Víkurfréttir - 16.12.2020, Blaðsíða 12
Þekking í þína þágu
Óskum öllum nemendum og
Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári og þökkum
samstarfið á árinu sem er að líða.
mss.is
Gleðileg jól
kæru nemendur
Sendum Suðurnesjamönnum
okkar bestu óskir um
gleðileg jól og farsæld
á nýju ári.
Við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.
H
e f ð i r n a r h a f a
breyst nokkuð hjá
okkur í gegnum
á r i n . M e ð a n
krakkarnir voru
litlir þá fórum
við ásamt stórfjölskyldunni í skóg-
ræktarsvæði nærri heimahögunum
og hjuggum okkur jólatré. Við
skárum líka út og bökuðum laufa-
brauð í nokkuð mörg ár og fórum
í skötu á Þorláksmessu hjá bróður
mínum og hans fjölskyldu. Nú
snýst aðventan frekar um að hitta
vini og vandamenn, heimsækja
börnin, barnabörn og aðra í stórfjöl-
skyldunni. Við höfum líka reynt að
sækja jólatónleika og aðra hátíðlega
viðburði í aðdraganda jólanna en
vegna Covid verður dagskráin því
miður lítilfjörleg utan þess að hitta
nánustu ættingja. Það er líka fastur
siður hjá fjölskyldunni að borða
saman í hádeginu á aðfangadag og í
framhaldinu förum með kertaljós og
skreytingu á leiði foreldra Fannars
sem hvíla í Gufuneskirkjugarði. Á að-
fangadagskvöld er systir Fannars,
dætur okkar tvær og fjölskyldur
þeirra hjá okkur. Á jóladag hafa
svo verið jólaboð. Jólin í ár verða
að mörgu leyti öðruvísi þar sem
mamma mín féll frá í ágúst síðast-
liðnum. Hún spilaði stórt hlutverk
í lífi okkar allra í fjölskyldunni og
við söknum mjög vináttu hennar og
samverustunda.
HRAFNHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR
er eiginkona Fannars Jónassonar,
bæjarstjóra í Grindavík:
Aðventan
snýst um að
hitta vini og
vandamenn
Best við jólin er samveran með
fjölskyldunni og þær ljúfu og nota-
legu stundir sem jólahátíðin býður
upp á. Við höfum reynt að taka lífinu
með ró á öðrum degi jóla og haldið
okkur heima við, lesið góðar bækur
og notið tilverunnar.
Ég hlakka til jólanna þó að þau
verði með öðrum hætti en venjulega.
Við munum einungis hitta nánustu
fjölskyldumeðlimi en stórfjölskyldan
verður aðeins sýnileg á samskipta-
miðlunum. Við hugsum hlýlega hvert
til annars og gerum það besta úr að-
stæðum. Von mín er sú að ekkert
okkar smitist af veirunni en því
miður eru ekki allir landsmenn sem
sleppa undan þeim vágesti.
Ég mundi segja að ég væri jóla-
barn. Ég hef gaman af og reyni að
njóta þess sem jólin hafa upp á að
bjóða. Nýt samverunnar, ljósanna,
kyrrðarinnar og hátíðleikans.
Ég skreyti ekkert sérstaklega
mikið, svona hæfilega fyrir minn
smekk. Ég nýt þess að kveikja á
kertum og er mikið fyrir allt greni,
nota það nokkuð mikið og geri alltaf
útikrans. Ég á mitt uppáhaldsskraut
sem ég set upp um hver jól og hef
gert öll mín búskaparár, ekkert mikið
verið að breyta þar. Ég er að tína
skrautið upp smátt og smátt alla að-
ventuna og enda á að setja upp jóla-
tréð stuttu fyrir jól. Það spaugilega
er að jólaskrautið sem börnin bjuggu
til á unga aldri fer alltaf upp, þó að
það standist ekki samanburð við
flottustu skreytingar nútímans.
Mér finnst einstaklega gaman og
gott að fá að búa hér, kynnast mann-
lífinu og kraftinum í fólkinu sem hér
býr. Í Grindavík er öflugt atvinnulíf
með stórum og smáum fyrirtækjum
sem og listamenn og handverksfólk
sem auðgar tilveruna. Hér er líka
óhemju fallegt, ógnarkraftur í sjónum
og stórbrotin náttúra, hraunið og
gróðurinn með sínum óendanlega
fallegu litum. Það er gaman að geta
sagt með stolti frá því hvar þú býrð.
Nú eru aðrir tímar vegna Covid
en það hefur skapast skemmtileg
stemmning í kringum „fjörugan
föstudag“ sem haldinn hefur verið
nokkru fyrir jól. Þá eru verslanir og
fyrirtæki hér í Grindavík með opið
fram á kvöld og ýmislegt í boði fyrir
gesti og gangandi. Þarna hefur verið
margt um manninn og fyrstu merki
þess að það styttist í jól. Það sem
ég hef tekið eftir er hversu bæjar-
búar eru duglegir að setja upp falleg
jólaljós og eins má ég til með að
nefna ljósin sem HS Orka varpar á
mannvirkin í Svartsengi í kringum
jólin. Lýsingin og gufan sem stígur
uppljómuð frá iðrum jarðar setur
hátíðarbrag á hið dulmagnaða um-
hverfi. Svo hafa tónlistarmenn lagt
sitt af mörkum við að auðga á hátíð-
leika jólanna.
Það er aðeins ein smákökutegund
sem ég baka alltaf fyrir jólin en það
eru súkkulaðibitkökur sem bakaðar
voru á mínu heimili þegar ég var að
alast upp. Þessi uppskrift er í miklu
uppáhaldi og það mun þurfa mikið
til að ég sleppi þeim bakstri fyrir
jól. Annað baka ég eftir því sem mig
langar og hef tíma til, ekkert stress í
kringum það.“
Súkkulaðibitakökur
1 bolli smjör
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
3 bollar hveiti
1 bolli kókosmjöl
1 tsk. natron
½ tsk. salt
200 gr. suðusúkkulaði
Byrjið á að þeyta vel saman smjör
og sykur, bætið eggjunum við og
þeytið áfram. Blandið þurrefnum
og brytjuðu súkkulaði varlega
saman við. Búið til litlar kökur og
bakið í 200° heitum ofni í u.þ.b.
10 mínútur.
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
12 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár