Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Bandaríski grín- istinn og gaman- leikarinn Jerry Stiller er látinn, 92 ára að aldri. Sonur hans, leik- arinn og leik- stjórinn Ben Stiller, sendi frá sér tilkynningu þess efnis í fyrra- dag og sagði föður sinn hafa látist af eðlilegum orsökum. Jerry Stiller var einna þekkt- astur fyrir leik sinn í gamanþátt- unum Seinfeld þar sem hann fór á kostum í hlutverki uppstökks föð- ur hins seinheppna George Cost- anza. Einnig kitlaði hann hlátur- taugar áhorfenda í sjónvarps- þættinum The King of Queens lengi vel. Hann lék einnig í nokkr- um kvikmyndum og þá m.a. í leik- stjórn sonar síns. Gamanleikarinn Jerry Stiller allur Jerry Stiller Bandaríska söngkonan Betty Wright, sem átti sinn fyrsta smell aðeins 17 ára að aldri, er látin. Hún var 66 ára. Wright var ein þekkt- asta söngkona fönksenunnar í Miami á áttunda áratugnum og vann náið með söngvurum og röpp- urum næstu fjóra áratugi. Wright lést af völdum krabbameins, að því er fram kemur á vef New York Times. Wright samdi einnig lög, stýrði upptökum og leiðbeindi ungum tón- listarmönnum á ferli sínum. Smell- urinn sem kom henni á kortið var „Clean Up Woman“ árið 1971 og boðaði þróun fönksins yfir í diskó. Lagið náði 6. sæti bandaríska R&B- lagalistans Billboard og voru lög með Wright reglulega á listanum upp frá því, 20 alls á lista yfir þau 40 vinælustu. Af samstarfsfólki hennar eru nefnd þau Stevie Wonder, Bob Mar- ley, Michael Jackson, Stephen Stills, David Byrne, Alice Cooper, Jennifer Lopez, Gloria Estefan og Erykah Badu. Í upphafi 21. ald- arinnar kom hún að upptökustjórn platna ensku söngkonunnar Joss Stone og starfaði með DJ Khaled og Rick Ross. Margir þekktir tónlistar- menn hafa notað búta úr lögum Wright í sín eigin, þeirra á meðal Beyoncé, rs 2Pac og Slim Thug. Söngkonan Betty Wright látin AFP Virt Betty Wright naut mikillar virðingar í bandaríska tónlistarheiminum. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Hugmyndin að þessari bók er búin að blunda með mér í nokkurn tíma, en ég hef alltaf haft mikill áhuga á hrollvekjum,“ segir Ævar Þór Bene- diktsson leikari og rithöfundur sem í dag sendir frá sér bókina Hryllilega stuttar hrollvekjur sem Ágúst Krist- insson myndlýsti. „Þegar ég skrifaði Þína eigin hrollvekju á sínum tíma var mér tjáð að hún yrði ekki mikið lesin þar sem enginn vildi lesa hryll- ing. Í ljós hefur hins vegar komið að hún er alltaf í öðru sæti yfir mest lán- uðu bækurnar mínar á bókasöfnum landsins næst á eftir nýjustu Þinni eigin-bók hverju sinni,“ segir Ævar og bendir á að það sé til merkis um það að fleiri lesendum en honum þyki gaman að láta hræða sig. „Í öllum bókunum mínum er alltaf draugalegur eða drungalegur kafli. Það eru alltaf langskemmtilegustu kaflarnir fyrir mig að skrifa. Nýjasta dæmið er í Þínum eigin tölvuleik þar sem var prinsessuborð sem kom í ljós að var stútfullt af uppvakn- ingum,“ segir Ævar og rifjar upp að sjálfur hafi hann alltaf sótt í hryll- ingsbækur. „Ég las The Shining eftir Stephen King þegar ég var í 7. bekk. Það voru fyrstu kynni mín af King, en bækur hans hafa haft mikil áhrif á allt sem ég hef skrifað. The Shining gekk síðan á milli nemenda í bekkn- um sem hvísluðust á um hana vegna þess hversu hræðileg hún var,“ segir Ævar og bendir á að hann hafi verið mjög myrkfælinn þar til hann varð 17 ára. Hvað breyttist þá? „Ég réð mig sem næturvörð á hót- eli á Akureyri. Mamma og pabbi hlógu að mér í heila viku, því þau vissu alveg hvað ég var myrkfælinn. Ég varð því að komast yfir myrk- fælnina til að geta sinnt starfinu.“ Eitthvað hryllilegt fyrir alla En hvað hræðir þig mest? „Mannvonska. Því öll skrímsli sem við getum búið til ná ekki að toppa mannskepnuna þegar hún kemst í stuð. Þess vegna finnst mér svo fal- legt að sjá allt það góða sem er afleið- ing af veirufaraldrinum sem nú gengur, það er samstaðan og hjálp- semin.