Fréttablaðið - 06.01.2021, Side 14
Nutrilenk Gold er unnið úr sérvöldum fiskibeinum (aðallega úr hákörlum) sem
eru rík af kondrótíni, kollageni og
kalki og reynslan hefur sýnt að
það hefur hjálpað fjölmörgum sem
finna fyrir eymslum í liðum, þá
sérstaklega hnjám og mjöðmum.
Nutrilenk Gold hentar vel ef
brjósk hefur orðið fyrir hnjaski
og með reglulegri inntöku er hægt
að viðhalda árangrinum. Grund-
vallaratriði er þó að brjóskeyðing
sé ekki alger.
Byggingarefni brjóskvefs
Helstu innihaldsefnin í Nutrilenk
Gold eru kondrótín og kalk en til
þess að gera þessi innihaldsefni
eins virk og kostur er, þá er það
meðhöndlað með ensími (hvata)
sem smækkar stóru mólekúlin og
gerir það frásogunarhæft og virkt
sem byggingarefni fyrir brjóskvef.
Að auki inniheldur Nutrilenk Gold
C-vítamín sem hvetur eðlilega
myndun kollagens sem nauð-
synlegt er til að viðhalda brjóski,
ásamt D-vítamíni og mangan.
Fann strax mun
Kristófer, 82 ára, fór að nota Nutri-
lenk vegna verkja í liðum og stirð-
leika í hnjám með góðum árangri.
„Ég hef alla mína tíð verið svo
heppinn að búa við góða heilsu og
líkaminn verið hraustur. Þó verður
það að viðurkennast að eftir því
sem árunum hefur fjölgað á lífs-
leiðinni hef ég upplifað aukinn
stirðleika og verki í liðamótum.
Ég verð 83 ára á þessu ári og því
má segja að maður hafi sannfært
sjálfan sig um að sætta sig við það
að gönguferðirnar styttust eða
hlaupum upp og niður stigaganga
fækkaði. Sársaukinn sem fylgdi
því að labba upp og niður stiga-
ganginn heima eða gönguferðirnar
í hrauninu var bara orðinn of
mikill til þess að þessi hreyfing
veitti mér sömu ánægju og áður.
Það var miður, þar sem að þetta
var mín leið til að halda heilsunni
við,“ segir Kristófer.
Það var síðan haustið 2018 sem
hann datt inn á að prófa Nutri-
lenk eftir að hafa séð auglýsingu í
blöðunum.
„Ég taldi mig ekki hafa neinu að
tapa en allt að vinna og því fór ég
að taka inn Nutrilenk samvisku-
samlega samkvæmt ráðleggingu
á umbúðunum. Strax þremur
vikum eftir að ég fór að taka
töflurnar fann ég fyrir jákvæðum
breytingum, það er að segja að
verkirnir sem komu við álag á
hnén við gönguferðirnar mínar
eða stigagangsskokkið við að ná
í fréttablöðin á morgnana fóru
minnkandi með viku hverri.“
Heilsuhraustur á ný
„Í dag er ég þannig að ég upplifi
enga verki og er aftur farinn að
njóta þess að styðja við heilsu mína
með þessari hreyfingu þökk sé
Nutrilenk. Ég mæli því eindregið
með að fólk sem er að upplifa verki
í liðum prófi Nutrilenk í einhvern
tíma til að sjá hvort það hjálpi því
eins og það hjálpaði mér. “
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Nutrilenk Gold hentar vel þegar
brjósk hefur orðið fyrir hnjaski.
Helstu innihaldsefnin í Nutrilenk
Gold eru kondrótín og kalk.
Framhald af forsíðu ➛
„Sársaukinn sem fylgdi daglegri hreyfingu var orðin of mikill og farinn að hafa áhrif á lífsgæðin,“ segir Kristófer, alsæll með árangurinn af Nutrilenk Gold.
Léttu lifrinni lífið
• Þreyta og þróttleysi geta verið merki um að mikið álag sé á lifrinni.
• Lifrin er allt í senn; vinnslustöð, geymsla og dreifingarmiðstöð því allt
sem við látum í okkur eða á, fer í vinnsluferli í lifrinni.
• Lifrin sinner yfir 100 mismunandi störfum í líkamanum og tengist hún
beint eða óbeint allri líkamsstarfseminni.
• Active Liver inniheldur kólín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar
starfsemi lifrar og eðlilegum efnaskiptum. Auk þess inniheldur það
ekstrakt frá mjólkurþistil, túrmerik, þistilhjörtum og svörtum pipar
Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum.
Nutrilenk Gold
inniheldur:
n Kondrótín sem unnið er
úr fiskibeinum, aðallega
hákörlum.
n Kalk sem er nauðsynlegt fyrir
viðhald eðlilegra beina.
n Mangan sem stuðlar að við-
haldi eðlilegra beina sem og
eðlilegri myndun bandvefja.
n D-vítamín sem stuðlar að
viðhaldi eðlilegra beina og
vöðvastarfsemi.
n C-vítamín sem stuðlar að
eðlilegri myndun kollagens
fyrir eðlilega starfsemi beina
og brjósks og sem einnig er
þekkt fyrir að draga úr þreytu
og lúa.
Ég tek einungis
tvær töflur á dag
sem er viðhaldsskammt-
urinn og endist glasið
því í þrjá mánuði.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . JA N ÚA R 2 0 2 1 M I ÐV I KU DAG U R