis ör- fá rými laus til útleigu í Múlanum. Gert er ráð fyrir að Múlinn verði allt að 30 manna skapandi vinnustaður. Þau fyrirtæki og stofnanir sem þegar hafa tryggt sér húsnæði í Múl- anum eru: Matís, Náttúrustofa Austurlands, Austurbrú, Deloitte, Nox health, Trackwell, Advania, Rauði krossinn, Stapi lífeyrissjóður og Origo. Alls 930 fermetrar Rýmin sem fyrirtækin og stofnan- irnar taka á leigu eru misjafnlega stór eða allt frá litlum skrifstofurýmum til stærri rýma með rannsóknaaðstöðu. Þá eru í klasanum fundarherbergi, fundarsalur og sameiginlegt rými með eldhúsaðstöðu. Mögulegt verður fyrir einstaklinga sem sinna tíma- bundnum verkefnum að fá aðstöðu til starfa í klasanum. Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, SÚN, stofnaði félag um framkvæmdina en undirbúningur verkefnisins hefur tekið nokkur ár. SÚN festi kaup á Bakkavegi 5 árið 2019 og er það 630 fermetrar, en fljót- lega kom í ljós að þörf var á stærra húsnæði. Þá var tekin ákvörðun um að reisa 300 fermetra viðbyggingu við húsið og því verður Múlinn 930 fer- metrar þegar hann tekur til starfa. SÚN hefur þegar fengið úthlutaða lóð við húsið þannig að mögulegt verður að stækka það enn frekar í framtíð- inni ef þörf reynist á. Framkvæmda- stjóri félagsins er Guðmundur R. Gíslason. Austfirska arkitektafyrirtækið Grafít var fengið til að teikna og hanna klasann en Mannvit sá um fullnaðarhönnun. aij@mbl.is Múlinn – samvinnuhús Verslunin Nesbakki var áður til húsa þar sem klasinn tekur til starfa fyrir lok árs. Mörg fyrirtæki vildu aðstöðu í Múlanum  Miðstöð nýsköpunar í klasahúsi í Neskaupstað Gréta María Grétarsdóttir Skilyrði fyrir styrkveitingum til kennaranema í launuðu starfsnámi hafa nú verið rýmkuð og er náms- styrkur ekki lengur bundinn við skil lokaritgerðar eins og var. Styrkir ná nú til allra kennaranema á lokaári, óháð áherslum í námi þeirra. „Kennaranemar hafa nú val um að ljúka námi sínu án þess að skila stóru lokaverkefni, og geta fengið til þess styrk að ákveðnum skil- yrðum uppfylltum,“ segir í tilkynn- ingu, haft eftir Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Ný lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórn- enda sem gildi tóku í ársbyrjun breyta fyrirkomulagi kennaranáms þannig að frá næsta skólaári munu allir kenn- aranemar hafa val um að ljúka kennslurétt- indum með nýrri MT-gráðu sem felur ekki í sér 30 ECTS-eininga lokaverkefni. Þá geta nemendur sem hafa meistarapróf í faggrein og innritast í kennaranám einnig sótt um námsstyrk. Markmið styrksins er að fjölga kennurum, skapa hvata til þess að þeir útskrifist á tilsettum tíma og ráði sig til kennslustarfa, en fyrir- sjáanlegt er að fjölda kennara vanti til starfa á næstu árum. Eru þessar aðgerðir hluti af fjölþættum að- gerðum til að bregðast við því ástandi. Styrkurinn nemur allt að 800 þúsund krónum til nemenda í 120 eininga námi og greiðist fyrri hluti þeirrar upphæðar þegar staðfest- ing liggur fyrir um að nemandi hafi lokið 90 ECTS-einingum í meist- aranámi. Seinni helmingurinn kem- ur svo þegar nemandi hefur lokið námi. Nemendur sem hafa meist- arapróf í faggrein og innritast í 60 eininga kennaranám til að fá rétt- indi til kennslu geta sótt um styrk sem getur verið allt að 400 þúsund krónur. sbs@mbl.is Rýmka skilyrði styrkjanna  Vilja fleiri í kennaranám  Lokaverkefni þarf ekki Lilja Alfreðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.