Skessuhorn - 19.02.2020, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 20208
Datt af baki
BORGARBYGGÐ: Maður
féll af hestbaki á Mýrum síð-
astliðinn miðvikudag og slas-
aðist á baki og hálsi við fall-
ið. Sjúkrabíll var sendur eftir
manninum úr borgarnesi en
maðurinn var fluttur á Akra-
nes þar sem læknir athugaði
með líðan hans. -kgk
Of hratt á
Innnesvegi
AKRANES: Lögregla vakt-
aði umferð og fylgdist með
umferðarhraða um Innnes-
veg á Akranesi milli kl. 16 og
17 á fimmtudaginn, þar sem
leyfilegur hámarkshraði er
30 km/klst. Að sögn lögreglu
kemur á óvart hve margir aka
enn of hratt um þennan veg-
arkafla. 155 bílar fóru þenn-
an spöl þessa klukkustund
sem lögregla vaktaði hann
og af þeim voru 22 kærð-
ir fyrir of hraðan akstur. Sá
sem hraðast ók var á 56 km/
klst., eða nálægt tvöföldum
hámarkshraða.
-kgk
Umferðarlaga-
brot í óveðrinu
VESTURLAND: Lög-
regla segir koma á óvart að
allnokkrir hafi verið staðn-
ir að umferðarlagabrotum
á föstudaginn þegar óveðr-
ið gekk yfir landið. Í hádeg-
inu á föstudag voru fimm
kærðir fyrir of hraðan akst-
ur um Ketilsflöt á Akranesi,
þar sem hámarkshraði er 30
km/klst. Mesti hraði var 51
km/klst. og meðalhraði brot
a var 44 km/klst. Þá voru
nokkrir stöðvaðir úti á þjóð-
vegi fyrir of hraðan akstur,
til dæmis einn sem var grip-
inn á 110 km/klst. og annar
sem var að tala í símann und-
ir stýri þegar veðrið var hvað
verst. -kgk
Valt næstum
GRUNDARFJ: Ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni
við Mjósundsbrú í Snæfells-
nesi á sunnudag með þeim
afleiðingum að hann fór út
af veginum. Litlu munaði
að bíllinn ylti, að sögn öku-
manns, sem tilkynnti sjálfur
um óhappið. enginn slasað-
ist og kvaðst maðurinn sjálf-
ur ætla að fara og sækja bíl-
inn daginn eftir. -kgk
Datt í tröppum
SNÆF: Slys varð í Ólafs-
vík um kl. 13:00 á mánudag
þegar kona á fertugsaldri féll
í útidyratröppum og nið-
ur á gangstétt. Hún kenndi
sér meins á hægri fæti og
var flutt með sjúkrabíl til að-
hlynningar hjá lækni. -kgk
Laus hross í
myrkrinu
HVALFJ.SV: Tilkynnt var
um laus hross á Vesturlands-
vegi við fiskilæk kl. 22:30 á
mánudagskvöld. Höfðu þau
sloppið úr girðingu. Vitað
var um eiganda hrossanna
og brugðist við, en lögregla
segir atvikið engu að síð-
ur stórhættulegt. Stórgrip-
ir geti skapað mikla hættu í
umferðinni og sérstaklega í
myrkrinu. -kgk
Sviptur og
dópaður
BORGARNES: Lögregla
stöðvaði för ökumanns við
Olís í borgarnesi laust fyr-
ir kl. 18 á mánudag. Reynd-
ist hann aka sviptur öku-
réttindum. fíkniefnapróf
sem framkvæmd var á vett-
vangi gaf jákvæða svörun
við neyslu kókaíns og am-
fetamíns. Maðurinn viður-
kenndi neyslu amfetamíns,
var handtekinn og færður á
lögreglustöð og gert að gefa
blóðsýni. Við leit í bifreið-
inni fannst ætlað amfetamín.
Málið er til rannsóknar hjá
Lögreglunni á Vesturlandi.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
8.-14. febrúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 43.609 kg.
Mestur afli: eskey Óf:
31.271 kg í fjórum róðrum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 7.261 kg.
