Skessuhorn - 12.02.2020, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 20206
Þungatakmark-
anir í gildi
VESTURLAND: Vegagerðin
hefur tilkynnt að ásþungi öku-
tækja er takmarkaður við 10
tonn á Vestfjarðavegi (60) frá
Dalsmynni í Norðurárdal yfir
Bröttubrekku og að Bjarkalundi
í Reykhólasveit. Sömuleið-
is á Laxárdalsvegi (59). Þessar
þungatakmarkanir tóku gildi kl.
08:00 síðastliðinn fimmtudag.
Þá var frá sama tíma ásþungi
takmarkaður við 7 tonn á Snæ-
fellsnesvegi (54) frá Bíldhóli að
Stykkishólmsvegi. -mm
Viðbúnaður þeg-
ar skúta strandaði
SV-LAND: Mikill viðbúnað-
ur viðbragðsaðila var síðast-
liðið fimmtudagskvöld þegar
farþegaskúta með 18 manns um
borð strandaði við Lundey, á
sundunum skammt norðan við
Reykjavík. Tiltækar sjóbjörgun-
arsveitir á höfuðborgarsvæðinu
og allt til Akraness voru kallaðar
út á hæsta forgangi sem og þyrla
Landhelgisgæslunnar. Áhöfn
skútunnar tókst skömmu síðar
að losa bátinn og var henni fylgt
til hafnar í Reykjavík án þess að
nokkurn sakaði. Viðbragðaðilar
voru því fljótlega kallaðir heim
að nýju. Báturinn mun hafa
strandað á sandrifi og skemmd-
ist ekki. -mm
Út af við
Fornahvamm
BORGARFJ: Bílvelta varð í of-
anverðum Norðurárdal á móts
við Fornahvamm á mánudags-
kvöldið. Bíll hafði þá runnið til
á vegi, lent utan vegar og hafn-
að á hliðinni. Fólkið úr bílnum
var flutt til aðhlynningar, fyrst á
Heilsugæslustöð HVE í Borg-
arnesi en síðan áfram á Akra-
nes. Að sögn lögreglu var ekki
talið að um alvarleg meiðsli hafi
verið að ræða. -mm
Vinna markaðs-
stefnumótun
BORGARBYGGÐ: Síð-
astliðið haust ákvað Borgar-
byggð að ganga til samstarfs
við markaðsráðgjafafyrirtæk-
ið Manhattan við gerð mark-
aðsstefnumótunar fyrir sveit-
arfélagið. Vinnan hófst í des-
ember síðastliðnum og áætlað
er að henni ljúki á vormánuð-
um 2020. „Verkefnið felst í því
að búa til heildstæða markaðs-
stefnumótun og aðgerðar-
áætlun fyrir Borgarbyggð sem
spennandi stað til að búa á,
reka fyrirtæki og sækja heim.
Í ferlinu er lögð áhersla á að-
komu og þátttöku íbúa, fyr-
irtækja og hagsmunaaðila í
sveitarfélaginu, meðal ann-
ars í gegnum einstaklingsvið-
töl, rýnihópa og opna fundi
sem verða auglýstir síðar. Við
lok vinnunnar á að liggja fyr-
ir heildstæð markaðsgreining,
markaðsleg stefnumótun og
markaðs- og aðgerðaráætlun
fyrir Borgarbyggð,“ segir í til-
kynningu frá Borgarbyggð.
-mm
Margir teknir á
of miklum hraða
AKRANES: Lögreglan á
Vesturlandi sinnti sem fyrr
hefðbundnu eftirliti með öku-
hraða í vikunni sem leið. Í há-
deginu þriðjudaginn 4. febrúar
var hraði 99 ókutækja mældur
á Innnesvegi við Grundaskóla
á Akranesi og reyndust tíu aka
of greitt og fá því sekt í kladd-
ann. Vekur lögregla athygli
á að mikil umferð gangandi
barna er á þessum stað á leið
milli skóla og íþróttamann-
virkja. Hámarkshraði er því
30 km/klst. Á miðvikudags-
morgni fylgdist lögregla með
umferð á Þjóðbraut á móts við
Bónus á Akranesi. Á klukku-
stund eftir 6:30 óku 163 bílar
um veginn og voru sex kærðir
fyrir of hraðan akstur. Sá sem
hraðast ók var á 70 km hraða
en hámarkshraði er 50. -mm
Úrrennsli og
ófærð
HVALFJ: Samhliða asahláku
um miðja síðustu viku jókst
vatn í ám og lækjum víða í
Borgarfirði. Að morgni mið-
vikudags var tilkynnt um
klaka stíflu í vegræsi á Hval-
fjarðarvegi neðan við Miðfell,
skammt frá afleggjaranum að
Kalastaðakoti. Runnið hafði
úr veginum og voru aðstæð-
ur hættulegar ef ekki var ekið
með gát. Í dagbók lögreglu
er ekki getið um meiriháttar
tjón á umferðarmannvirkjum í
landshlutanum vegna leysing-
anna. Sökum veðurs var nokk-
uð um útköll lögreglu í síðustu
viku. Tilkynnt var um húsþak
á túni við Fiskilæk í Melasveit
5. febrúar. Sama dag var grjót-
hrun á Snæfellsnesvegi, en
stórt grjót og íshröngl hafði
fallið á veginn við Búlandsgil.
