Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2020, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 19.02.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 202010 björgunarsveitir um landshlutann stóðu í ströngu á föstudaginn þeg- ar djúp lægð gekk yfir landið með tilheyrandi austan roki. Að sögn lögreglu var mest um minnihátt- ar eignatjón af völdum óveðurs- ins. eitt slys er bókað í landshlut- anum að sögn lögreglu. Maður féll fyrir utan bíl sinn á Kalmansvöll- um á Akranesi kl. 6:50 um morg- uninn og var talinn handleggsbrot- inn. Lögregla var kölluð á vettvang ásamt sjúkrabíl, sem flutti manninn á sjúkrahús til aðhlynningar. Mikið foktjón varð á Þórisstöðum í Svínadal í óveðrinum, eins og sagt er nánar frá í annarri frétt á forsíðu. Þá fuku þakplötur við gamla bæinn við Nýhöfn undir Hafnarfjalli. Á Akranesi var tilkynnt um ýmiss konar minniháttar eignatjón. Hurð- ir fuku upp, þak fauk af skúr, hluti af palli, tunnur og ýmislegt fleira smálegt fauk í rokinu. Þakplötur losnuðu og þakkantar og dæmi um að bílrúður hafi brotnað. Sjö rúð- ur brotnuðu í bílum við bílasöluna bílás við Smiðjuvelli og metur bíla- sali tjónið á um eina milljón króna. Telur hann að vindurinn hafi rifið með sér klaka og grjót úr nágrenn- inu sem varð þess valdandi að rúð- urnar brotnuðu. einn bíll fauk af stað á Akranesi snemma um morguninn. Kom í ljós að gleymst hafði að setja hann í gír eða handbremsu. Var honum ýtt aftur í stæði og settur í gír og hand- bremsan fest. Þá losnaði klæðn- ing af bensíndælu við eldsneytis- stöð N1 á Akranesi. Lögregla fór um kl. 5:00 um morguninn og festi stillansa sem voru farnir að hreyf- ast ásamt húsráðanda og smiðum, skömmu áður en óveðrið skall á. Kaplar tóku að losna af gömlu mastri á lögreglustöðinni á Akra- nesi í rokinu. Að sögn lögreglu er mastrið ekki í notkun og þyrfti helst að taka það niður. Pottlok fauk af heitum potti á Akranesi og tram- pólín fauk við Grundartún þar í bæ um tíuleytið að morgni. útsendari Skessuhorns sá enn fremur rútu á hliðinni við Höfðasel á Akranesi og brotnar rúður í félagsheimili hesta- manna á Æðarodda. Í borgarnesi voru björgunarsveit- armenn að festa niður grindverk, binda tunnur og brotna fánastöng. Gámur fauk af stað í Árdal í borg- arfirði og hafnaði úti í á. Hurð fauk af fjósi á Gunnlaugsstöðum í Staf- holtstungum og þakgluggar fuku einnig. bíll sem stóð á hlaði við bæ í Reykholtsdal er talinn ónýtur eft- ir að hurðir fuku af honum. Þá var tilkynnt um þakplötur að fjúka á fosshótel Stykkishólmi. kgk/ Ljósm. ki. Töluvert tjón varð á raforkumann- virkjum í óveðrinu sem gekk yfir landið síðastliðinn föstudag. Sam- kvæmt upplýsingum frá Rarik er tjónið á flutningskerfinu metið á um eitt hundrað milljónir króna. Meðal annars brotnaði staur í flutningslínu rafmagns frá Deild- artungu að Húsafelli í borgarfirði. Svo hvasst var á föstudagsmorg- uninn að jafnvel þótt starfsmenn Rarik væru búnir að finna hinn skemmda staur í landi Síðumúla í Hvítársíðu reyndist nær ómögulegt að athafna sig við viðgerðir. Með- fylgjandi mynd tók einar Stein- þór Traustason vinnuvélaverktaki, en hann mætti með sérútbúna ford dráttarvél á svæðið. Vegna bilunar- innar var rafmagnslaust fram eftir degi hjá þeim sem þiggja rafmagn frá viðkomandi flutningslínu og skapaði það óþægindi, einkum hjá kúm sem ekki var hægt að mjólka á réttum tíma. mm/ Ljósm. est Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð- arsveitar, ásamt Slökkviliði borg- arbyggðar, voru á föstudagskvöld- ið kölluð til að hreinsa seltu af spennum í tengivirki Landsnets á brennimel og einnig í tengivirkinu á Klafastöðum, skammt frá Grundar- tanga. Selta í tengivirkinu á brenni- mel varð þess valdandi að rafmagn á línunum leysti út og mikið högg kom á dreifikerfi Landsnets. flökt varð á rafmagni víða um landið af þeim sökum. Þá varð straumlaust um tíma hjá Norðuráli og elkem af þessum sökum. Aðstæður voru metnar þannig að nauðsynlegt væri að kalla slökkviliðin á svæðið til að hreinsa seltuna til að koma í veg fyrir frekari truflanir. mm Erfitt að athafna sig í óveðrinu Þurftu að hreinsa seltu af tengivirkjum Hestakerra á hliðinni í Æðarodda á Akranesi. Ljósm. mm. Eignatjón og einn slasaður í óveðrinu Víða tókst ýmislegt smálegt á loft í óveðrinu. Þakplötur losnuðu víða, hér á húsi við Höfðasel á Akranesi. Rúta fauk á hliðina við Höfðasel.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.