Mestur afli: Tryggvi eð-
varðs SH: 7.261 kg í einum
róðri.
Grundarfjörður: 9 bátar.
Heildarlöndun: 409.497
kg.
Mestur afli: Runólfur SH:
78.316 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík: 17 bátar.
Heildarlöndun: 389.387
kg.
Mestur afli: bárður SH:
80.353 kg í fimm róðrum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 554.039
kg.
Mestur afli: Rifsnes SH:
109.579 kg í tveimur lönd-
unum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 93.814 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
81.293 kg í tveimur löndun-
um.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
68.032 kg. 11. febrúar.
2. Tjaldur SH - RIF: 62.796
kg. 11. febrúar.
3. Runólfur SH - GRU:
62.593 kg. 10. febrúar.
4. Örvar SH - RIF: 60.984
kg. 11. febrúar.
5. Rifsnes SH - RIF: 60.560
kg. 9. febrúar.
-kgk
„Það þýðir ekkert að
vera að hugsa um veð-
urspá, bara að fara,“
segir friðþjófur Sæv-
arsson, skipstjóri á
netabátnum Saxhamri
SH í Rifi. „Það er bara
búið að vera snarvit-
laust veður alla þessa
vertíð. Aflinn hefur
samt verið ágætur að
undanförnu og mað-
ur kvartar ekki undan
því,“ segir friðþjófur.
Meðfylgjandi mynd
var tekin á sunnudag
en þá var aflinn 14
tonn úr róðrinum.
af
Hyundai hefur bæst í hóp þeirra
fólks- og sendibifreiða frá bL sem
bílaverkstæði Hjalta við Ægisbraut
á Akranesi þjónustar samkvæmt
samningi við bL. „Um er að ræða
allar ábyrðarskoðanir og ábyrgð-
arviðgerðir auk almennra verkefna
sem eigendur Hyundai geta leitað
eftir í stað þess að þurfa að gera sér
sérstaka ferð til Hyundai á Íslandi
í Garðabæ. Auk Hyundai annast
bílaverkstæði Hjalta ábyrgðarskoð-
anir og -viðgerðir á Dacia, Isuzu,
Nissan, Renault og Subaru f.h. bL
á Vesturlandi,“ segir í tilkynningu.
mm
úrslit Geysisbikars karla og
kvenna í körfuknattleik fóru eins
og kunnugt er fram á laugar-
daginn. Karlalið Stjörnunnar og
kvennalið Skallagríms hömp-
uðu bikar, Stjarnan eftir sigur á
Grindavík og Skallagrímur á KR.
Heiðar Lind Hansson sagnfræð-
ingur og grúskari benti á áhuga-
verða staðreynd: „Það er skemmti-
legt að nefna að þjálfarar karlaliðs
Stjörnunnar og kvennaliðs Skalla-
gríms, sem hömpuðu bikarameist-
aratitlum í Laugardalshöllinni, eru
allir úr borgarfirði! Arnar Guð-
jónsson aðalþjálfari Stjörnunn-
ar er úr Reykholtsdalnum, Hörð-
ur Unnsteinsson aðstoðarþjálfari
Stjörnunnar er frá borgarnesi líkt
og Guðrún Ósk Ámundadóttir að-
alþjálfari Skallagríms og Atli Aðal-
steinsson aðstoðarþjálfari Skalla-
gríms sem einnig eru úr Nesinu,“
skrifaði Heiðar Lind sem óskar
sigurvegurunum innilega til ham-
ingju.
mm
Um liðna helgi létu smábændur í
Stykkishólmin framkvæma fóstur-
talningu í ánum sínum. Þegar slíkt
verk er unnið hjálpast allir að, en talið
var í 13 fjárhúsum á laugardaginn og
endað í veislukaffi hjá Kristínu ben. sá
Ágætur afli þrátt fyrir erfiða tíð
Borgfirskir þjálfarar
á verðlaunapalli
Smábændur létu gera fósturtalningu
Bílaverkstæði Hjalta þjónustuaðili
Hyundai á Akranesi