Lögregla fékk Vegagerðina
til að hreinsa veginn. Á laug-
ardaginn rann flutnignabíll
til og þveraði veginn við Há-
brekku á Vatnaleið. Síðastlið-
inn mánudag var tilkynnt um
fasta bíla á Vestfjarðavegi, en
að sögn lögreglu berast slík-
ar tilkynningar reglulega um
þessar mundir. -mm
Stefnt er að því að setja upp örygg-
ismyndavélar við alla stærri þétt-
býliskjarna í landshlutanum. Það
er Lögreglan á Vesturlandi, sveitar-
félögin í landshlutanum og Neyð-
arlínan sem vinna að verkefninu í
sameiningu. Að sögn Jóns S. Óla-
sonar, yfirlögregluþjóns hjá Lög-
reglunni á Vesturlandi, hefur upp-
setning slíkra myndavéla verið sam-
þykkt á Akranesi, í Borgarbyggð og
Stykkishólmi. Þá sé til athugunar
að koma slíkum myndavélum fyr-
ir víðar í landshlutanum, svo sem í
Grundarfirði, Snæfellsbæ og jafn-
vel á enn öðrum stöðum.
„Um er að ræða myndavélar sem
munu fylgjast með allri umferð sem
fer framhjá þeim. Þær geta lesið á
skráningarnúmer bifreiða og upp-
takan gengur bara inn í gagna-
banka,“ segir Jón í samtali við
Skessuhorn. Hann telur að mynda-
vélarnar komi til með að styðja vel
við allt almennt eftirlit lögreglu og
auðvelda vinnu hennar. Mynda-
vélar sem þessar hafi þegar verið
settar upp á höfuðborgarsvæðinu
og við bæi á Suðurlandi. „Þær hafa
reynst mjög vel,“ segir Jón og tekur
dæmi: „Ef bíl er stolið í Reykjavík
og til hans hefur sést ekið í átt að
Selfossi, þá getur lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu haft samband við
kollegana sína á Selfossi. Þeir kíkja
í myndavélarnar hjá sér og sjá strax
hvort bíllinn hefur farið þar í gegn
eða ekki,“ segir hann. En verða
myndavélarnar þá settar upp við
allar inn- og útgönguleiðir stærri
þéttbýliskjarna landshlutans? „Það
hefur ekki verið endanlega ákveð-
ið en hugmyndin er að þær verði
við allar leiðir inn og út úr bæjum,“
segir Jón.
„Aðeins ef þörf krefur“
Spurður um kostnaðinn sem af
þessu mun hljótast segir Jón að
áætlanir Neyðarlínu geri ráð fyrir
að hver staur með myndavél komi
til með að kosta um 1,5 millj-
ón króna. Kostnaður við tenging-
ar geti þó verið mismunandi eftir
stöðum og bætist við stofnkostn-
aðinn. Þá sé misjafnt eftir bæjum
hve margar vélar þurfi að setja upp
á hverjum stað. „Sveitarfélögin
kaupa vélarnar og bera kostnað
af uppsetningu þeirra. Lögregla
kaupir miðlægan búnað sem veit-
ir aðgang að upplýsingunum sem
myndavélarnar safna og Neyðar-
línan annast framkvæmd við verk-
efnið,“ útskýrir hann.
En hvenær mega íbúar þessarra
bæja búast við því að myndavél-
arnar verði settar upp? „Málið er
lengst komið á Akranesi og styst
í að vélarnar verði settar upp þar.
En ég get ekki nefnt neina dag-
setningu enn, það kemur bara í ljós
hversu langan tíma þetta tekur,“
segir Jón og bætir því við að lokum
að lögregla muni ekki fylgjast með
vélunum frá degi til dags. „En ef
eitthvað kemur upp á verður hægt
að sækja upplýsingarnar,“ segir
hann. „Aðeins lögregla mun hafa
aðgang að þessum upplýsingum og
einungis ef þörf krefur,“ segir Jón
S. Ólason að endingu.
kgk
Öryggismyndavélar hafa þegar verið settar upp annars staðar á landinu, svo sem
á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Ljósm. Lögreglan á Suðurlandi.
Öryggismyndavélar við alla stærri bæi
Spár gera ráð fyrir að sérlega djúp
lægð nálgist landið úr suðvestri og
skelli á landinu aðfararnótt næsta
föstudags. Veður tekur svo að ganga
niður á föstudagskvöld. Gul við-
vörun er í gild. Þrýstingur í lægð-
armiðju gæti orðið 930 hPa sem
er með dýpri lægðum. Búist er við
austlægum stormi, roki eða ofsa-
veðri, og að hvassast verði sunnan-
til á landinu framan af degi. Víða
auk þess snjókoma eða slydda, úr-
komumest sunnan- og austanlands.
Hlýnandi veður, rigning á láglendi
um landið sunnanvert og við aust-
urströndina seinnipartinn með hita
1 til 5 stig, en vægt frost verður fyr-
ir norðan. Talsvert hægari vindur á
landinu um kvöldið.
Þessu munu fylgja víðtækar sam-
göngutruflanir, ekkert ferðveður er
á meðan viðvörunin er í gildi. Lík-
ur eru á foktjóni, sér í lagi sunn-
antil á landinu. „Fólki er bent á að
sýna varkárni til að fyrirbyggja slys
og festa lausamuni eins og frekast
er kostur. Einnig má búast má við
hárri sjávarstöðu vegna áhlaðanda,“
segir í tilkynningu frá Veðurstofu
Íslands. mm
Ofsaveðri spáð á föstudaginn