Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2020, Page 15

Skessuhorn - 19.02.2020, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 12. febRúAR 2020 15 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is www.skessuhorn.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Kosning til stjórnar Kjalar Núverandi kjörtímabil stjórnar Kjalar er að renna sitt skeið og því er auglýst eftir tilnefningum vegna kjörs í trúnaðarstöður félagsins fyrir tímabilið 2020 til 2023, en kosning mun fara fram á aðalfundi félagsins hinn 19. mars nk. Í 6. gr. laga félagsins segir: “Stjórn félagsins skal skipuð níu félagsmönnum, formanni og sex meðstjórnendum, auk tveggja til vara. Stjórnarmenn skulu kosnir til þriggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera. Trúnaðarmannaráð gerir tillögu um stjórnarmenn úr sínum röðum eða úr röðum almennra félagsmanna. Félagsmenn geta gert tillögu um stjórnarmenn og verða að minnsta kosti 25 félagsmenn að standa að tillögu félagsmanna um hvern stjórnarmann. Tillögum skal fylgja nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillaga er gerð um. Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um en að öðrum kosti telst tillaga um hann ógild.” Allar tillögur skulu vera skriflegar og berast stjórn félagsins í síðasta lagi kl. 12:00 þann 27. febrúar nk. Akureyri, 12. febrúar 2020 Kjörstjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónusta SK ES SU H O R N 2 02 0 www.kjolur.is Aðalfundur Kjölur stéttarfélag | Skipagötu 14 - 3.hæð | 602 Akureyri | Sími 525 8383 | kjolur@kjolur.is Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins 2. Kosning fulltrúa á þing BSRB 3. Önnur mál Veitingar og happdrætti. Akureyri 5. mars 2018 Stjórn Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu Pappírslaus fundur en öll gögn hans er að finna á heimasíðu Kjalar www.kjolur.is Kjalar Stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu verður haldinn þann 20. mars 2018 kl. 16:30 í Skipagötu 14, 4. hæð Akureyri. Þaktúður• Hurðastál• Áfellur• Sérsmíði• Viðgerðir• Málmsuða• www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288 Agnes M. Sigurðardóttir biskup yfir Íslandi hélt vísitasíu sinni áfram um Vesturlandsprófastsdæmi í síðustu viku og í upphafi þessarar. Með í för var sem fyrr prófasturinn, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason á borg og sr. Þorvaldur Víðisson biskups- ritari. Vísitasían hófst í Grundar- firði á fimmtudaginn. Séra Agnes heilsaði upp á börn og starfsfólk í Grunnskóla Grundarfjarðar. Að því loknu lá leið hennar í ráðhús- ið þar sem björg Ágústsdóttir bæj- arstjóri og starfsfólk tóku á móti gestum. Þá var haldið í útgerðar- fyrirtækið Guðmund Runólfsson þar sem Runólfur Guðmundsson, systkini hans og starfsfólk, kynntu biskupi starfsemina. Þá var tekið á móti biskupi í fellaskjóli, dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra, þar sem boðið var upp á kaffiveiting- ar og biskupi var kynnt starfsemin. Setbergskirkja í eyrarsveit var því næst skoðuð en kirkjan er fallegt og látlaust guðshús úr timbri, reist árið 1892 og vel við haldið. bisk- up hélt svo fund með sóknarnefnd Setbergssóknar í safnaðarheimili kirkjunnar. barna- og æskulýðs- starf er í miklum blóma í söfnuð- inum. Um kvöldið fór fram guðs- þjónusta í Grundarfjarðarkirkju Á sunnudag hélt vísitasía áfram og þá var haldið í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall. Guðþjón- usta var í Ólafsvíkurkirkju. Að lok- inni messu buðu sóknarnefndirn- ar og kórarnir í kirkjukaffi í safn- aðaheimilinu. Ólafsvíkurkirkja var skoðuð eftir kirkjukaffið með fulltrúum sóknarnefndar. Kirkjan er fallegur helgidómur og sérstak- ur. Aðgengismál eru til athugunar, en bæta þarf aðgengi svo það henti öllum. Síðdegis var farið í brimils- vallakirkju og hún skoðuð ásamt fulltrúum sóknarnefndar. Kirkj- an er hefðbundin íslensk sveita- kirkja, svipsterk í einfaldleika sín- um eins og umhverfi hennar hæf- ir, reist árið 1923 og var þá fyrsta kirkjan þar en áður var bænhús á brimilsvöllum. Um kvöldið fór fram fundur biskups með fulltrú- um sóknarnefnda Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls í safnaðar- heimili Ingjaldshólskirkju. eft- ir fundinn var Ingjaldshólskirkja skoðuð, en kirkjan er traustbyggð- ur helgidómur. Hún var reist árið 1903, er elsta steinsteypta kirkjan á landinu. Safnaðarheimili var byggt 1994-1997, tengt kirkjunni neðan- jarðar, vestanmegin. biskup leiddi helgistund við lok samverunnar. Á mánuag var dagskrá þannig að farið var í heimsókn í grunn- skólann á Hellissandi, dvalar- heimilið Jaðar og grunnskólann í Ólafsvík. Jafnframt var kapellan í Ólafsvík og kirkjugarðurinn skoð- aður. Vísitasíu biskups í presta- kallið lauk með heimsókn til bæj- arstjórnar Snæfellsbæjar á Hellis- sandi, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. mm/þv Vísitasíu biskups lauk með fundi með bæjarstjórn Snæfellsbæjar. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Rögnvaldur Ólafsson bæjarfulltrúi, sr. Þorvaldur Víðisson biskupsritari, sr. Óskar Ingi Ingason sóknarprestur, Björn H Hilmarsson forseti bæjarstjórnar, sr. Agnes M Sigurðardóttir biskup, Júníana Björg Óttarsdóttir bæjarfulltrúi, Auður Kjartansdóttir bæjarfulltrúi, Fríða Sveinsdóttir bæjarfulltrúi og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri. Ljósm. Snæfellsbær. Vísitasía biskups á Snæfellsnesi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.