Skessuhorn


Skessuhorn - 12.02.2020, Síða 17

Skessuhorn - 12.02.2020, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 2020 17 elta myndlistardrauminn. „Einu ári síðar eða svo ákvað ég að láta slag standa og kýla á myndlistina,“ segir hann. „Í millitíðinni fór ég að vísu til Bolungarvíkur og var við ýmis störf. Ég var í fiski, vann í hús- gagnaverslun og prófaði allt mögu- legt. Bara aðeins að kynnast lífinu í litlu þorpi, það var alveg meiri- háttar,“ segir Baski. Eftir stutta við- dvöl heima á Akranesi lá leiðin í myndlistarskólann og svo fljótlega eftir það í listaakademíuna í Ensc- hede í Hollandi. Hann hafði þá kynnst eiginkonu sinni, hinni hol- lensku Arianne Bos. Þau kynntust á Íslandi, en það var Baski sem átti frumkvæðið að því að þau flyttust til heimalands hennar þegar hann hóf nám í akademíunni. Árið var 1996 og Baski þá að verða þrítug- ur. „Ég var seinþroska, við erum allir svo seinþroska þessir lista- menn,“ segir hann og hlær við. En hann er bara einn þeirra sem þurftu að fá tíma til að átta sig á hvað þeir raunverulega vildu fá út úr lífinu. Baski lítur svo á að það hafi alls ekki verið ókostur að byrja seinna en flestir að leggja stund á listina. „Ég var þroskaðri fyrir vikið, búinn að prófa ýmislegt, vinna í fiski og öllu öðru sem mér fannst frábært. Það má ekki gera lítið úr því og ég hef notfært mér það í myndlistinni. Það er bara skóli lífsins, sem má alls ekki líta á sem slæman skóla. Það er þroskandi að kynnast lífinu í harð- geru þorpi eins og Bolungarvík, þar sem menn þurfa að hafa fyrir því að komast af. Slík lífsbarátta er virð- ingarverð,“ segir Baski. Harður heimur Hann segir að hið sama hafi gilt á Akranesi þegar hann var ungur piltur að alast upp. „Það þurfti að hafa fyrir hlutunum. Ég man eftir því þegar við vorum 13 ára, einmitt í Iðnskólanum. Við fórum stundum að hlaða niður mjöli í Síldarverk- smiðjunni fyrir skóla, til að ná okk- ur í auka aur og það fannst öllum al- veg sjálfsagt,“ segir hann. „En síðan vorum við hálfpartinn reknir heim úr skólanum til að fara í bað. Þó við hefðum skipt um föt þá var lykt- in föst í hárinu og á höndunum á okkur. Við vorum orðnir samdauna óþefnum en þetta var auðvitað ekki boðlegt fyrir aðra nemendur og kennara,“ segir hann og hlær við. „Þetta var hluti af því að alast upp og bara gaman af því. Maður þurfti að hafa fyrir þessu,“ segir Baski. Er slíkt gott veganesti inn í heim list- arinnar? „Já, það held ég. Að vera myndlistarmaður er ekkert „gef mér.“ Þetta er harður heimur og gengur misjafnlega vel. Ég held að enginn listamaður hafi sömu sögu að segja af því hvernig hann kemst áfram,“ segir Baski. Sjálfur er hann iðinn við vinnu sína. „Ég hef valið mér það að vinna alltaf og er alveg harður á því. Kannski lærði ég það af hörkunni á Íslandi að mæta alltaf snemma til vinnu og alltaf að gera eitthvað. Auðvitað gengur misjafn- lega vel, það koma slæmir dagar inn á milli, en maður getur alltaf tekið eitthvað út úr vinnu hvers einasta dags, þó það séu ekki nema strok- urnar eða mjög gróft uppkast. Það er alltaf eitthvað,“ segir hann. „Það sama gildir nú bara um flesta hluti í lífinu. Það gengur ekkert alltaf vel en ekkert er unnið algerlega til einskis,“ bætir Baski við. Pensillinn hefur eitthvað að segja List Baska hefur verið flokkuð und- ir hatt