Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020
Ten Points
24.990 kr.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Kvenfélagskonur úr Garðabæ komu
færandi hendi í slökkvistöðina á
Tunguhálsi á dögunum og færðu þar
Brunavarðafélagi Reykjavíkur
gjafabréf að andvirði 200 þúsund
króna. Vildu þær þannig sýna
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
mönnum þakklæti fyrir þeirra erfiðu
störf á tímum veirufaraldursins.
Það var Sigurbjörg Helena Jónas-
dóttir, formaður Kvenfélag Garða-
bæjar, sem afhenti Ara Haukssyni,
formanni Brunavarnafélagsins,
gjafabréfið góða. Viðstaddir afhend-
inguna voru fulltrúar kvenfélagsins
og nokkrir slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamenn. Að sjálfsögðu var
gætt að fjarlægð á milli fólks og þau
Helena og Ari settu á svið handa-
band.
Kvenfélagskonur úr Garða-
bæ komu færandi hendi
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Stefnt er að því að kosning utan
kjörfundar vegna forsetakosning-
anna 27. júní nk. geti hafist 23. maí.
Er þessi ákvörðun tekin í samræmi
við ráðleggingar almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra. Enn er
óvíst hvort forsetakosningarnar fara
fram því ef Guðni Th. Jóhannesson
verður einn í framboði telst hann
sjálfkjörinn. Frestur til að tilkynna
framboð er til 20. maí nk.
Dómsmálaráðuneytið fer með um-
sjón löggjafar og framkvæmd al-
mannakosninga á Íslandi, þar með
talið forsetakosninga. Framkvæmd
kosningar utan kjörfundar, ef til
kemur, mun fara fram með hefð-
bundnum hætti á Íslandi. Fram-
kvæmdin verður snúnari meðal Ís-
lendinga erlendis vegna
COVID-19-faraldursins en í mörg-
um löndum er enn í gildi útgöngu-
bann og kann svo að verða lengi enn.
„Fyrirkomulag utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu er bundið í lög og
ekki hafa verið lagðar til breytingar
sem heimila frávik frá hinni al-
mennu aðferð við utankjörfundar-
atkvæðagreiðsluna varðandi mögu-
legar kosningar í vor,“ segir Hafliði
Helgason, upplýsingafulltrúi dóms-
málaráðuneytisins.
Staða milli einstakra landa sé
mjög misjöfn og rétt að vekja at-
hygli á að þar sem hörðustu reglum
hefur verið beitt sé ekki ólíklegt að á
næstu vikum verði takmarkanir
rýmkaðar.
„Eins og margoft hefur komið
fram er núverandi ástand án for-
dæma og ólíklegt að hægt verði að
bregðast við öllum mögulegum
vandamálum sem upp kunna að
koma. Það er ekki nýtt, því jafnvel
þegar allt er eðlilegt getur ein-
stökum kjósendum reynst erfitt að
nýta kosningarétt sinn erlendis,
m.a. þar sem um langan veg þarf að
fara á kjörstað,“ segir Hafliði.
Erlendis fer atkvæðagreiðsla ut-
an kjörfundar fram í skrifstofu
sendiráðs eða fastanefndar hjá
alþjóðastofnun, í sendiræðisskrif-
stofu eða í skrifstofu kjörræðis-
manns samkvæmt nánari ákvörðun
hlutaðeigandi ráðuneytis. Sama
ráðuneyti getur og ákveðið að at-
kvæðagreiðsla fari fram á öðrum
stöðum erlendis.
Kjósandi er greiðir atkvæði utan
kjörfundar ritar (eða stimplar) á
kjörseðilinn fullt nafn þess fram-
bjóðanda er hann vill kjósa af þeim,
sem í kjöri eru.
Kosning utan
kjörfundar
flókin erlendis
Kosningin hefst að óbreyttu 23. maí
Útgöngubann er í mörgum löndum
Morgunblaðið/Eggert
Kosning Talsverð óvissa ríkir um
það hvort hægt verði að kjósa.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta hefur gengið alveg fáránlega
vel og í raun vonum framar,“ segir
Þórarinn Ævarsson, eigandi pítsu-
staðarins Spaðans. Staðurinn var
opnaður síðasta föstudag, en að sögn
Þórarins hefur stöðugur straumur
gesta verið allt frá þeim tíma. Hleyp-
ur salan síðustu daga á þúsundum
pítsa, sem er talsvert umfram það
sem Þórarinn hafði ráðgert.
