Víkurfréttir - 16.12.2020, Blaðsíða 52
nýlega á Markaðsstofu Reykjaness
til að gá hvers konar markaðsþjón-
ustu þau geta veitt mér varðandi
reksturinn. Þar var tekið vel á móti
mér og ég er komin í samræður við
þau um framhaldið, sé enn fleiri ný
tækifæri og hvernig uppbyggingu
hægt er að skapa í ferðamennsku á
Reykjanesi. Það var virkilega gott
að tengjast þeim sem starfa á Mark-
aðsstofu Reykjaness, frambærilegt
fólk og við erum að skoða saman
skemmtilega möguleika. Það væri
gaman að sjá ferðaþjónustuaðila
hér á svæðinu taka höndum saman
og einnig þá sem geta boðið upp á
upplifanir. Samvinna er ávinningur
fyrir alla og ekki síst fyrir Reykjanes
sem við viljum koma betur á kortið.“
Allskonar ferðamenn geta
notið sín hér hjá okkur
Kata er ekki eingöngu að hugsa
um erlenda ferðamenn heldur veit
hún að framtíðin í ferðamennsku
á Íslandi snýst einnig um fólkið í
landinu. Það má ekki gleyma þeim
sem búa hér allt árið, þessu fólki
langar einnig að njóta lands síns.
Það sáum við svo glöggt í sumar
þegar fólk komst ekki til útlanda.
Íslendingar og aðrir eru að upp-
götva Ísland sem áfangastað og nú
þarf að kynna Reykjanes fyrir þeim,
töfrana sem eru hér í náttúrunni og
því kraftmikla fólki sem býr hér á
Suðurnesjum. Kata er með ákveðnar
hugmyndir.
„Við erum ekki bara að tala um er-
lenda ferðamenn, heldur einnig fólkið
sem býr í landinu. Við viljum fá það
til að koma í heimsókn og upplifa
magnaða náttúru hér. Náttúruöflin í
allri sinni mynd. Það er mjög algengt
með erlenda ferðamenn að þeir eyði
fyrstu og síðustu nóttinni hér hjá
okkur en við þurfum að fá þau til að
stoppa lengur, sjá meira af svæðinu.
Fólk gerir sé oft ekki grein fyrir hvað
svæðið hefur upp á margt að bjóða.
Ég veit að landfræðingar og jarð-
eðlisfræðingar sjá Reykjanesskagann
sem hafsjó tækifæra til rannsókna og
skoðunar en svæðið er einnig svo dul-
magnað. Það er þessi dulúð sem hvílir
yfir svæðinu sem getur leitt gesti til
okkar, bæði innlenda og erlenda. Það
er nóg í boði af upplifunum hér og ef
við tökum okkur saman þá getum við
skapað öflugan segul á Reykjanesi og
haldið ferðamönnum lengur. Þar sé
ég tækifæri.
Mig langar að gestir sem leita til
mín í Nátthaga geti fundið innri frið
og ró, tengingu við náttúruna og
upplifi ákveðna heilun í náttúrunni.
Húsin mín gefa möguleika á alls-
Sendum viðskiptavinum okkar
og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð
og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin
á árinu sem er að líða!
Borg
Gistiheimili
Leikskólinn Völlur
Tannlæknastofan
Skólavegi 10
Ég ásamt Signe Skriver frá Kaupmannahöfn við búddahof á Tælandi. Í dag
er hún ein af mínum bestu vinkonum, heimsflakkari eins og ég.
Í Mið-Ameríku mátti sjá mikið af hermönnum. Hér kynntist
ég og Anja, belgískur ferðafélagi minn, tveimur slíkum
og fengum við að forvitnast um hugarheim þeirra.
52 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár