Morgunblaðið - 12.05.2020, Page 29

Morgunblaðið - 12.05.2020, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI KOMIN AFTUR Í BÍÓ TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN ! Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Herra Hnetusmjör, einn vinsælasti rappari landsins, var í gær sæmdur heiðursnafnbótinni bæjarlistamaður Kópavogs við hátíðlega athöfn í Vatnsendaskóla. Tók hann nokkur lög við það tækifæri við mikinn fögn- uð viðstaddra. „Ég er innflytjandi,“ svarar rapp- arinn, réttu nafni Árni Páll Árnason, þegar hann er spurður að því hvort hann sé borinn og barnfæddur Kópavogsbúi. Hann hafi búið til tíu ára aldurs í Hveragerði og þá flutt til Kópavogs og búið þar til 21 árs aldurs. Þá neyddist hann til að flytja úr bænum vegna ástands á leigu- markaði. Árni er nú snúinn aftur til Kópa- vogs, býr í gamla bænum með unn- ustu sinni og barni og stefnir að því að flytja aftur í Vatnsendahverfið þar sem hann bjó sem barn og ung- lingur og gekk í Vatnsendaskóla. „Geggjað að fá þessa viðurkenningu“ Árni segir mikinn heiður að vera valinn bæjarlistamaður Kópavogs. „Ég hef verið að „representa“ Kópa- vog frá því í febrúar 2014 þegar ég gaf út fyrsta lagið mitt og hef notið mikils stuðnings Kópavogsbúa síðan þá og geggjað að fá þessa viðurkenn- ingu frá Kópavogsbæ sjálfum,“ segir hann. Árni er fæddur árið 1996 og er því yngsti listamaðurinn sem hefur hlotið þessa nafnbót. Kópavogur er mikill rappbær og hefur alið af sér margan rapparann, m.a. Blazroca og bróður hans, Sesar A, sem orðnir eru með eldri mönn- um í rappinu í dag. Árni segist þó ekki hafa byrjað að hlusta á rapp í Kópavogi heldur Hveragerði en byrjað að rappa og graffa í Kópa- vogi. Vitleysan er ekki öll eins Árni er ötull talsmaður Kópavogs og hrópar jafnan „Kóp boi!“ í lögum sínum milli rímna, þ.e. Kópavogs- drengur. „Ég þurfti að hífa upp Vatnsenda 203, það þurfti einhver að vera rödd hverfisins,“ segir hann sposkur um upphafsár sín í rappinu. Í einu af sínum nýrri lögum, hinu grípandi „Vitleysan eins“, rappar Árni um þá þekktu staðreynd lífsins að vitleysan er ekki öll eins. „Hún er það svo sannarlega ekki,“ segir hann sposkur þegar blaðamaður minnist á þetta ágæta lag. „Hver hefði haldið að Herra Hnetusmjör myndi fá heiðurslistamannaverðlaun Kópa- vogsbæjar?!“ Já, tímarnir breytast og mennirnir með. Morgunblaðið/Eggert Gleðistund Herra Hnetusmjör tók í gær við viðurkenningu úr hendi bæjarstjóra Kópavogs, Ármanns Kr. Ólafs- sonar, og til hliðar við rapparann má sjá Pál Marís Pálsson úr lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. „Þurfti að hífa upp Vatnsenda 203“  Herra Hnetusmjör er bæjarlistamaður Kópavogs 2020 Einn af helstu frumkvöðlum rokks- ins, Little Richard, lést fyrir helgi 87 ára að aldri. Dánarorsökin var beinkrabbamein. Little Richard skaust upp á stjörnuhimininn árið 1955 með „Tutti Frutti“ – æsilegu stuðlagi um kynlíf. Hann var ekki fyrsti rokktónlistarmaðurinn. Chuck Berry, Fats Domino og Elvis Pres- ley höfðu allir slegið í gegn árið á undan. En Little Richard vakti at- hygli fyrir enn æsilegri sviðs- framkomu en þeir: öskur, hrífandi æsing og ofurhraðan píanóleik, sem hreif bæði hvít og svört ungmenni í Bandaríkjunum, og síðan út um heimsbyggðina. Hann fylgdi vin- sældum lagsins eftir með „Long Tall Sally“, „Good Golly Miss Molly“ og fleiri lögum sem í dag teljast klassískir rokkslagarar. Bakgrunnur Little Richard, sem hét Richard Wayne Penniman, var í gospel- og blústónlist í Georgíuríki, þar sem hann ólst upp á strang- kristnu heimili og söng gospel- tónlist opinberlega með ættingjum sínum. Hann vakti þá strax athygli fyrir raddstyrk og háa tóna sem hann söng af miklu öryggi. En hann var á unglingsaldri þagar faðir hans vísaði honum á dyr fyrir að klæðast kvenmannsfötum og ekki löngu síðar var ungi maðurinn far- inn að koma fram á dragskemmt- unum, leika þar listavel á píanó og syngja. Hann var í ýmsum hljóm- sveitum og rétt náði að lifa af tón- listinni þar til hann sló í glegn 1955. Hinn upphaflegi rokkferill Little Richard varði ekki lengi því á tón- leikaferð í Ástralíu árið 1960 kvaðst hann hafa orðið fyrir túar- legri vitrun og skráði sig í Biblíu- skóla. Síðar átti hann eftir að ferðast um sem prédikari en rokkið og trúin tókust á í honum alla ævi. Árið 1962 var hann aftur kominn í tóneikaferðalag og meðal þeirra sem hituðu upp fyrir hann í Evrópu voru nýstofnaðar hljómsveitir, The Beatles og Rolling Stones. Áhrif Little Richard á meðlimi beggja sveita voru mikil. Paul McCartney hefur sagt að fyrsta lag sem hann söng opinberlega var „Long Tall Sally“, sem Bítlarnir hljóðrituðu, og John Lennon lýsti því hvernig Little Richard las upphátt úr Biblí- unni baksviðs og hafi þeir Bítlar safnast saman að hlýða á, til að geta heyrt rödd meistarans. Þá hafði tónlist og framkoma Little Richard til að mynda mikil áhrif á James Brown og Prince. Little Richard átti eftir að hverfa af og til af sjónarsviðinu, meðal annars meðan hann glímdi við fíkniefni, en hann sneri ítrekað aft- ur skrautlega klæddur, með myndarlegar hárkollur og tryllti lýðinn með hressilegri framkom- unni og sívinsælum slögurunum. AFP Hress Little Richard á tónleikum árið 2004. Hann hætti að koma fram 2013. Ærslafullur rokk- frumkvöðull allur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.