Skessuhorn - 12.02.2020, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 2020 31
Skallagrímskonur mæta Haukum í
undanúrslitum Geysisbikars kvenna
í körfuknattleik á morgun, fimmtu-
daginn 13. febrúar. Leikið verður í
Laugardalshöllinni og hefst leikur-
inn kl. 20:15.
Báðir undanúrslitaleikirnir fara
fram sama kvöld, og er viðureign
Skallagríms og Hauka sú síðari af
tveimur. Í hinni fyrri mætast KR og
Valur. Sigurvegararnir úr undanúr-
slitaviðureignunum mætast síðan í
bikarúrslitaleiknum í Laugardals-
höll laugardaginn 15. febrúar næst-
komandi.
kgk
Skallagrímsmenn máttu játa sig
sigraða gegn toppliði Breiðabliks
þegar liðin mættust í 1. deild karla
í körfuknattleik á föstudagskvöld.
Eftir jafnan leik framan af tóku
Blikar að síga fram úr í síðari hálf-
leik og sigruðu að lokum með 14
stigum, 80-94.
Mikið jafnræði var með liðunum
í upphafsfjórðungnum þar sem þau
fylgdust að nær allan leikhlutann.
Að honum loknum voru gestirn-
ir stigi yfir, 20-21. Annar leikhluti
var heldur kaflaskiptari en sá fyrsti.
Eftir að hafa skipst á forystunni
náðu gestirnir yfirhöndinni og
leiddu leikinn. Borgnesingar voru
þó aldrei langt undan og náðu að
minnka muninn í eitt stig áður en
flautað var til hálfleiks, 38-39.
Leikurinn virtist ætla að verða
æsispennadi áfram eftir hléið. Stað-
an var jöfn , 44-44, snemma í síðari
hálfleik þegar Blikar náðu undir-
tökunum. Þeim tókst með góðum
kafla að slíta sig aðeins frá Borg-
nesingum og höfðu tíu stiga for-
skot fyrir lokafjórðunginn, 58-68.
Þar héldu þeir Skallagrímsmönn-
um í skefjum, bættu lítið eitt við
forskot sitt og sigruðu að lokum
með 94 stigum gegn 80 stigum
Borgnesinga.
Hjalti Ásberg Þorleifsson var
stigahæstur í liði Skallagríms með
16 stig, en hann tók fimm fráköst
að auki. Kenneth Simms skoraði
14 stig og tók ellefu fráköst, Dav-
íð Guðmundsson var með tíu stig,
Marinó Þór Pálmason var með átta
stig og sex stoðsendingar, Berg-
þór Ægir Ríkharðsson átta stig og
fimm fráköst, Isaiah Coddon og
Kristján Örn Ómarsson skoruðu
báðir átta stig, Kristófer Gíslason
var með sex stig og Davíð Ásgeirs-
son skoraði tvö.
Larry Thomas skoraði 21 stig,
tók níu fráköst og gaf átta stoð-
sendingar í liði Breiðabliks. Svein-
björn Jóhannesson var með 21 stig
einnig og ellefu fráköst, Árni Elm-
ar Hrafnsson skoraði 16 stig og gaf
sjö stoðsendingar, Sigurður Sölvi
Sigurðsson var með 14 stig og
Hilmar Pétursson skoraði tíu stig,
tók sjö fráköst og gaf fimm stoð-
sendingar.
Borgnesingar sitja á botni deild-
arinnar með fjögur stig, jafn mörg
og Snæfell og Sindri í sætunum
fyrir ofan. Næsti leikur liðsins er
Vesturlandsslagur gegn Snæfelli
í Stykkishólmi. Sá leikur fer fram
mánudaginn 17. febrúar.
kgk
Snæfellskonur mættu ofjörlum sín-
um þegar þær fengu KR í heim-
sókn í Stykkishólm á laugardag-
inn. Gestirnir réðu ferðinni frá
fyrstu mínútu og sigruðu að lokum
örugglega, 56-83.
Snæfellskonur áttu afleitan upp-
hafsfjórðung, þar sem þær skoruðu
aðeins fimm stig gegn 26 stigum
KR-inga. Annað var uppi á ten-
ingnum í öðrum leikhluta, þar sem
jafnt var á með liðunum. En það
þýddi aðeins að forysta KR hélst að
kalla óbreytt til hálfleiks. Gestirnir
leiddu með 21 stigi í hléinu, 44-23.
Það sama var uppi á teningnum
í þriðja leikhluta. KR-ingar héldu
um það bil 20 stiga öruggu for-
skoti allan leikhlutann en Snæfells-
liðið náði aldrei að svara fyrir sig
og minnka muninn að neinu ráði.
Gestirnir voru mun sterkari í loka-
fjórðungnum, komust mest 32 stig-
um yfir, en Snæfellskonur náðu að-
eins að laga stöðuna undir lokin. Að
endingu fór svo að KR sigraði með
26 stigum, 56-82.
