Fréttablaðið - 06.01.2021, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 6 . J A N Ú A R 2 0 2 1
w
v
Rafmagnaður fjölskyldubíll
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170
www.volkswagen.is/id4
77kWh
rafhlaða
VIÐSKIPTI Hlutfall lána í vanskilum
hjá stóru bönkunum nam nærri
9 prósentum í október. Það jókst
talsvert frá því í ágúst og hefur ekki
verið hærra frá því árið 2013. Van
skilin voru þó að mestu leyti bundin
við ferðaþjónustuna, en hlutfall
vanskila hjá heimilum minnkaði
lítillega á sama tímabili.
„Aðalsagan í þessu er erfiðleikar
ferðaþjónustunnar, sem valda því
að vanskilin skjótast upp. Vandinn
virðist hins vegar ekki hafa náð til
heimilanna,“ segir Yngvi Örn Krist
insson, hagfræðingur Samtaka
fjármálafyrirtækja, í samtali við
Markaðinn.
Vanskil sem hlutfall af útlánum
bankanna námu 8,6 prósentum í
október. Til samanburðar voru van
skilin 6 prósent í ágúst og aðeins 3,6
prósent í lok árs 2019. Til að finna
hærra hlutfall vanskila þarf að leita
aftur til ársins 2013. Hlutfallið,
sem nam þá 12,5 prósentum, hafði
lækkað úr 22,9 prósentum árið 2011.
Sundurliðun eftir atvinnugrein
um sýnir að kórónakreppan hefur
haft mismunandi áhrif á mismun
andi greinar efnahagslífsins. Hæst
var vanskilahlutfallið í þjónustu,
en það var 32 prósent í október
samanborið við 16 prósent í ágúst
og 5 prósent í desember 2019. Van
skilahlutfall verslunar lækkaði hins
vegar lítillega úr 4 prósentum niður í
3 prósent og hjá heimilunum lækk
aði hlutfallið úr 3 prósentum niður
í 2 prósent.
Yngvi Örn segir að hugsanlega
megi útskýra lítil áhrif kóróna
kreppunnar á heimilin og aðrar
atvinnugreinar þannig að kaupgeta
sem Íslendingar hefðu annars nýtt
í útlöndum var nýtt innanlands.
Hann bendir á að launaþátturinn
í ferðaþjónustu, sem var um 250
milljarðar árið 2019, hafi verið álíka
mikill og innflutt ferðaþjónusta, það
er ferðalög Íslendinga til útlanda.
„Þegar þetta tvennt dettur út á
sama tíma verða áhrifin á viðskipta
jöfnuð tiltölulega lítil og kaupgetan
sem var áður í útlöndum kemur inn
á innlendan markað. Það skýrir til
dæmis hvers vegna vanskil annarra
atvinnugreina og heimila vaxa jafn
lítið og raun ber vitni.“
– þfh / sjá Markaðinn
Kreppan ekki náð til heimila
Vanskilahlutfall hjá bönkunum nam nærri 9 prósentum í október. Hækkaði töluvert frá ágúst vegna
áhrifa kórónakreppunnar á ferðaþjónustu. Vanskil heimila og verslunargeirans minnkuðu hins vegar.
VIÐSKIPTI Áfallin staða samtrygg
ingardeilda lífeyrissjóða væri 350
milljörðum króna lakari ef upp
gjörskrafa sjóðanna hefði verið
lækkuð um hálft prósentustig,
niður í þrjú prósent, í byrjun árs
2020. „Áhrifin á áfallna stöðu yrðu
ekki umf lúin nema með því að
breyta áunnum réttindum,“ segir
Jón Ævar Pálmason, sérfræðingur
í áhættugreiningu.
Hann segir annmörkum háð að
finna heppilegt vaxtaviðmið til þess
að meta loforð um lífeyrisgreiðslur
áratugi fram í tímann. Aðstæður
lífeyrissjóða geta verið ólíkar af því
að sumir eru opnir nýjum sjóðfélög
um, taka við iðgjöldum og stækka,
en aðrir eru lokaðir á meðan þeir
vinna að útgreiðslu lífeyris til sjóð
félaga og eignir dragast saman.
– þfh / sjá Markaðinn
Réttindi næm
fyrir kröfunni
Þessar vinkonur nýttu síðdegið í gær til að freista þess að gleyma amstri hversdagsins með því að fara í sjósund í Nauthólsvík. Vinsælt er að fara í sjóinn við Öskjuhlíðina og lætur fólk ekki
kaldan sjóinn aftra sér frá því að svamla þar um. Hægt er að fara í heita laug sem staðsett er á ylströndinni að sundinu loknu og fá þannig hlýju í kroppinn að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Aðalsagan í þessu
er erfiðleikar
ferðaþjónustunnar, sem
valda því að
vanskilin
skjótast upp.
Yngvi Örn Krist-
insson, hagfræð-
ingur SF