Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is
Tveir menn á þrítugsaldri voru
ákærðir í Danmörku í gær fyrir
að hafa orðið valdir að sprengju-
árás á aðalskrifstofu dönsku skatt-
stofunnar. Mennirnir eru báðir
sænskir ríkisborgarar.
Lise-Lotte Nilas, ríkissaksóknari
Danmerkur, sagði í tilkynningu í
gær að málið væri grafalvarlegt
og árásin hefði verið árás á alla
Dani. Sagði enn fremur að sak-
sóknaraembættið liti á árásina
nánast sem hryðjuverk og myndi
því krefjast þyngri refsingar yfir
mönnunum. Verði þeir sakfelldir
gætu þeir fengið lífstíðardóm í
fangelsi.
Einn særðist í sprengingunni og
þurfti að leita á slysadeild, en
miklar skemmdir urðu á byggingu
skattstofunnar á Austurbrú.
Níu sprengingar urðu í Kaup-
mannahöfn á um hálfu ári í fyrra
og var þeim möguleika velt upp
að þær tengdust innbyrðis. Ekkert
hefur þó enn komið fram sem
bendir til að svo sé.
Tveir ákærðir fyrir
árás á skattstofuna
DANMÖRK
AFP
Ákæra Skattstofan á Austurbrú var illa
farin eftir sprenginguna í ágúst sl.
Franskir sak-
sóknarar til-
kynntu í gær að
þeir hefðu hafið
rannsókn á
meintum kyn-
ferðisbrotum
Valérys Giscards
d’Estaings, fyrr-
verandi forseta
Frakklands, en
Ann-Kathrin
Stracke, þýsk blaðakona, sakaði
hann í fyrradag um að hafa káfað á
afturenda sínum ítrekað við
myndatöku þegar hún tók viðtal við
hann á árinu 2018. Ljósmyndarinn
mun hafa staðfest frásögn Stracke í
viðtölum við lögfræðinga hennar.
Giscard d’Estaing, sem er 94 ára
gamall, var forseti á árunum 1974
til 1981. Talsmaður forsetans sagði
hann hvorki reka minni til viðtals-
ins né atviksins sem um ræddi.
Rannsaka káf
fyrrverandi forseta
Valéry
Giscard d’Estaing
FRAKKLAND
Nítján sjóliðar létust og fimmtán
særðust á sunnudaginn þegar
íranska herskipið Konarak varð
fyrir eldflaug frá öðru írönsku
skipi nálægt Bandar-e-Jask við suð-
urströnd Írans.
Íranskir ríkisfjölmiðlar greindu
frá mannfallinu í gær, en skipið var
að toga skotmörk fyrir flotaæfingu
þegar freigátan Jamaran skaut að
skotmarkinu með fyrrgreindum af-
leiðingum. Þeir fimmtán sem særð-
ust voru fluttir á sjúkrahús í landi
og voru tveir þeirra í gjörgæslu í
gær.
Atvikið varð rétt hjá Hormuz-
sundi, sem liggur að Persaflóa, en
nokkur spenna hefur ríkt þar
undanfarna mánuði vegna deilna
Bandaríkjamanna og Írana um
kjarnorkuáætlun Írans. Heimilaði
Donald Trump Bandaríkjaforseti
bandarískum herskipum 15. apríl
sl. að skjóta niður alla íranska hrað-
báta sem reyndu að trufla störf
þeirra við Persaflóa.
19 látnir eftir slysa-
skot á flotaæfingu
ÍRAN
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Frakkland og Spánn voru á meðal
þeirra Evrópuríkja sem hófu í gær
að létta á sóttvarnaraðgerðum sínum
vegna kórónuveirufaraldursins, á
sama tíma og varað var við því að ný
tilfelli væru að skjóta upp kollinum í
Wuhan-borg og í Suður-Kóreu.
