Skessuhorn - 12.02.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 2020 13
VÉLAMAÐUR
Laust er starf vélamanns á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi
FAGMENNSKA
ÖRYGGI
FRAMSÝNI
Starfssvið
Almenn dagleg þjónusta á vegakerfinu.•
Viðhald á t.d. vegstikum, umferðamerkjum og öðrum •
vegbúnaði.
Vinna á vélum t.d. dráttarvél og veghefli.•
Viðhald á tækjum og húsnæði Vegagerðarinnar.•
Menntunar- og hæfniskröfur•
Almenn menntun.•
Vinnuvélaréttindi og meirapróf bifreiða eru skilyrði.•
Hæfni í mannlegum samskiptum.•
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp.•
Góð kunnátta í íslensku•
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. Umsóknir berist Vegagerðinni í gegnum
vef á www.starfatorg.is . í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt
upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er.
Nánari upplýsingar um starfið veita Valgeir Ingólfsson yfirverkstjóri og Kristinn
Gunnar Lyngmo deildarstjóri umsjónardeildr í síma 522 1000 eða í gegnum netföngin
valgeir.ingolfsson@vegagerdin.is og kristinn.g.k.lyngmo@vegagerdin.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
SUMARSTARFSFÓLK
Í SAL OG Í ELDHÚS
Grillhúsið í Borgarnesi auglýsir eftir sumarstarfsfólki fyrir sumarið 2020.
Viðkomandi þarf að vera orðinn 18. ára.
Vera hress, jákvæður og hafa gaman af lífinu•
Hafa ríka þjónustulund•
Íslensku kunnátta æskileg, ensku kunnátta skilyrði•
Vinna vel undir pressu•
Frekari upplýsingar veitir rekstrastjóri í síma 4371282 eða á borgarnes@grillhúsið.is
Umsóknir fyllist út á https://grillhúsið.is/page/atvinna
Samhliða úrhellisrigningu og hláku
á þriðjudagskvöld og miðvikudag
í liðinni viku um vestanvert land-
ið ruddu árnar í landshlutanum sig.
Klakastíflur hlóðust í ár, læki og
ræsi og víða flæddu ár yfir bakka
sína. Ekki er vitað til að vegir hafi
skemmst svo neinu nemur af þeim
sökum. En dæmi voru um stífluð
vegræsi og að grafist hafi úr veg-
köntum. Meðfylgjandi myndir eru
úr Borgarfirði á miðvikudag.
mm
Glöggir vegfarendur um Hellis-
sand hafa tekið eftir því að búið er
að setja að nýju upp kross á mal-
arhaug sem stendur á svæðinu þar
sem fyrirhugað er að reisa nýja
Þjóðgarðsmiðstöð. Er þetta í annað
skipti sem krossinn er settur upp en
í fyrra skiptið var hann settur upp
þar sem framkvæmdir við þjóð-
garðsmiðstöðina gengu ekkert.
Saga meintra byggingafram-
kvæmda er orðin býsna löng. Þjóð-
garðurinn Snæfellsjökull var stofn-
aður 2001 en fimm árum síðar var
efnt til opinnar samkeppni um
byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar á
Hellissandi. Bankahrunið setti þó
strik í reikninginn og það var því
ekki fyrr en í ágúst 2016 sem tek-
in var fyrsta skóflustungan að þjóð-
garðsmiðstöðinni. Það gerði Sigrún
Magnúsdóttir þáverandi umhverfis-
ráðherra enda stóðu þá vonir til að
miðstöðin yrði tilbúin til notkun-
ar í byrjun árs 2020. Var þá kross-
inn tekinn niður. Þau áform gengu
þó ekki eftir og enn er ekki kom-
in nein þjóðgarðsmiðstöð, þó jarð-
vegsframkvæmdir hafi byrjað 2018
í kjölfar þess að Guðmundur Ingi
Guðbrandsson umhverfisráðherra
tók með táknrænum hætti í byrjun
apríl á síðasta ári aðra skóflustungu
að hinni meintu miðstöð. Var bygg-
ing Þjóðgarðsmiðstöðvar svo boðin
út um mitt árið og tilboð opnuð í
byrjun júní. Reyndust þau öll langt
yfir kostnaðaráætlun, ekkert hefur
gerst í framhaldinu og krossinn því
mættur á sinn stað, yfirvöldum til
áminningar.
þa
Á fundi stjórnar Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi í síðustu viku
var rætt um snjómokstur á Vest-
urlandi og mikilvægi þess að ekki
verði dregið úr mokstri þrátt fyrir
að fjárveitingar hafi ekki tekið mið
af þeim aðstæðum sem verið hafa í
vetur. Stjórn SSV samþykkti bókun
þess efnis:
„Stjórn SSV skorar á Vegagerð-
ina og samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneytið að tryggja að ekki ver-
ið dregið úr snjómokstri og annarri
vetrarþjónustu þrátt fyrir að að-
stæður í vetur hafi leitt til þess að
fjárveitingar til verkefnisins hafi
ekki tekið mið af þeirri stöðu sem
uppi er. Það væri algerlega ófor-
svaranlegt að ætla að skerða vetr-
arþjónustu þar sem greiðar sam-
göngur eru lífæð landsbyggðarinn-
ar.“ Á fundi stjórnar SSV var sömu-
leiðis lögð fram umsögn SSV um
samgönguáætlun 2020-2024, sem
nú hefur verið send umhverfis- og
samgöngunefnd Alþingis. mm
Stjórnvöld tryggi að ekki
verði dregið úr snjómokstri
Kross þar sem hugsanlega
rís Þjóðgarðsmiðstöð
Asahláka og ár ruddu sig
Klakahraukar á túnum neðan við Brekku í Norðurárdal. Jafnan fylgja klaka
bunkum sem þessum grjót og jarðvegur og bíður því bænda að hreinsa túnin með
vorinu. Ljósm. Þórhildur á Brekku.
Á hringveginum skammt frá Dýrastöðum var byrjað að seytla yfir veginn.
Ljósm. gb.
Ein af klakastíflunum í Norðurá laust
eftir hádegi á miðvikudaginn.
Ljósm. mg.
Giljafoss í Reykjadalsá var óárenni
legur á miðvikudaginn. Ljósm. jm.