Fréttablaðið - 06.01.2021, Page 38

Fréttablaðið - 06.01.2021, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 ÚTSALA RISA Allt að 60% afsláttur AVILA Glæsilegur hornsófi í Avila línunni. Armar eru breiðir og þægilegir. Setpullur eru háar og í hluta baks er saumað tíglamynstur sem gefur bæði sérstakt útlit og brons litan glampa í vissu ljósi. Fætur eru úr svörtum járnbogum. Stærð: 276 × 210 × 77 cm 224.993 kr. 299.990 kr. AFSLÁTTUR 25% www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Líð á frettabladid.is allar um fólk, menningu, tísku, heilsu og margt eira. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Líð á frettabladid.is allar um fólk, menningu, tísku, heilsu og margt eira. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Hjónin Davíð Örn J ó h a n n s s o n o g Jana Maren Óskars-dóttir hafa staðið í stór ræðu m og nýtt tímann vel í faraldrinum. Þau opna nú búðina Hringekjuna við Þórunnartún 2, sem er það sem margir hafa íslenskað og kallað loppubúð. Þar getur fólk selt notaðar vörur og gefið þeim þar með nýtt líf. Bæði misstu þau vinnuna í fyrstu bylgju COVID-19 en ákváðu að hugsa í lausnum og vinna að opnun Hring- ekjunnar. „Við ákváðum að reyna að nýta sumarið í það að búa okkur til nýtt verkefni til að vinna að saman. Eftir að hafa ferðast vítt og breitt um landið í sumar skaut þessi hug- mynd upp kollinum í bongóblíðu á Seyðisfirði í ágúst og við erum búin að vinna þétt að þessu verkefni síðan,“ segir Davíð Örn. Áhugafólk um endurnýtingu Segðu mér frá tilkomu nafnsins, Hringekjan. „Við eyddum langri helgi í sumar- bústað á Kirkjubæjarklaustri í sept- ember þar sem við fórum í miklar pælingar í þeim tilgangi að finna nafn sem myndi vera íslenskt og hafa góða tengingu í fyrir hvað við stöndum. Hringekjan varð á end- anum fyrir valinu þar sem það er fallegt íslenskt orð sem hefur þessa tengingu við hringrásarhagkerfið sem við vorum að leitast eftir,“ segir Jana Maren. Sjálf hafa þau lengi verið mikið áhugafólk um endurnýtingu. „Í gegnum tíðina höfum við mikið keypt af notuðum fatnaði og innanstokksmunum fyrir heimilið. Einnig verður að árétta að við lifum á þeim tímum þar sem við þurfum öll að fara að vakna upp frá neyslu- hyggjunni ef við ætlum okkur ekki að ganga endanlega frá jörðinni, Hringekjan er okkar framlag í þessa baráttu og vonum við að henni fylgi aukin vitundarvakning til fram- búðar,“ segir Davíð. Í eigin kúlu Hvernig hefur gengið að vinna að opnuninni? „Við höfum í raun og veru verið hálf ónæm fyrir COVID þar sem við erum búin að vera að vinna að þessu verkefni síðustu mánuði í okkar eigin kúlu, það eru kannski frekar jákvæð áhrif sem við höfum orðið fyrir. Vinir og vandamenn hafa haft meiri tíma en ella til þess að veita okkur hjálparhönd og það verður að segjast að öll hjálp sem við höfum fengið frá vinum og vandamönnum er ómetanleg,“ svarar Jana Maren. Hringekjan verður opnuð í dag við Þórunnartún 2. steingerdur@frettabladid.is Þurfum að vakna upp frá neysluhyggjunni Hjónin Davíð Örn og Jana Maren opna í dag loppubúðina Hring- ekjuna við Þórunnartún 2. Þau misstu bæði vinnuna í fyrstu bylgju COVID og ákváðu í kjölfarið að gera eitthvað skemmtilegt saman. Jana og Davíð hafa bæði lengi haft áhuga á endurnýtingu og því lá beint við að stofna loppubúð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EINNIG VERÐUR AÐ ÁRÉTTA AÐ VIÐ LIFUM Á ÞEIM TÍMUM ÞAR SEM VIÐ ÞURFUM ÖLL AÐ FARA AÐ VAKNA UPP ÚR NEYSLUHYGGJ- UNNI EF VIÐ ÆTLUM OKKUR EKKI AÐ GANGA ENDANLEGA FRÁ JÖRÐINNI, HRINGEKJAN ER OKKAR FRAMLAG Í ÞESSA BARÁTTU. Davíð Örn HRINGEKJAN VARÐ Á ENDANUM FYRIR VALINU ÞAR SEM ÞAÐ ER FALLEGT ÍSLENSKT ORÐ SEM HEFUR ÞESSA TENGINGU VIÐ HRINGRÁSARHAGKERFIÐ SEM VIÐ VORUM AÐ LEITAST EFTIR. Jana Maren 6 . J A N Ú A R 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.