raunsæs expressjónisma. Blaðamaður gerist hér helst til ósanngjarn og spyr listamanninn hvort hann geti tekið undir þessa flokkun. Hann segir erfitt að ætla að fella sjálfan sig undir einhverja listastefnu, en segir þetta þó í gróf- um dráttum rétt. „Já, ég er einhvers konar fígúratífur, raunsæis express- jónisti sem sækir efnivið úr lífinu. Mér finnst gaman að mála sterk- ar sögur og sögutengd verk. Ég mála ekki alveg hárin á kinnunum á fólki. Ég vil leyfa pensilstrokun- um að tala, grófleikanum, ljósinu og birtunni. En ég er líka raunsær listamaður og fer strundum ansi nálægt því sem augað sér, en aldrei alveg,“ segir hann. „Versta gagn- rýni sem ég hef nokkurn tímann fengið var þegar einu sinni kom maður til mín og sagði; „djöfull er þetta gott hjá þér, þetta er bara al- veg eins og ljósmynd.“ Það tók ég til mín, þó hann hafi meint vel með þessu,“ segir Baski. Skyldi kannski engan undra, svona þegar út í það er hugsað. Baski er nefnilega ekki ljósmyndari heldur myndlistar- maður. „Ég forðast þetta algjöra raunsæi, það verður að vera mun- ur á milli málverka og ljósmynda. Þetta er allt annað listform,“ segir hann. Pensillinn hefur þannig eitt- hvað að segja, til viðbótar við fyr- irmyndina og strokur listamanns- ins á striganum endurspegla túlk- un hans á því sem fyrir augum ber. Hann gæti málað hárnákvæma eft- irmynd af sjómanninum á Akra- torgi sem horfir út á hafið í slag- veðursrigningu en hann vill það ekki. Hann vill túlka og tjá sig með öðrum hætti. Misjafn er smekkur manna Þegar kemur að myndlist vilja sumir ekkert annað en ljósmynd úr akrýlmálningu en aðrir helst bara nakin form og nokkra liti. Þegar öllu er á botninn hvolt snýst mynd- listin nefnilega að stóru leyti um smekk augans sem á hana horfir. „Ég hitti Erró einu sinni í mynd- listarskólanum og hann sagði, sem mér fannst alltaf gott vega- nesti; „ef þú ert með málverk sem þú ert að sýna tíu manns og allir segja „þetta er frábært hjá þér“, þá skaltu hætta sem myndlistarmaður því þetta er ekki að gefa þér neitt. En ef það eru tveir, þrír, sem finnst ekkert varið í þetta en aðrir nokk- uð ánægðir, þá ertu á réttum stað,“ segir Baski. „Heimurinn er bara þannig að það hafa ekki allir sama smekk,“ bætir hann við. Ef til vill má túlka orð Errós einnig á þá leið að listamaðurinn þurfi fyrst og síð- ast að vera trúr sjálfum sér. Hann eigi að mála fyrir sig, fyrst og síð- ast, en ekki aðra. „Mér fannst þetta gott hjá Erró og það er ekkert end- anlegt svar við þessari ráðleggingu hans,“ segir Baski. Þú, lesandi góð- ur, getur ef til vill túlkað ráð Er- rós á enn annan hátt og er hér með hvattur til þess að gera það. „Ég er bara Baski“ Og svarið við hinni ósanngjörnu spurningu um hvernig myndlistar- maður Baski er verður að fá að vera einfalt en í senn flókið. „Ég er bara Baski,“ segir listamaðurinn. Eðli- lega er ekki hægt að ætla honum að dæma sjálfan sig. Til þess eru list- fræðingarnir. Listamaðurinn hefur hann öðrum hnöppum að hneppa. „Ég held ég sé bara þokkalegur listamaður. Ég get lifað á listinni og þykir það bara býsna gott,“ segir hann, enda er það meira en marg- ir geta státað sig af. „Þetta er ekki alltaf dans á rósum og margir þyrn- ar sem þarf að stíga á líka á leið- inni. Það þarf að hafa fyrir þessu. Ég get lifað á listinni í dag en hef oft í