Skessuhorn - 19.02.2020, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 202012
Árið 2020 verður ár hagræðinga þar
sem framleiðslufyrirtæki bregðast
við áskorunum og krefjandi starfs-
umhverfi. 88% svarenda í könn-
un sem Outcome framkvæmdi fyr-
ir Samtök iðnaðarins meðal stjórn-
enda íslenskra framleiðslufyrirtækja
segja mjög líklegt eða frekar líklegt
að þeirra fyrirtæki grípi til hag-
ræðingaraðgerða á þessu ári. Allir
stjórnendur stórra og meðalstórra
fyrirtækja í greininni segjast ætla að
ráðast í slíkar aðgerðir á árinu.
Niðurstöðurnar benda til þess
að framhald verði á þeirri þróun
sem þegar er hafin en launþegum
í framleiðsluiðnaði hefur fækkað
undanfarið. fækkunin var komin í
4% í október í fyrra. Þetta gæti haft
umtalsverð áhrif en í framleiðslu-
iðnaði starfa rétt tæplega 18 þús-
und manns sem er um 9% af heild-
arfjölda starfandi í landinu. Verð-
mætasköpun fyrirtækja í greininni
er einnig umtalsverð, eða um 8% af
heildarverðmætasköpun hagkerf-
isins. Í svörum stjórnenda í fyrr-
greindri könnun kemur m.a. fram
rík þörf fyrir að bæta verði starfs-
kilyrði iðnfyrirtækja.
Í könnuninni voru stjórnendur
framleiðslufyrirtækjanna beðnir um
að meta helstu áskoranir í þeirra
rekstri. Spurt var um launakostn-
að, aðgengi að mannauði, sveiflur í
efnahagsmálum og starfsumhverfi,
skatta og opinber gjöld, aðgengi að
lánsfjármagni og vöxtum, opinbert
eftirlit og löggjöf og aukna áherslu
á umhverfis- og loftslagsmál. Hver
áskorun er metin á skalanum 1 til
5, þar sem 1 er mjög lítil áskorun
og 5 er mjög mikil áskorun. Launa-
kostnaður er sú áskorun sem flest-
ir stjórnendanna sögðu vera mjög
mikla um þessar mundir. Meðal-
tal svara við launakostnað hér á
landi er 4,55 af 5 og er sá þáttur
sem stjórnendur framleiðslufyrir-
tækja telja mesta áskorun um þess-
ar mundir. Skattar og opinber gjöld
meta svo stjórnendur næstmestu
áskorunina í rekstri.
mm
Töluverð sveifla hefur verið á ol-
íuverði á heimsmarkaði frá síðustu
áramótum. Heimsmarkaðsverð
á bensíni var nú í byrjun febrúar
komið niður um ríflega 11% mið-
að við áramótaverðið. Að teknu til-
liti til veikingar krónunnar gagn-
vart bandaríkjadal þá er lækkun-
in um 10%. Listaverð bensíns hér
á landi hefur á sama tíma aðeins
lækkað um 1,2%. félag íslenskra
bifreiðaeigenda (fÍb) vekur máls
á hækkun álagningar olíufélaganna
og ekki síst því að bensínverð á
landsbyggðinni er miklu hærra en á
höfuðborgarsvæðinu þar sem sam-
keppni er hörðust í nágrenni við
Costco. bent er á að frá innkomu
Costco á markaðinn hafa olíufélög-
in hækkað álagningu sína á við-
skiptavini sem ekki geta notfært sér
lægstu verðin á höfuðborgarsvæð-
inu. „Hafa verður í huga að miðað
við núverandi heimsmarkaðsverð
þá er innkaupsverð hvers lítra ríf-
lega 24% af heildarverðinu miðað
við algengasta lítraverðið hjá N1,
236,80 krónur. föst krónutölugjöld
ríkisins á hvern lítra eru samanlagt
76,60 krónur sama hvort lítraverðið
er 236,80 krónur eða 198,90 krón-
ur líkt og hjá Costco.“
Telja um aðför að
landsbyggðinni að ræða
Þá segir í frétt fÍb að innkoma
Costco inn á íslenska olíumark-
aðinn hafi valdið straumhvörfum.
