Skessuhorn - 12.02.2020, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 202030
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað er jákvætt við þennan
dag hjá þér?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í gær á Akranesi)
Margrét Sigurðardóttir
„Sólin“
Guðjón Sveinbjörnsson
„Sólin“
Steinn Sindrason
„Að fara í klifur“
Harpa Gunnarsdóttir
„Heilsa barnanna minna“
Sigurður Ananíasson
„Sólin“
Dansparið Demi van den Berg frá
Akranesi og Aldas Zgirskis dans-
herra hennar áttu góðu gengi að
fagna um síðustu helgi. Á föstu-
daginn lentu þau í fyrsta sætið ball-
roomdönsum í bikarkeppninni í
dansi. Þau héldu uppteknum hætti
á Íslandsmeistaramótinu daginn
eftir og fögnuðu Íslandsmeistara-
titlinum í latindönsum í flokki 16
ára og yngri.
kgk
Skallagrímskonur unnu sterk-
an endurkomusigur á Breiðabliki,
75-73, þegar liðin mættust í Dom-
inos‘ deild kvenna í Borgarnesi á
laugardaginn.
Blikakonur voru öflugri í upp-
hafsfjórðungnum. Þegar langt var
liðið á hann leiddu þær 8-22, en
Skallagrímskonur minnkuðu mun-
inn í sjö stig áður en leikhlutinn
var úti, 17-24. Þær voru sterkara
liðið í öðrum leikhluta og færðust
stöðugt nær gestunum. Þegar stutt
var til hálfleiks komust þær yfir, en
Blikar áttu lokaorðið í fyrri hálfleik
og leiddu með einu stigi í hléinu,
36-37.
Skallagrímskonur voru lengi í
gang í síðari hálfleik og það voru
gestirnir sem réðu ferðinni í þriðja
leikhluta. Breiðablik náði tólf stiga
forskoti seint í leikhlutanum en
Borgnesingar minnkuðu mun-
inn í átta stig fyrir lokafjórðung-
inn, 52-60. Þar lögðu Skallagríms-
konur allt í sölurnar. Þær komu
sér fljótlega upp að hlið gestanna,
komust síðan yfir og lokamínút-
urnar voru æsispennandi. Þegar
mínúta lifði leiks jöfnuðu gestirn-
ir metin í 73-73 með þriggja stiga
skoti og fengu víti að auki. En
Blikar brenndu af og Skallagríms-
konur skoruðu úr tveimur víta-
skotum í næstu sókn. Borgnesingar
stálu síðan boltanum en brenndu
af lokaskoti leiksins en það kom
ekki að sök. Gestirnir náðu ekki að
koma skoti af síðustu sekúndurnar
og Skallagrímskonur fóru því með
sigur af hólmi, 75-73.
Keira Robinson átti stórleik í liði
Borgnesinga, skoraði 32 stig, tók
ellefu fráköst og gaf sex stoðsend-
ingar. Emilie Hesseldal skoraði 22
stig, tók 16 fráköst og stal fimm
boltum. Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir var með átta stig, sjö fráköst
og sex stoðsendingar, Maja Mic-
halska skoraði sex stig, Mathilde
Colding-Poulsen var með þrjú
stig, Gunnhildur Lind Hansdóttir
skoraði tvö og tók fimm fráköst og
Árnína Lena Rúnarsdóttir skoraði
tvö stig einnig.
Danni Williams var iðin við kol-
ann í liði Blika, skoraði 26 stig og
tók tólf fráköst. Fanney Lind Tho-
mas skoraði 15 stig og tók níu frá-
köst en aðrar höfðu minna.
Eftir umferðina lyftu Skalla-
grímskonur sér upp í fjórða sæti
deildarinnar. Þær hafa 24 stig, jaf
mörg og Keflavík í sætinu fyrir
neðan en tveimur stigum á eftir
Haukum í sætinu fyrir ofan. Næsti
leikur Borgnesinga í deildinni er
útileikur gegn Íslandsmeisturum
Vals, miðvikudaginn 19. febrúar.
Í millitíðinni leika Skallagríms-
konur hins vegar í undanúrslitum
bikarkeppninnar gegn Haukum í
Laugardalshöllinni annað kvöld,
fimmtudaginn 13. febrúar.
kgk/ Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Knattspyrnufréttavefurinn Fót-
bolti.net valdi Ívar Orra Kristjáns-
son úr ÍA dómara ársins 2019. Var
Ívari veitt viðurkenning þess efnis
eftir úrslitaleik Reykjavíkurmóts-
ins á mánudagskvöld. „Ívar, sem er
fæddur árið 1989, hefur undanfarin
ár verið að klifra hratt og örugglega
upp dómarastigann og er í hópi al-
þjóðlegra dómara hér á landi. Í dag
er hann einn okkar besti dómari og
var að mati Fótbolta.net besti dóm-
arinn á síðasta tímabili,“ segir í frétt
Fótbolta.net um málið, en frétta-
vefurinn hefur staðið fyrir valinu
allar götur síðan 2011.
Ívar Orri byrjaði að dæma 2010
og varð alþjóðadómari FIFA árið
2018. Hann var valinn besti dómari
Pepsi deildar kvenna 2013 og 2014
og besti dómari ÍA 2016, 2017 og
2018.
kgk
ÍA og Fjölnir B áttust við í 2. deild
karla í körfuknattleik á laugar-
daginn. Leikið var í Dalhúsum í
Grafarvogi. Ekki munaði miklu á
liðunum þegar öll kurl voru kom-
in til grafar, því tíu stig skildu lið-
in að í leikslok. Fjölnismenn sigr-
uðu með sléttum 100 stigum
gegn 90 stigum Skagamanna.
ÍA situr eftir leikinn í tíunda
sæti deildarinnar með átta stig,
fjórum stigum á eftir Stál-úlfi og
Njarðvík í sætunum fyrir ofan
en með tveggja stiga forskot á
Leikni R. í sætinu fyrir neð-
an. Næsti leikur ÍA er gegn liði
Hrunamanna föstudaginn 21.
febrúar. Sá leikur verður spilaður
á Akranesi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Dansararnir Demi van den Berg og Aldas Zgirskis.
Dönsuðu til sigurs
Skagamenn töpuðu
Ívar Orri Kristjánsson heldur á bolt
anum fyrir bikarúrslitaleik á Laugar
dalsvelli. Ljósm. úr safni.
Ívar Orri dómari ársins
að mati Fótbolta.net
Endurkomusigur Skallagríms