Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2020, Side 12

Víkurfréttir - 16.12.2020, Side 12
Þekking í þína þágu Óskum öllum nemendum og Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. mss.is Gleðileg jól kæru nemendur Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári. H e f ð i r n a r h a f a breyst nokkuð hjá okkur í gegnum á r i n . M e ð a n krakkarnir voru litlir þá fórum við ásamt stórfjölskyldunni í skóg- ræktarsvæði nærri heimahögunum og hjuggum okkur jólatré. Við skárum líka út og bökuðum laufa- brauð í nokkuð mörg ár og fórum í skötu á Þorláksmessu hjá bróður mínum og hans fjölskyldu. Nú snýst aðventan frekar um að hitta vini og vandamenn, heimsækja börnin, barnabörn og aðra í stórfjöl- skyldunni. Við höfum líka reynt að sækja jólatónleika og aðra hátíðlega viðburði í aðdraganda jólanna en vegna Covid verður dagskráin því miður lítilfjörleg utan þess að hitta nánustu ættingja. Það er líka fastur siður hjá fjölskyldunni að borða saman í hádeginu á aðfangadag og í framhaldinu förum með kertaljós og skreytingu á leiði foreldra Fannars sem hvíla í Gufuneskirkjugarði. Á að- fangadagskvöld er systir Fannars, dætur okkar tvær og fjölskyldur þeirra hjá okkur. Á jóladag hafa svo verið jólaboð. Jólin í ár verða að mörgu leyti öðruvísi þar sem mamma mín féll frá í ágúst síðast- liðnum. Hún spilaði stórt hlutverk í lífi okkar allra í fjölskyldunni og við söknum mjög vináttu hennar og samverustunda. HRAFNHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR er eiginkona Fannars Jónassonar, bæjarstjóra í Grindavík: Aðventan snýst um að hitta vini og vandamenn Best við jólin er samveran með fjölskyldunni og þær ljúfu og nota- legu stundir sem jólahátíðin býður upp á. Við höfum reynt að taka lífinu með ró á öðrum degi jóla og haldið okkur heima við, lesið góðar bækur og notið tilverunnar. Ég hlakka til jólanna þó að þau verði með öðrum hætti en venjulega. Við munum einungis hitta nánustu fjölskyldumeðlimi en stórfjölskyldan verður aðeins sýnileg á samskipta- miðlunum. Við hugsum hlýlega hvert til annars og gerum það besta úr að- stæðum. Von mín er sú að ekkert okkar smitist af veirunni en því miður eru ekki allir landsmenn sem sleppa undan þeim vágesti. Ég mundi segja að ég væri jóla- barn. Ég hef gaman af og reyni að njóta þess sem jólin hafa upp á að bjóða. Nýt samverunnar, ljósanna, kyrrðarinnar og hátíðleikans. Ég skreyti ekkert sérstaklega mikið, svona hæfilega fyrir minn smekk. Ég nýt þess að kveikja á kertum og er mikið fyrir allt greni, nota það nokkuð mikið og geri alltaf útikrans. Ég á mitt uppáhaldsskraut sem ég set upp um hver jól og hef gert öll mín búskaparár, ekkert mikið verið að breyta þar. Ég er að tína skrautið upp smátt og smátt alla að- ventuna og enda á að setja upp jóla- tréð stuttu fyrir jól. Það spaugilega er að jólaskrautið sem börnin bjuggu til á unga aldri fer alltaf upp, þó að það standist ekki samanburð við flottustu skreytingar nútímans. Mér finnst einstaklega gaman og gott að fá að búa hér, kynnast mann- lífinu og kraftinum í fólkinu sem hér býr. Í Grindavík er öflugt atvinnulíf með stórum og smáum fyrirtækjum sem og listamenn og handverksfólk sem auðgar tilveruna. Hér er líka óhemju fallegt, ógnarkraftur í sjónum og stórbrotin náttúra, hraunið og gróðurinn með sínum óendanlega fallegu litum. Það er gaman að geta sagt með stolti frá því hvar þú býrð. Nú eru aðrir tímar vegna Covid en það hefur skapast skemmtileg stemmning í kringum „fjörugan föstudag“ sem haldinn hefur verið nokkru fyrir jól. Þá eru verslanir og fyrirtæki hér í Grindavík með opið fram á kvöld og ýmislegt í boði fyrir gesti og gangandi. Þarna hefur verið margt um manninn og fyrstu merki þess að það styttist í jól. Það sem ég hef tekið eftir er hversu bæjar- búar eru duglegir að setja upp falleg jólaljós og eins má ég til með að nefna ljósin sem HS Orka varpar á mannvirkin í Svartsengi í kringum jólin. Lýsingin og gufan sem stígur uppljómuð frá iðrum jarðar setur hátíðarbrag á hið dulmagnaða um- hverfi. Svo hafa tónlistarmenn lagt sitt af mörkum við að auðga á hátíð- leika jólanna. Það er aðeins ein smákökutegund sem ég baka alltaf fyrir jólin en það eru súkkulaðibitkökur sem bakaðar voru á mínu heimili þegar ég var að alast upp. Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi og það mun þurfa mikið til að ég sleppi þeim bakstri fyrir jól. Annað baka ég eftir því sem mig langar og hef tíma til, ekkert stress í kringum það.“ Súkkulaðibitakökur 1 bolli smjör 1 bolli sykur 1 bolli púðursykur 2 egg 3 bollar hveiti 1 bolli kókosmjöl 1 tsk. natron ½ tsk. salt 200 gr. suðusúkkulaði Byrjið á að þeyta vel saman smjör og sykur, bætið eggjunum við og þeytið áfram. Blandið þurrefnum og brytjuðu súkkulaði varlega saman við. Búið til litlar kökur og bakið í 200° heitum ofni í u.þ.b. 10 mínútur. FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS 12 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.