gegnum tíðina fengið hjálp frá mínum nánustu. Listamaður þarf að eiga góða að og ég skammast mín ekki vitund að segja frá því að ég hef oft þurft að sækja aðra vinnu með til að komast af. Ég vann með þegar ég var að stíga mín fyrstu skref og reyna að koma mér áfram í listinni. Það er engin skömm af því,“ segir hann. Mikill hugmyndabanki Utan þess að kenna á námskeiði og halda sýningu á Akranesi nú í febrúar, hvað er listamaðurinn helst að fást við þessi misserin? „Ég er með ákveðið þema í gangi núna. Ég fer til Reykjavíkur og mála hús- in í kringum þar sem amma mín bjó þegar ég var lítill. Ég að fara með Akraborginni í heimsókn til ömmu,“ segir hann. Vonandi verð- ur hann ekki sjóveikur á sigling- unni. „Ég var reyndar alltaf sjó- veikur á leiðinni þegar ég var lít- ill,“ segir Baski og hlær við. Þarna komum við aftur að minningunum. Eru þær endalaus uppspretta hug- mynda? „Ég held það, já. Þær eru mikill hugmyndabanki. Ég hef ver- ið mikið fyrir það í gegnum tíðina að mála minningar og hef svolítið gert af því að taka þessa sjálfsögðu hluti í umhverfinu og draga þá fram í dagsljósið. Þessa hluti sem fólk sér á hverjum degi og virðir ekki með athygli sinni; sama húshornið sem maður gengur framhjá á hverjum degi, sprungurnar í glugganum, garðslönguna sem liggur í garðin- um eða köttinn sem situr í glugga- kistunni. Svona hluti,“ segir Baski um fegurð hins hversdagslega. „Alls konar sjálfsagðir hlutir sem verða kannski ekki til eftir 15 ár,“ segir hann. Listin kemur innan frá Til þess dýfir hann minningun- um í málningu og dregur myndir á strigann. Stíll Baska þykir mörg- um auðþekkjanlegur og hann sjálf- ur telur sig hafa náð þeim stað að fólk þekki myndirnar hans án þess að vita að hann málaði þær. Stefna ekki allir listamenn einmitt að því? „Óvart jú, menn gera þetta bara óvart. Þú skalt ekki reyna að búa þetta til, held ég ekki. Ef þú keppist við að reyna að búa til þinn eigin stíl þá ertu á villigötum. Þetta þarf að koma innan frá,“ segir Baski. „Listamaðurinn á alltaf að vera hann sjálfur og gera það sem hon- um líður best með. Það sem kem- ur innan úr listamanninum er það sem verður eftir á striganum,“ seg- ir hann. Slíkt hlýtur þó að vera erf- itt og á köflum lýjandi. Fyrir mann sem er búinn að vera lengi í faginu, hvað er það sem drífur hann áfram á hverjum degi? Hann svarar í einu orði; „gaman,“ segir hann. „Þetta er gaman,“ bætir hann við til áherslu. „Mér finnst æðislegt að vinna við svona skapandi starf. Tala nú ekki um þegar maður selur. Ég sel tölu- vert mikið af því sem ég mála. Það gefur mér brauðaurinn og tækifæri til að halda áfram að gera það sem ég geri best og finnst skemmtileg- ast,“ segir Baski að endingu. kgk/ Ljósm. úr einkasafni. Vatnslitamynd af Akraneshöfn. Heimabærinn er viðfangsefni í fjölmörgum verkum Baska. Þrettándinn á malarvellinum. Baski sækir mikið í minningabankann í listsköpun sinni. Í Einarsbúð. Olíumálverk eftir Baska. Einar Ólafsson afgreiðir á kassa. Í Bjarnalaug. Merkurtún. Krakkar að leika sér í fótbolta á túninu, einu sinni sem oftar. Vatnslitamynd af gamla læknishúsinu á horni Vesturgötu og Vitateigs. Baski hefur málað fjölmargar myndir af húsum á Akranesi. Í Axelsbúð. Ungur piltur horfir löngunaraugum á kókkælinn fræga.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.