Fréttablaðið - 06.01.2021, Síða 6

Fréttablaðið - 06.01.2021, Síða 6
UMHVERFISMÁL Reykjavíkurtjörn er annað af tveimur vatnssvæðum, eða vatnshlotum, sem skilgreind eru í hættu samkvæmt drögum að Vatnaáætlun fyrir Ísland. Hitt er grunnvatnssvæðið við Keflavíkur­ f lugvöll á Miðnesheiði, hlot sem kallast Rosmhvalanes 2. Umhverfisstofnun vann áætlun­ ina sem verður til kynningar fram á sumar. Hún á að gilda fyrir 2022 til 2027 og felur í sér bæði aðgerðir og vöktun og er sú fyrsta sem gerð er á Íslandi en lengi hefur staðið til að koma verkefninu af stað. Árið 2011 voru sett lög um stjórn vatnamála sem hluta af innleið­ ingu vatnatilskipunar ESB. Nær þetta til allra vatnsauðlinda, svo sem stöðuvatna, áa, grunnvatns og strandsjávar. Vinnan stöðvaðist frá árunum 2014 til 2017 þar sem fjár­ veiting hætti en hófst að nýju 2018. „Við erum afskaplega rík af vatni en til að vernda auðlindina þurfum við að sjá hvar er verið að leggja álag á hana. Annaðhvort í formi meng­ unar eða ofnotkunar,“ segir Aðal­ björg Birna Guttormsdóttir verk­ efnisstjóri hjá Umhverfisstofnun. „Þessari greiningarvinnu er ekki lokið heldur mun hún halda áfram yfir sex ára tímabil í hvert skipti.“ Umhverfisstofnun sér um áætl­ unina en að henni koma ýmsir f leiri, svo sem Veðurstofan, Hafró, sveitar félög in og heilbr igðis­ eftirlitið og er landinu skipt upp í fjögur vatnasvæði. Kostnaðurinn við áætlunina er um 100 milljónir króna á ári. „Stjórnsýslan er ekki mjög þung í kringum þetta og Ísland er skil­ greint sem eitt vatnaumdæmi, miðað við til dæmis tólf umdæmi í Noregi,“ segir Aðalbjörg. Vatninu er skipt niður í áður­ nefnd hlot, alls 2.634 talsins. Geta þau meðal annars verið heil stöðu­ vötn eða hlutar af ám, allt reiknað út frá álaginu. Aðalbjörg segir að heilt yfir sé ástand vatns á Íslandi nokkuð gott miðað við samanburð­ arlönd. Mikill meirihluti hlotanna, 2.614 talsins, er ekki metinn í hættu. Átján eru hins vegar í óvissu og tvö í hættu vegna mengunar. „Verk­ efnið í þessari áætlun er að stýra eða koma í veg fyrir álagið og koma vatnshlotunum í gott ástand,“ segir Aðalbjörg. „Okkur vantar samt meiri upplýsingar um ástand vatns á Íslandi og ætlum að nýta næsta vatnahring í að vakta og safna upp­ lýsingum.“ Í rannsóknum árin 2019 og 2020 fundust ýmis hættuleg efni í Reykja­ víkurtjörn. Meðal annars perflúor­ oktansúlfónsýra, bensóapýren og hexabrómsýklódódekan. Sum þeirra losna við eldsneytisbruna eða finnast í slökkvifroðu. Fer nú af stað vöktun til að fylgjast með áhrifum efnanna á lífríki Tjarnarinnar og kortleggja uppruna efnanna. Á Rosmhvalanesi hefur fundist nokkuð hár styrkur þungmálma á borð við króm og nikkel í grunn­ vatnsmælingum. Fyrir utan þétt­ býlið á staðnum eru þar einnig urðunarstaðir og ýmis mengandi starfsemi. Þá hefur fundist nítr­ at, eða þvagefnismengun vegna íseyðingar á f lugbrautir áður fyrr og olíumengun vegna starfsemi varnarliðsins. Eins og með Tjörnina verður grunnvatnið vaktað og upp­ runi mengunar áfram greindur. Meðal hlota sem sögð eru í óvissu eru Mývatn, Þingvallavatn, hluti Ölfusár og grunnvatn á Stór­Reykja­ víkursvæðinu. Í síðastnefnda tilfell­ inu er metið hugsanlegt að ofanvatn af vegum geti borist í grunnvatnið og úr lekum skolplögnum. Aðalbjörg segir almenning geta tekið þátt í að Ísland nái mark­ miðum að hafa vatn í góðu ástandi. „Við