“ Þú skiptir nýju bókinni upp í þrjá kafla sem bera yfirskriftina Vont, Verra og Verst. Hver er ástæðan? „Mig langaði að prófa að leika mér með smásöguformið, sem ég hef lítið notað hingað til, og kynna formið fyr- ir nýjum lesendum,“ segir Ævar, en bókin samanstendur af 20 mis- löngum smásögum. Sú stysta nefnist „Strákurinn“, er aðeins tvær setn- ingar og hana má lesa hér til hliðar. „Ég var fyrst búinn að skrifa miklu lengri gerð sögunnar, sem unnusta mín las yfir og fannst ekki virka og þá stytti ég söguna niður í þessar tvær línur. Hryllingurinn verður miklu meiri þegar textinn er svona knappur. Þá er þetta eins og hákarl- inn í Jaws sem áhorfendur fá aldrei að sjá, sem er miklu verra,“ segir Ævar og bendir á að sögurnar séu mjög ólíkar hvað innihald og form varðar. „Sumar sögurnar eru eins og lítil atómljóð á meðan aðrar eru hefð- bundnari í formi og allt þar á milli,“ segir Ævar og tekur fram að sig hafi líka langað til að leika sér með ólíkan hrylling. „Í sumum sögum eru vamp- írur, uppvakningar, skrímsli og draugar, sem er það hryllilegasta í huga sumra. En mig langaði líka að leika mér með raunsæislegan hryll- ing, ekki bara yfirnáttúrlegan,“ segir Ævar og nefnir í því samhengi sög- una af stelpunni sem reyndi að hemja hnerra og strákinn sem er grafinn lif- andi. „Þannig að allir ættu að finna eitthvað óþægilegt í þessari bók.“ Að sögn Ævars fékk hann heilan árgang nemenda í Fossvogsskóla, sem fædd eru 2009, til að lesa sög- urnar yfir fyrir sig og gefa þeim ein- kunnir á skalanum einn til þrír út frá því hversu hryllilegar þær væru svo hann gæti raðað sögunum í hryllings- röð; þar sem næsta saga í bókinni er alltaf verri en sú sem á undan kom. „Ég byrjaði á því að senda þeim tíu sögur og fannst mjög gaman að sjá hversu ólíkar einkunnir sögurnar fengu frá lesendum, enda ekki það sama sem hræðir alla jafnt. „Þegar niðurstöðurnar lágu fyrir kom það mér svolítið á óvart að það fannst ekki öllum sögurnar jafn hryllilegar og ég hafði haldið. Ég sá því að ég yrði að spýta í lófana. Í framhaldinu skrifaði ég síðan hryllilegustu sög- una í allri bókinni með það að mark- miði að ná að hræða öll börnin nógu mikið,“ segir Ævar og vísar þar til sögu sem nefnist „Uppskera“ og er aftast í bókinni. „Í henni blanda ég saman raun- sæjum og yfirnáttúrlegum hryllingi,“ segir Ævar, en sagan fjallar um strákinn Bjartmar sem er afar forvit- inn. „Hann langar að skilja heiminn og byrjar ungur að taka leikföng sín í sundur til að skilja í þeim gangverk- ið. Í framhaldinu fer hann að skoða gæludýr sín með sama hætti og kæt- ist mjög þegar foreldrar hans til- kynna honum að þau eigi von á nýju barni, enda fátt skemmtilegra en að skilja hvernig manneskjan virkar,“ segir Ævar leyndardómsfullur enda eiga sögulokin að koma á óvart. Undirdjúpin næst á dagskrá Hvernig kom það til að þú fékkst Ágúst til að myndlýsa bókina, en þið hafið ekki unnið saman áður? „Þetta er í fyrsta skiptið sem við vinnum saman. Hann hafði samband við mig fyrir tveimur árum og var með hugmynd að verkefni sem við erum enn með í vinnslu. Hann er æðislegur teiknari og allt öðruvísi en þeir sem ég hef unnið með hingað til. Mig langaði að fá nýtt útlit sem kall- aðist á við að þetta væri öðruvísi bók en fyrri bækur mínar. Teikningarnar hans eru alveg geggjaðar og hjálpa til við að undirstrika hryllinginn í textanum.“ Þú hefur verið ótrúlega afkasta- mikill á umliðnum árum. Hver er galdurinn? „Gott kaffi,“ svarar Ævar kíminn, en Ævar hefur alltaf haft fyrir sið að skrifa bækur sínar á kaffihúsum borgarinnar. Hvað ertu svo með í smíðum? „Í ágúst eru væntanlegar tvær nýjar stuttar Þínar eigin-bækur, sem nefnast Knúsípons og Risaeðlur. Ég vann þessar léttlestrarbækur upp úr bókunum Þínum eigin tölvuleik og Þínu eigin tímaferðalagi. Stefnan er að koma með tvær léttlestrarbækur á ári næstu árin. Í október eða nóvember er síðan væntanleg bókin Þín eigin undirdjúp. Þannig að ég er sem stendur að stúdera kolkrabba, hákarla og kafbáta,“ segir Ævar glaðbeittur að lokum. Morgunblaðið/Eggert Knappur Ævar Þór segir hryllinginn geta orðið enn meiri í knöppum texta eins og sjá má hér að neðan. Markmiðið „að hræða nógu mikið“  Ævar Þór Benediktsson sendir frá sér bókina Hryllilega stuttar hrollvekjur  Læknaðist að mestu af myrkfælni þegar hann gerðist næturvörður 17 ára  Sjálfur hræðist hann í dag mest mannvonsku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.