„Það er búið að vera virkilega gott
að gera hjá okkur. Straumurinn er
stöðugur og ég er mjög ánægður með
hvernig til hefur tekist til að byrja
með,“ segir Þórarinn, sem lengi var
kenndur við Ikea og bætir við að
hann ætli sér að breyta markaðnum
hér á landi. Engin pítsa á matseðl-
inum kostar meira en 2.500 krónur
og skiptir þar engu þótt þær séu
drekkhlaðnar áleggi og umtalsvert
stærri en á öðrum sambærilegum
stöðum.
„Þetta er góð vara sem boðin er á
verði sem fólk hefur ekki séð áður.
Við viljum bjóða upp á gæðavöru sem
umfram allt er á hagstæðum
kjörum,“ segir Þórarinn.
Gott aðgengi skiptir máli
Staðurinn er á Dalvegi í Kópavogi
og segist Þórarinn afar ánægður með
að hafa byrjað þar. Aðspurður segist
hann þó ekki útiloka að fjölga stöð-
um, en þar komi nokkrar staðsetn-
ingar til greina. „Það er gríðarlega
gott aðgengi hérna á Dalveginum og
ég er mjög sáttur við þá staðsetn-
ingu. Nú er maður síðan farinn að líta
í kringum sig og það eru tvær til
þrjár staðsetningar sem koma til
greina,“ segir Þórarinn, sem kveðst
horfa einna helst til Garðabæjar og
Reykjavíkur.
Spurður hvort gera megi ráð fyrir
að staðurinn verði opnaður í mið-
bænum á næstunni kveður Þórarinn
nei við. Hann muni jafnframt reyna
að forðast miðbæ Reykjavíkur til að
byrja með. Ekki sé þó hægt að úti-
loka til lengri tíma að Spaðinn verði
opnaður í miðbænum.
Vakið hefur athygli að ekki er
hægt að panta pítsu á staðnum með
hefðbundnum hætti. Þess í stað fara
allar pantanir fram í gegnum netið,
snjallforrit eða á sjálfsafgreiðslu-
stöðvum. Með þessu tekst Þórarni að
skera niður kostnað og bjóða við-
skiptavinum hagstæðari kjör. „Svona
tekst okkur að lækka kostnað. Hjá
fyrirtækinu eru þó nú þegar 20
starfsmenn en við getum gert ráð
fyrir að þetta verði 30-40 manna
fyrirtæki,“ segir Þórarinn, sem fram-
leiðir hráefnið sjálfur. „Við erum með
okkar eigin framleiðsludeild. Ég
framleiði allt sjálfur,“ segir Þórarinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eigandinn Þórarinn Ævarsson, eigandi Spaðans, segir móttökur fólks við opnun staðarins hafa verið frábærar.
Spaðinn kemur inn á
markaðinn af krafti
Skoðar opnun fleiri staða Móttökurnar vonum framar
Spaðinn
» Hleypur salan fyrstu dagana
á þúsundum pítsa og hafa
móttökurnar verið vonum
framar að sögn Þórarins.
» Í stað þess að notast við
hefðbundnar afgreiðsluaðferð-
ir getur fólk pantað mat í
gegnum netið, í snjallforriti
eða á sjálfsafgreiðslukössum.
Fimm umsóknir bárust um laust
embætti landsréttardómara, en um-
sóknarfrestur rann út 4. maí sl.
Meðal umsækjenda eru tveir dóm-
arar við Landsrétt.
Umsækjendur um embættið eru:
Arnfríður Einarsdóttir, dómari
við Landsrétt, Ástráður Haraldsson
héraðsdómari, Helgi Sigurðsson
héraðsdómari, Ragnheiður Braga-
dóttir, dómari við Landsrétt, og
Ragnheiður Snorradóttir héraðs-
dómari.
Skipað verður í embættið hið
fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni
umsækjenda um dómaraembætti
hefur lokið störfum, að því er fram
kemur á heimasíðu dómsmálaráðu-
neytisins.
Umrætt embætti losnaði þegar
Ásmundur Helgason var skipaður
að nýju dómari við Landsrétt, en
hann hafði upphaflega hlotið skip-
un í annað embætti við réttinn við
fyrstu skipun í hann árið 2017.
sisi@mbl.is
Tveir landsréttardómarar eru meðal um-
sækjenda um embætti landsréttardómara