erum að nota og skila efnum út í vatn í okkar daglega lífi. Við ætlum að fá almenning með okkur í lið. Til dæmis með því að sturta ekki niður lyfjaleifum og þvo bíla frekar á bílaþvottastöðvum,“ segir Aðal­ björg. kristinnhaukur@frettabladid.is Mývatn og grunnvatn á Stór-Reykjavíkursvæðinu er í óvissuflokki. Grunnvatn á Miðnesheiði og Tjörnin í Reykjavík í hættu Samkvæmt drögum að Vatnaáætlun eru Reykjavíkurtjörn og grunnvatnið á Miðnesheiði metin í hættu vegna mengunar. Óvissa er um 18 svæði, þar á meðal Mývatn og grunnvatn á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Heildarástand vatns er hins vegar almennt séð gott samkvæmt verkefnisstjóra Umhverfisstofnunar. Vinna við að greina uppruna mengunar og áhrif á lífríki Tjarnarinnar mun nú hefjast. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Georgía í miðdepli Augun hafa beinst að Georgíu í Bandaríkjunum síðustu dagana, en kjósendur í ríkinu gengu að kjörborðinu í gær. Kosið var þar um tvö þingsæti í öldungadeildinni á Bandaríkjaþingi. Kjörstöðum var lokað á miðnætti að íslenskum tíma, en talið verður úr kjörkössunum næstu dagana. Úrslit kosninganna munu skera úr um hvort Repúblikanar muni halda meirihluta í öldungadeildinni eða Demókratar ná völdum þar. FRÉTTALAÐIÐ/GETTY HAMFARIR Yfirvöld í bænum Ask í Gjerdrum í Noregi segja enga von um að þeir þrír sem saknað er eftir að aurskriður féllu á bæinn 30. desember finnist á lífi. Ida Melbo Øystese, lögreglustjóri í Ask, sagði á blaðamannafundi í gær að einbeitingin færi nú í að aðstoða íbúa við að koma lífi sínu í eðlilegt horf á nýjan leik. Tíu manns var saknað eftir ham­ farirnar en sjö hafa fundist látin. Þrátt fyrir að vonin um að finna þá sé talin úti heldur leit samt áfram. Björgunarmenn í bænum þurftu að f lýja annað jarðfall í gær. Fleiri skriður hafa fallið síðustu daga. – hó Útiloka að fleiri finnist á lífi MIÐAUSTURLÖND Í gær var skrifað undir samkomulag sem á að leysa úr langvinnum deilum milli Katar og annarra Arabaríkja við Persaflóa. Um mitt ár 2017 settu Saudí­ Arabía, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmin ásamt Egyptalandi viðskiptabann á Katar, því stjórn­ völd þar styddu hryðjuverk auk þess sem vinaleg samskipti Katar við Íran voru þeim þyrnir í augum. Þóttu það nokkur tíðindi þegar Tamim Al Thani, emírinn af Katar, og Mohammed bin Salman, krón­ prins Sádí­Arabíu, féllust í faðma í fyrsta sinn sem þeir hittust síðan deilan hófst. – bþ Slíðra sverðin við Persaflóa Mohammed bin Salman, krónprins í Sádí-Arabíu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Manntjón varð í skriðum í Ask. COVID -19 Danir hertu í gær tak­ markanir og eru nú samkomur með fleirum en fimm óheimilar. Stjórn völd á Englandi tilkynntu um út göngu bann í fyrrakvöld og Michael Gove, ráðherra í rík is stjórn Boris John son, sagði að landsmenn ættu að búa sig undir að útgöngu­ bann gilti fram í mars. Ítalir ákváðu að halda gildandi sóttvarnaaðgerðum áfram. Þar má fólk hitta vini og vandamenn utan heimilis einu sinni á dag. Ekki mega þó f leiri en tveir fullorðnir koma saman. Talið er að Þjóðverjar muni viðhalda ströngum sóttvarnaað­ gerðum í landinu út mánuðinn. – hó Bannið gæti gilt fram í mars Frá London í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 6 . J A N Ú A R 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.