Emese Vida var stigahæst í liði
Snæfels með 15 stig og hún tók 15
fráköst að auki. Amarah Colem-
an var með tíu stig og níu fráköst,
Anna Soffía Lárusdóttir skoraði
átta stig og tók fimm fráköst, Tinna
Guðrún Alexandersdóttir skoraði
sjö stig, Gunnhildur Gunnarsdóttir
var með fimm stig, Veera Pirttinen
skoraði þrjú stig og þær Björg Guð-
rún Einarsdóttir, Helga Hjördís
Björgvinsdóttir og Rebekka Rán
Karlsdóttir skoruðu tvö stig hver.
Sanja Oranzovic var atkvæða-
mest í liði KR með 16 stig og sjö
fráköst, Hildur Björg Kjartans-
dóttir skoraði 15 stig og tók sex
fráköst, Danielle Rodriguez var
með tólf stig, Þorbjörg Andrea
Friðriksdóttir skoraði ellefu og
Sóllilja Bjarnadóttir skoraði tíu
stig.
Snæfell siglir nokkuð lygnan
sjó í sjötta sæti deildarinnar með
tólf stig, átta stigum fyrir ofan
Grindavík en tólf stigum á eftir
Keflavík í sætinu fyrir ofan.Næsti
leikur Hólmara er útileikur gegn
Keflvíkingum miðvikudaginn 19.
febrúar næstkomandi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Snæfellingar riðu ekki feitum hesti
frá viðureign sinni við Selfyssinga
þegar liðin mættust í 1. deild karla
í körfuknattleik á föstudagskvöld.
Selfyssingar, sem léku á heimavelli,
höfðu yfirhöndina allan tímann og
sigruðu að lokum örugglega, 96-77.
Heimamenn voru öflugri í upp-
hafi leiks og leiddu með tólf stig-
um eftir fyrsta leikhlutann, 90-18.
Þeir juku forskot sitt í öðrum fjórð-
ungi, komust mest 21 stigi yfir en
Hólmarar náðu aðeins að laga stöð-
una áður en hálfleiksflautan gall. Þá
leiddu Selfyssingar með 18 stigum,
49-31.
Snæfellingar komu mjög ákveðn-
ir til síðari hálfleiks. Þeir skor-
uðu fyrstu ellefu stigin og minnk-
uðu muninn í sjö stig, 49-42 þeg-
ar aðeins tvær mínútur voru liðn-
ar af þriðja leikhluta. En þetta var
eina alvöru atlaga Hólmara að for-
ystu heimamanna. Selfyssingar tóku
stjórnina á nýjan leik og höfðu 16
stiga forskot fyrir lokafjórðunginn,
70-54. Með góðum leik framan af
fjórða leikhluta, þar sem þeir kom-
ust mest 28 stigum yfir, gerðu þeir
út um leikinn. Snæfellingar lög-
uðu stöðuna aðeins undir lok leiks
en sigur heimamanna var aldrei
í hættu. Lokatölur urðu 96-77,
heimamönnum í vil.
Aron Ingi Hinriksson var stiga-
hæstur Snæfellinga með 23 stig,
Brandon Cataldo skoraði 13 stig og
tók níu fráköst, Benjamin Kil skor-
aði 13 stig einnig, Anders Gabriel
Andersteg var með ellefu stig og ell-
efu fráköst, Benjamín Ómar Krist-
jánsson skoraði átta stig, Guðni
Sumarliðason var með fjögur stig
og fimm fráköst, Ísak Örn Baldurs-
son skoraði þrjú stig og Eiríkur Már
Sævarsson var með tvö.
Arnór Bjarki Eyþórsson var stiga-
hæstur Selfyssinga með 27 stig en
Christian Cunningham var að öðr-
um ólöstuðum besti maður vallar-
ins. Hann skorði 25 stig, reif niður
23 fráköst og varði fimm skot. Ma-
ciek Klimaszewski skoraði 18 stig
fyrir Selfoss en aðrir höfðu minna.
Snæfellingar hafa fjögur stig í
næstneðsta sæti deildarinnar, jafn
mörg og Sindri í sætinu fyrir ofan
og Skallagrímur í sætinu fyrir neð-
an. Síðarnefnda liðið er einmitt
næsti andstæðingur Hólmara. Snæ-
fell og Skallagrímur mætast í Vest-
urlandsslag í Stykkishólmi mánu-
daginn 17. febrúar.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Búast má við harðri baráttu þegar Skallagrímur og Haukar mætast í undanúrslit
um bikarsins á morgun. Ljósm. Skallagrímur.
Bikarslagur á morgun
Tap á Selfossi
Borgnesingar misstu Breiðablik fram úr sér eftir góðan fyrri hálfleik.
Ljósm. Skallagrímur.
Gestirnir sterkari í síðari hálfleik
Mættu ofjörlum sínum