Morgunblaðið - 12.05.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020
60 ára Þórunn ólst
upp í Safamýri í
Reykjavík en býr í
Garðabæ. Hún er
rekstrarviðskipta-
fræðingur að mennt
frá Háskóla Íslands
og er framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Úrval-
Útsýn.
Maki: Ingi Arason, f. 1959, bygginga-
tæknifræðingur hjá Terra.
Börn: Sigríður Bára Ingadóttir, f.
1990, og Mikael Ingason, f. 1995.
Foreldrar: Sigríður Bára Sigurðar-
dóttir, f. 1930, d. 2016, húsmóðir, og
Reynir Þórðarson, f. 1929, d. 2016,
húsasmíðameistari. Þau voru búsett í
Garðabæ.
Þórunn
Reynisdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður í góðu skapi í dag vegna
góðra frétta. Ef þér gefst tækifæri til að
komast í gott form skaltu grípa það.
20. apríl - 20. maí
Naut Gamlar tilfinningar í samskiptum við
þína nánustu láta á sér kræla á næstunni.
Þér finnst erfitt að þurfa að svara fyrir
vissa hluti.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Veltu þér ekki upp úr vandamál-
unum heldur skaltu bara leysa þau. Þú
ræður engu um atburðarás sem farin er af
stað. Gættu þín á gylliboðum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að bregðast við öllum
þeim streituvöldum sem hrjá þig dags dag-
lega. Fortíðin bankar upp á hjá þér, ekki
hleypa henni inn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fólk nálgast þig og biður þig að taka
að þér flókin verkefni. Veltu því fyrir þér að
sinna kennslu heima eða í tengslum við
skóla.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Segðu vini hvernig þér raunverulega
líður. Margir halda að grasið sé grænna
hinum megin girðingar, en þú veist betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Maður veit aldrei hversu lengi maður
deilir lífi sínu með einhverjum, láttu því alla
vita hversu mikið þú metur hvern og einn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eitthvað á eftir að koma þér
svo á óvart að þú munt hugsa að það sé of
gott til að geta verið satt. Vertu þú sjálf/ur
og sinntu þínum störfum sem best þú
getur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gefðu þér tíma til þess að gera
verðsamanburð. Það margborgar sig og
þeim tíma, sem fer í það, er því vel varið.
Fólk er hjálplegt og samvinnuþýtt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta ár gerir þér kleift að auka
tekjurnar, vertu vakandi fyrir tækifærum
sem þér gefast. Ekki láta aðra hækka í þér
blóðþrýstinginn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Næsti mánuður er upplagður
fyrir ferðalög. Ekki hafa áhyggjur, hlutirnir
munu ganga upp. Þú færð mörg tækifæri á
næstunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver er skotin/n í þér, en þú veist
ekki alveg hvað þér finnst um það. Skoðaðu
hlutina bara í rólegheitum, það liggur ekk-
ert á.
Félagsstörf og áhugamál
Ellert sat í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar þrjú kjörtímabil fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins, fyrst 1982-1986
og síðar 1990-1998. Hann var forseti
bæjarstjórnar eitt kjörtímabil og
sinnti á bæjarstjórnarárum sínum
m.a. formennsku í hafnarstjórn, æsku-
lýðsráði og byggingarnefnd. Þá sat
hann 15 ár í stjórn Hafnarborgar, þar
af fjögur ár sem formaður. Hann
sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn í Hafnarfirði og var formaður
fulltrúaráðs hans í nokkur ár.
Ellert var einn stofnfélaga lions-
klúbbsins Ásbjarnar í Hafnarfirði, sat
í fyrstu stjórn Regnbogabarna, og í
stjórn knattspyrnudeildar FH í nokk-
ur ár.
Á árunum í Öldutúnsskóla varð
Söngsveitin Randver til. Á fyrsta ári
Ellert var tvö sumur í sveit á
Rauðabergi, efri bæ, á Mýrum,
Hornafirði. „Þar héldu bú tvær systur
komnar vel á áttræðisaldur. Allir
starfshættir báru merki liðinnar aldar
en ótrúleg elja og dugnaður systr-
anna gerði þeim kleift að sýsla með
um 60 kindur og tvær kýr.“
Ellert var á yngri árum í hljóm-
sveitum austanlands. Mikið var að
gera á síldarárunum en í landlegum
voru dansleikir allt að fimm daga vik-
unnar. Kunnasta hljómsveit þess tíma
voru Ómarnir og Ellert. Spilað var í
félagsheimilum vítt um Austurland
s.s. Félagslundi, Valskjálf, Egilsbúð
og Valhöll. Hljómsveitin Húnar tók
við af Ómurunum og allt fram til síð-
ustu ára hafa Sigurðarhússbræður
komið saman einu sinni til tvisvar á
ári og leikið fyrir dansi eystra undir
nafninu „Strákarnir hennar Stínu“.
E
llert Borgar Þorvalds-
son fæddist á Sigurð-
arhúsi á Eskifirði 12.
maí 1945 og ólst þar
upp. Skólagangan
hófst í Barna- og unglingaskóla Eski-
fjarðar en landsprófi lauk Ellert frá
Héraðsskólanum á Laugarvatni.
Hann lauk kennaraprófi KÍ 1967 og
sérkennaraprófi frá sama skóla 1974.
Árið 2000 lauk hann eins árs diplómu-
námi í Management of Education frá
Strathclyde University í Glasgow í
Skotlandi.