„Olíufélögin hafa öll lækkað verð á
nokkrum bensínstöðvum á höfuð-
borgarsvæðinu. Á átta stöðvum er í
boði lægra verð á bensíni sem er frá
3,20 krónum til 5,1 krónum dýrara
en lítraverðið hjá Costco. Að auki
bjóða sex stöðvar lítraverð sem er
frá 10,90 krónum til 20,90 krón-
um dýrara en hjá Costco. Lands-
byggðin hefur ekki notið góðs
af þessari samkeppni olíufélag-
anna við Costco. Lægstu verð-
in utan höfuðborgarsvæðisins eru
um 30 krónum hærri en það ódýr-
asta hjá Costco. Algengustu verð-
in eru 37,90 krónum hærri en hjá
Costco. frá innkomu Costco hafa
olíufélögin hækkað álagningu sína
á viðskiptavini sem ekki geta not-
fært sér lægstu verðin á höfuðborg-
arsvæðinu. Meðalálagningin fór úr
tæpum 43 krónum á lítra 2017 í
ríflega 48 krónur árið 2019. Þess-
ar tölur eru uppreiknaðar með vísi-
tölu neysluverðs og án virðisauka-
skatts. Upp úr vasa neytenda er
þetta um 6,20 krónum hærra verð
á hvern lítra.“
Á fjórða tug króna
verðmunur hjá sama
félagi
Það munar 32,80 krónum eða
16,1% frá lægsta í hæsta bensín-
verðið hjá N1. Ódýrasta lítraverð-
ið er 204 krónur við Lindir í Kópa-
vogi en á stærstum hluta N1 stöðva
er verðið 236,80 krónur. Hjá Ób-
Olís er verðmunurinn 34,50 krón-
ur eða 16,2%. Ódýrast er hjá Ób
við Arnarsmára Kópavogi, bæjar-
lind Kópavogi og við fjarðarkaup
í Hafnarfirði eða 202,20 krónur á
lítra en dýrast á flestum Olís stöðv-
um 236,70 krónur. Hjá Orkunni
munar mest 32,70 krónum á ódýr-
asta dropanum og þeim dýrasta.
Ódýrast er hjá Orkunni við Dalveg
í Kópavogi og við Reykjavíkurveg
í Hafnarfirði eða 202,10 krónur
hæsta verðið hjá Orkunni er 16,2%
hærra eða 234,80 krónur. Verð-
munurinn hjá Atlantsolíu nær 31
krónu sem gerir 15,3%. Ódýrast er
hjá AO við Sprengisand í Reykjavík
og við Kaplakrika í Hafnarfirði eða
202,90 krónur en algengasta verð-
ið er 233,90 krónur. Dælan er ein-
göngu með stöðvar á höfuðborgar-
svæðinu og þar kostar bensínlítrinn
frá 209,80 til 219,80 króna.“
mm
Á vegum iðnaðarráðuneytis og um-
hverfisráðuneytis hefur nú ver-
ið ákveðið að veita 200 milljónum
króna í styrki til uppbyggingar inn-
viða fyrir orkuskipti í samgöng-
um. Ákvörðun ráðherranna Þór-
dísar Kolbrúnar R Gylfadóttur og
Guðmundar Inga Guðbrandsson-
ar byggir á tillögum starfshóps sem
þau skipuðu síðastliðið haust. Þetta
framlag ríkissjóðs kemur til viðbót-
ar við styrki sem úthlutað var á síð-
asta ári, en að teknu tilliti til mót-
framlags styrkþega verður fjárfest-
ing í innviðum vegna orkuskipta,
alls um milljarður króna á tveimur
árum. Orkuskipti í samgöngum eru
meginforsenda þess að Ísland geti
staðið við skuldbindingar í lofts-
lagmálum. „Því er jákvætt að sjá
að orkuskiptin fara vel af stað hér-
lendis, en á dögunum var greint frá
því að aldrei hafa fleiri nýir rafbílar
verið skráðir hér á landi en í janú-
ar síðastliðnum. Á sama tíma hef-
ur skráning á dísil- og bensínbíl-
um dregist umtalsvert saman. Til
marks um þetta hefur Noregur, ein
þjóða í heiminum, hærra hlutfall
en Ísland í nýskráningum rafbíla,“
segir í tilkynningu.
Áætlað er að verja 100 milljónum
króna í styrki fyrir innviði sem ætl-
að er að ýta undir fjölgun vistvænna
bifreiða hjá aðilum sem reka fólks-
og hópbifreiðar. Aðgerðin nær til
allra vistvænna bíla, hvort sem þeir
ganga fyrir metani, lífeldsneyti,
vetni eða rafmagni. Þá verður 70
milljónum króna varið í styrki
vegna raftenginga eða hitaveitna í
höfnum landsins í því skyni að ýta
undir orkuskipti í haftengdri starf-
semi. Loks
verður 30
mi l l jónum
króna varið
í styrki fyr-
ir hleðslu-
stöðvar við
g i s t i s t a ð i
og veitinga-
staði og er
þar um að
ræða fram-
hald á styrk-
v e i t i n g u m
síðasta árs
sem miðuðu
m.a. að því
að auðvelda orkuskipti í ferðaþjón-
ustu.
Styrkirnir nú koma til viðbótar
við úthlutun Orkusjóðs til tveggja
verkefna í fyrra. Annars vegar var
úthlutað 227 milljónum króna til
uppsetningar 43 nýrra hraðhleðslu-
stöðva vítt og breitt um landið sem
eru þrisvar sinnum aflmeiri en öfl-
ugustu stöðvarnar sem fyrir eru
hérlendis. mm
Enn meiri innspýting í
orkuskipti í samgöngum
Helstu áskoranir í rekstri íslenskra framleiðslufyrirtækja.
Ár hagræðingar hafið í
íslenskum framleiðsluiðnaði
Hér undir má sjá skiptingu lítraverðs á bensíni miðað við algengasta verðið hjá N1 og hjá Costco. Mynd: FÍB.
Bensínverð olíufélaganna er lægst í nágrenni Costco
Costco hefur mælanleg áhrif á verðlagningu olíufélaganna í nágrenninu.