Rúmlega 4,1 milljón manns hefur
nú smitast af kórónuveirunni og
meira en 282.000 manns hafa dáið af
völdum hennar. Þar af hafa um
156.000 manns dáið í ríkjum Evrópu,
en stjórnvöld þar eru í flestum til-
fellum vongóð um að það versta sé
afstaðið, að minnsta kosti í bili.
Í Frakklandi var tilkynnt um 70
dauðsföll af völdum veirunnar á
sunnudaginn, sem er hið minnsta
þar í landi frá því í byrjun apríl. Bak-
slag kom hins vegar í gær þegar til-
kynnt var um 263 dauðsföll á undan-
gengnum sólarhring, en Frakkar
fengu í gær í fyrsta sinn í nærri átta
vikur að fara út úr húsi án þess að
hafa fyllt út sérstakt leyfisbréf þar
sem tilgangi ferðarinnar var lýst í
þaula.
Á Spáni voru færri en 200 dauðs-
föll skráð um helgina, og fengu lítil
veitingahús og kaffihús að opna dyr
sínar á ný eftir um tveggja mánaða
útgöngubann, sem þótti eitt hið
strangasta í allri Evrópu, en það er
enn í gildi í sumum af helstu þétt-
býliskjörnum Spánar, eins og höfuð-
borginni Madríd og Barcelona.
Þá tilkynntu stjórnvöld á Ítalíu að
nú væru færri en þúsund manns á
gjörgæslu í landinu í fyrsta sinn frá
því að útgöngubann var sett á um
miðjan mars.
Sex tilfelli í Wuhan-borg
Grannt hefur verið fylgst með
ástandinu í Kína, þar sem faraldur-
inn átti upptök sín, en stjórnvöld þar
hafa hægt og bítandi verið að létta á
aðgerðum sínum vegna veirunnar.
Til dæmis fékk Disneyland í
Sjanghæ að taka á móti gestum á ný
í gær eftir þriggja mánaða lokun.
Engu að síður hafa þau tíðindi
valdið áhyggjum að eitt tilfelli
greindist í Wuhan-borg á sunnudag-
inn, og fimm til viðbótar í gær. Voru
öll tilfellin tengd sama íbúðarhús-
næðinu, en þetta eru fyrstu skráðu
tilfellin í borginni í um mánuð.
Þá fyrirskipuðu stjórnvöld í Suð-
ur-Kóreu að loka skyldi skemmti-
stöðum og öldurhúsum eftir að
minnsta kosti 86 ný tilfelli komu upp
í höfuðborginni Seúl, sem öll voru
rakin til skemmtanalífs borgarinnar.
Hófu sóttvarnaryfirvöld mikla
rakningarvinnu vegna tilfellanna, en
eitt af því sem hamlaði vinnu þeirra
var að sum tilfellanna komu upp á
skemmtistöðum hinsegin fólks, og
var óttast að fordómar gagnvart
samkynhneigð gætu aftrað fólki frá
því að taka próf fyrir veirunni.
Hvatti Chung Sye-kyun, forsætis-
ráðherra Suður-Kóreu, fólk til þess
að leita sér aðstoðar ef það fyndi fyr-
ir einkennum. Hópsmitið varð til
þess að suðurkóresk stjórnvöld
frestuðu því að opna grunnskóla í
landinu á ný.
Óttast aðra bylgju í Asíu
Evrópuríki draga úr aðgerðum sínum á sama tíma og tilfellum fjölgar á ný í
Kína og Suður-Kóreu Skemmtistöðum lokað vegna nýs hópsmits í Seúl
Messa Spænski presturinn Antonio Gomez gefur söfnuði sínum oblátur og
heilagt vín við messu, en sjálfur var Gomez með andlitsgrímu og -skjöld.
AFP
París Þessi grímuklædda kona fékk sér göngutúr í gær við Eiffel-turninn í París, en Frakkar fengu í gær að fara út án sérstaks leyfis í fyrsta sinn í 55 daga.