Skólamál
Ellert hóf kennsluferil sinn á
Reyðarfirði 1963, þá án réttinda. Að
loknu kennaraprófi hóf hann kennslu
við Barna- og unglingaskóla Eski-
fjarðar og sem skólastjóri 1969-1972.
Þá flutti hann ásamt fjölskyldu sinni
til Hafnarfjarðar og hóf kennslu við
Öldutúnsskóla fram til 1978. Á ár-
unum 1978-1987 starfaði hann sem
skólafulltrúi Hafnarfjarðar. Ellert tók
síðan við sem skólastjóri nýs skóla í
Reykjavík, Ártúnsskóla, og gegndi
því starfi í 19 ár.
Eftir að Ártúnsskólaárunum lauk
hóf Ellert ýmis ráðgjafarstörf við
skóla, aðallega í Reykjavík. Þá gegndi
hann tímabundnum stjórnunar-
störfum í forföllum við nokkra grunn-
skóla Reykjavíkur allt frá fjórum til
fimm starfsmánuðum upp í eitt og
hálft skólaár.
Æskuerill
Á Sigurðarhúsinu, æskuheimili
Ellerts, var alla hans æsku og fram á
unglingsár stundaður það sem kallast
í dag sjálfsþurftarbúskapur. Einn til
tveir bátar, opnir vélbátar og gjarnan
árabátar voru alla tíð í eigu heimilis-
ins. Helstu veiðarfæri voru lína, net
og handfæri. Á veturna og fram á vor
var skotinn svartfugl, selur og hnísa.
„Þessi veiði var stunduð jafnframt því
sem menn gengu til sinna daglegu
föstu verka. Það var því oft róið
snemma og komið að undir myrkur,“
segir Ellert. „Þá var á Sigurðarhús-
inu fjárbúskapur, u.þ.b. 20 kindur í
húsi, öll mín æskuár. Eins og þá tíðk-
aðist var til þess ætlast að börn legðu
lið þegar þroski þeirra og geta leyfði.“
sveitarinnar skipuðu hana fimm kenn-
arar við skólann en síðan fjórir. Rand-
ver starfaði í nokkur ár og spilaði víða
um land og gaf út þrjár hljómplötur.
Safndiskur var gefinn út 2003 með við-
bót nýrri laga og nýjum liðsmanni, þá-
verandi skólastjóra Víðistaðaskóla.
Í nánast áratug, fram til 1988, stóð
Ellert, ásamt tveimur góðum félögum
úr Öldutúnsskóla, að útgáfu hafnfirsku
blaðanna Fjarðarpóstsins, sem kom út
vikulega, og Fjarðarfrétta, sem kom út
tvisvar til þrisvar á ári í veglegum bún-
ingi. Eiginkonur útgefenda unnu einnig
að útgáfunni.
„Foreldrar mínir lyftu oft hvunndeg-
inum með harmónikkuleik og söng í
góðra vina hópi á Sigurðarhúsinu. Árið
2003 kom út geisladiskurinn „Lögin
hans Valda“. Eins og nafnið ber með sér
hefur diskurinn að geyma lög eftir Þor-
vald föður minn sem hafa greypst inn í
bæjarsálina á Eskifirði.“
Ellert nýtur lesturs góðra bóka, ekki
síst ljóðabóka, og tónlistar. „Áhugi minn
á íþróttum hefur einnig ætíð verið
mikill. Ég nýt þess, þegar ég fer austur,
að komast á sjó og renna færi.“
Fjölskylda
Eiginkona Ellerts er Erna Guðrún
Björnsdóttir, f. á Reyðarfirði 9.2. 1944.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR og
kennaraprófi 1967. Þau hjónin hófu í
framhaldinu búskap og kennslu á Eski-
firði. Þar bjuggu þau til ársins 1972 en
þá fluttust þau til Hafnarfjarðar til
starfa við Öldutúnsskóla. Þau eru enn
búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Ernu
voru hjónin Sigrún Jónsdóttir, f. 7.5.
1925, d. 10.4. 1973, textílkennari og
Ellert Borgar Þorvaldsson, fyrrverandi skólastjóri og söngvari – 75 ára
Fjölskyldan Erna með dætrum, syni, tengdasyni og barnabörnum.
Strákurinn þeirra Stínu og Valda
Fleiri úr stórfjölskyldunni Barnabörn og innfelld mynd af barnabarnabarni.
Mæðginin Ellert með Kristínu móð-
ur sinni á 85 ára afmæli hennar 2009.
40 ára Ólafur er
Reykvíkingur, ólst upp
í Árbænum og býr í
Teigunum. Hann er
menntaður leikari frá
ArtsEd í London og er
bruggmeistari og einn
eigenda Ægis brugg-
húss. Ólafur situr í stjórn Skautafélags
Reykjavíkur.
Maki: Ragnhildur Rós Guðmundsdóttir, f.
1981, sjálfstætt starfandi vefhönnuður.
Börn: Viðar Marel, f. 2000, Thelma
Berglind, f. 2006, Kristján Kári, f. 2010,
og Sigurður Ágúst, f. 2011.
Foreldrar: Guðlaug Ragnheiður Skúla-
dóttir, f. 1956, bókari, búsett í Kópavogi,
og Kristján G. Þorvaldz, f. 1954, d. 2006,
knattspyrnuþjálfari.
Ólafur Steinar
Kristjánsson Þorvaldz
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is