Fréttablaðið - 06.01.2021, Qupperneq 20
Flest teikn á lofti benda til þess að íslenska krónan muni styrkjast á árinu. Bólusetning gegn COVID-19 hér á landi sem erlendis, stór
gjaldeyrisforði, hugsanleg ásókn
erlendra fjárfesta í íslensk hluta- og
skuldabréf á nýju ári auk takmark-
aðrar fjárfestingaþarfar lífeyris-
sjóðanna á erlendum mörkuðum
eru allt þættir sem styðja munu
við gengi krónunnar. Þrátt fyrir
að íslenska hagkerfið hafi gengið
í gegnum eina hörðustu efnahags-
lægð síðari tíma á síðasta ári endaði
gengi krónunnar aðeins fimm til
fimmtán prósentum lægra gagn-
vart helstu viðskiptamyntum undir
lok árs miðað við stöðuna í upphafi
þess.
Snemmsumars á síðasta ári til-
kynnti Seðlabanki Íslands að nokk-
urs konar heiðurmannasamkomu-
lag væri milli lífeyrissjóðakerfisins
og peningamálayfirvalda um að
hinir fyrrnefndu myndu halda aftur
af sér í erlendum fjárfestingum fram
á haustið. Var þetta gert til að draga
úr þrýstingi til veikingar á krón-
una, en á sama tíma var nokkuð
umfangsmikil eignasala erlendra
aðila að eiga sér stað á íslenska
markaðnum.
Engu að síður hélt krónan áfram
að veikjast inn í haustið. Erlendir
hlutabréfamarkaðir tóku svo við
sér allhressilega á fjórða ársfjórð-
ungi, sem orsakaði það að erlend
eignasöfn lífeyrissjóðanna hækk-
uðu mikið. Heimildir Markaðarins
herma að í það minnsta einn stærri
lífeyrissjóðanna hafi hreinlega
þurft að selja hluta eigna sinna
erlendis til að halda hlutfallinu
milli erlendra og innlendra eigna
innan fjárfestingastefnu sinnar. Á
tímabilinu frá maí og til október-
loka á þessu ári hækkuðu erlendar
eignir lífeyrissjóðakerfisins um
ríf lega 14 prósent, einkum og sér
í lagi vegna snarpra hækkana á
erlendum mörkuðum. Það kallaði
á áðurnefnda sölu á erlendum eign-
um. Söluandvirði eignanna hefur
síðan að öllum líkindum ratað inn
á íslenska gjaldeyrismarkaðinn á
síðustu vikum ársins, en það kann
að skýra að hluta snarpa styrkingu
krónunnar gagnvart helstu við-
skiptamyntum frá lok október og
fram í desember.
Fjárfestingaþörf íslenskra lífeyr-
issjóða erlendis er því líklega ekki
jafnmikil og rætt var um á miðju
síðasta ári. Nettó innf læði vegna
innborgana lífeyris er talið nema á
bilinu 120 til 140 milljörðum króna
á ári. Heildarfjárfestingageta líf-
eyrissjóðanna á ári hverju er hins
vegar um 300 milljarðar króna, ef
vaxta- og þáttatekjur fjárfestinga
eru teknar með í reikninginn.
Stöðugt gengi framan af ári
Ragnar Björn Ragnarsson, gjaldeyr-
ismiðlari hjá Arion banka, metur
stöðuna sem svo að fjárfestinga-
þörf lífeyriskerfisins á erlendum
mörkuðum verði á bilinu 50 til 80
milljarðar á næsta ári svo hlutfalli
erlendra og innlendra eigna verði
Ég tel að Seðlabank-
inn viðhaldi þessari
sölu þar til krónan hefur
fengið frekari stuðning frá
ferðaþjónust-
unni.
Ragnar B.
Ragnarsson
gjaldeyrismiðlari
Þórður
Gunnarsson
thg@frettabladid.is
✿ Gengisþróun helstu viðskiptamynta 2020
GBP USD EUR
100
150
200
31. desember 2019 - 31. desember 2020
Horfur á sterkari krónu á nýja árinu
Þrátt fyrir djúpa efnahagskreppu hefur gengi krónunnar lítið gefið eftir. Mikil hækkun eignaverðs á erlendum mörkuðum heldur
aftur af fjárfestingaþörf lífeyriskerfisins. Líklegt að gengi krónunnar verði stöðugt framan af ári en styrkist á síðari hluta ársins.
Endurkoma ferðamanna á sjónarsviðið mun leika lykilhlutverk við styrkingu krónunnar á þessu ári. Gengið hefur þó gefið minna eftir en við var búist þegar landið lokaðist. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hröð hækkun erlendra eigna lífeyriskerfisins
Samkvæmt lögum má hámark er-
lendra eigna lífeyrissjóða vera 50
prósent af heildareignum. Flestir
lífeyrissjóðir hafa hins vegar
markað sér fjárfestingastefnu
sem kveður á um lægra hlutfall en
svo. A-deild Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins hefur þá stefnu
að 45 prósent eigna verði erlend
árið 2025, samtryggingardeild
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
hefur markað sér stefnu um að
erlendar eignir séu öllu jöfnu
40,5 prósent af heildareignum
og Gildi hefur markað sér stefnu
um 39 prósenta hlutfall erlendra
eigna. Hlutfall erlendra eigna í
samtryggingardeildum þessara
þriggja stærstu lífeyrissjóða
landsins var hins vegar komið yfir
40 prósent undir lok september,
en þetta má lesa úr tölum fjár-
málaeftirlits Seðlabanka Íslands
um flokkun á eignum lífeyrissjóð-
anna sem ná til loka september.
Hlutfall erlendra eigna hjá LSR
nam rúmlega 43 prósentum í lok
september. Hlutfall Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, næststærsta
sjóðsins, nam tæplega 43 pró-
sentum og hjá Gildi lífeyrissjóði
var það komið upp í 40 prósent.
Þrátt fyrir að þetta eignahlutfall
sé samkvæmt fjárfestingastefnu
sjóðanna, er venjan sú að þeir
haldi sig aðeins undir fjárfest-
ingastefnu til að hafa svigrúm til
hækkana án þess að vikið sé of
langt frá vikmörkum fjárfestinga-
stefnu þeirra.
1.000
800
600
400
200
Milljarðar
okt. 2016 nóv. 2020
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
%
31,8%
31,3%
Gjaldeyrisforði Seðlabanka ÍslandsHlutfall VLF
✿ Gjaldeyrisforði Seðlabankans
6 . J A N Ú A R 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN