Skessuhorn


Skessuhorn - 12.02.2020, Side 12

Skessuhorn - 12.02.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 202012 Ryk í Hvalfjarðargöngum má að mestu rekja til fylliefna í malbiki og eðlilegt að líta svo á að bindi- efni malbiks slitni í réttu hlutfalli við hluta þess á móti hluta fylliefna. „Því má segja að malbikið í göng- unum sé langstærsti þáttur í upp- runa fallryks í Hvalfjarðargöng- um,“ segir í skýrslu Nýsköpunar- miðstöðvar Íslands um samsetn- ingu og uppruna svifryks í göng- unum. Skýrslan byggir á rannsókn á ryki í göngunum frá 17. janúar 2017 til 13. júní 2018. Ryk sem myndast vegna útblást- urs frá ökutækjum, sem og vegna slits bremsuborða og dekkjaslits á einnig sinn þátt í rykmyndun í göngunum. Töluverðar líkur eru á að verulegur hluti ryksins eigi upp- runa sinn til dekkjaslits, að því er fram kemur í skýrslunni. Áætlað er að um eitt sett af dekkjum eyðist upp á sólarhring í göngunum, m.v. umferð 5.600 bíla á sólarhring. Meira ryk á veturna Verulegur munur er á svifryks- myndun að vetri og sumri. Með- alsvifryksmyndun fyrir árið 2017 var um 116 míkrógrömm á hvern rúmmetra. Fyrir tímabil- ið frá áramótum til 1. maí mæld- ist styrkurinn 186 míkrógrömm en 128 míkrógrömm frá frá 1. nóv. til áramóta. Frá 1. júní til 1. október var meðaltalið hins veg- ar 43 míkrógrömm á rúmmetra, en á því tímabili er notkun nagla- dekkja óheimil. „Af þessum nið- urstöðum er ljóst að notkun nagladekkja hefur veruleg áhrif á svifryksmyndun í göngunum,“ segir í skýrslunni. „Það er athygl- isvert að enda þótt magn svifryks minnki verulega yfir sumarmán- uðina þá er ekki að sjá að sam- setning ryksins breytist að neinu ráði samfara því,“ segir þar enn fremur. kgk Laugardaginn 14. mars næstkom- andi ætlar Rótarýklúbbur Borgarness að standa fyrir fyrirtækjakynningu í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þetta er í þriðja skipti sem klúbburinn stend- ur fyrir slíkri kynningu en þær hafa áður verið haldnar 2012 og 2014. Að sögn Margrétar Vagnsdóttur forseta klúbbsins er markmiðið með verk- efninu að gefa öllum rekstraraðilum á starfssvæðinu tækifæri til að kynna starfsemi sína á heimavettvangi og vekja um leið athygli samfélagsins á viðkomandi starfsemi. Þetta er ekki síður hugsað til þess að efla sam- stöðu rekstraraðila á heimavettvangi. Dreifibréf hefur nú verið sent á skráð fyrirtæki í Borgarbyggð, en Margrét vekur athygli á að ekki sé tryggt að öll fyrirtæki séu á þeim lista sem klúbb- urinn hefur undir höndum. Engu að síður eru öll fyrirtæki, líka þau sem skráð eru á kennitölu eigenda, vel- komin til þátttöku. „Skipulag kynningarinnar verður með þeim hætti að fyrirtækin leigja rými undir starfsemi sína og leggja sjálf til allt kynningarefni sem í boði verður. Kostnaði við þátttöku verður stillt í hóf, minnstu rýmin verða leigð á 10.000 krónur, miðrýmin á 20.000 krónur og þau stærstu á 40 þúsund krónur. Uppsetning kynningarefnis fer fram í Hjálmakletti föstudaginn 13. mars, en við munum kynna allar nánari upplýsingar þegar nær dregur og ljóst er hversu mörg fyrirtæki skrá þátttöku sína,“ segir Margrét. Stefnt er að því að halda málstofu áður en kynningar á Fyrirtækjadegin- um hefjast og verður hún sömuleiðis kynnt síðar. Rótarýklúbburinn mun svo sjá um allar auglýsingar vegna þessa m.a. í Íbúanum og Skessu- horni. Rótaryklúbburinn leitar nú til fyrirtækja á starfssvæðinu um þátt- töku í þessu verkefni. Unnt er að skrá þátttöku með því að senda tölvupóst á margretv@bifrost.is eða magnusfjeldsted73@gmail. com Skráningu lýkur 29. febrúar nk. mm Sigurður Páll Jónsson, þingmað- ur Miðflokksins í Norðvesturkjör- dæmi, gerði Skógarstrandarveg að umtalsefni sínu í ræðu á Alþingi þriðjudaginn 4. febrúar. Hann byrjaði á að tala um að Siglufjörður hefði gengið í endunýjun lífdaga. Eftir mögur ár upp úr 1970 væri bærinn aftur kominn á kortið. „Í mínum huga er þar aðallega hægt að benda á góðar samgöngur,“ sagði Sigurður Páll og vék sér síðan að veginum um Skógarströnd. „Hví er ég að tala um þetta? Jú, það er veg- ur fyrir vestan, á Vesturlandi, Skóg- arstrandarvegur fyrir austan Stykk- ishólm og inn í Búðardal, sem er í mínum huga sorglegt að skuli ekki vera inni á samgönguáætlun. Hann var tekinn út af samgönguáætlun nú síðast,“ sagði Sigurður Páll. Fulltrúar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, ásamt bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar, fóru til fundar við umhverfis- og samgöngunefnd þennan sama morgun. Sigurður Páll segir að þar hafi þeir brýnt fyr- ir nefndarmönnum að gera allt til að fá þennan veg aftur inn á sam- gönguáætlun. Stjórnendur Stykkishólmsbæjar og Dalabyggðar hafa áður gagn- rýnt harðlega að Skógarstrandar- vegur sé ekki á áætlun, sem og SSV, eins og fram hefur komið í Skessu- horni. Tók Sigurður Páll undir þá gagnrýni í ræðu sinni. „Þetta er malarvegur þar sem slysatíðni er mjög há og er mikill flöskuháls í samgöngum fyrir austan Stykkis- hólm og inn í Dali. Ferðamenn fara þennan veg vegna þess að GPS- tækið þeirra leiðir þá á þennan veg, en þarna er alltof mikið um slys. Þungaflutningar eru þarna of mik- ir og vegurinn ber þá bara alls ekki uppi. Þannig að samgöngur skipta gríðarlegu máli og því verðum við að koma þessum vegi í stand alveg eins og öllum öðrum vegum sem eru í niðurníðslu,“ sagði Sigurður Páll Jónsson í ræðustól Alþingis. kgk Mest af ryki úr malbikinu Hvalfjarðargöng hreinsuð. Áætlað er að jafnaði einn dekkjagangur spænist upp á hverjum degi í göngunum og skilji eftir tilheyrandi svifryksmengun. Ljósm. úr safni. Svipmyndir frá fyrirtækjadegi Rótarýklúbbs Borgarness 2014. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Rótarýklúbburinn stefnir á fyrirtækjadag í Borgarbyggð Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins. „Verðum að koma þessum vegi í stand“ Frá Skógarstrandarvegi. Ljósm. bj.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.