Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Page 2

Skessuhorn - 02.09.2020, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 20202 Óvissa einkennir líðandi stund, eins og við vitum öll. Við eigum misauðvelt með að fóta okkur í óvissunni og fylgjast með nýjustu tilmælum, sem taka stöðugum breytingum. Sýnum sjálfum okkur og öðrum tillitsemi og þolinmæði. Það verður norðan 10-18 m/s á morgun, fimmtudag, hvassast á norðvesturhluta landsins. Talsverð rigning fyrir norðaust- an og austan, en úrkomulítið á suðvest- urhorninu. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst. Norðvestan 8-15 m/s á föstudag en hvassara fyrir norðan og austan fram á kvöld. Rigning á Norður- og Austurlandi og slydda til fjalla, en annars þurrt að kalla. Dregur úr vindi og léttir til á Suð- ur- og Vesturlandi seinni part dags. Hiti 2 til 9 stig, svalast fyrir norðan. Breytileg átt, 3-8 m/s og bjartviðri á laugardag. Lít- ilsháttar væta fyrir norðan og hlýnar í veðri. Sunnan strekkingur eða allhvasst og rigning á sunnudag. Hlýnandi veður. Áfram allhvasst að sunnan á mánudag en síðar vestanátt. Rigning, einkum á vestanverðu landinu. Milt veður. „Hvað finnst þér um tvöfalda skimun og sóttkví allra sem koma til landsins?“ var spurt á vef Skessuhorns undanfarna viku. Flestir, eða 76% eru þeirri ákvörðun mjög sammála og næstflestir, 11% frekar sammála. Jafn mörgum, 11% þykir það of langt gengið en 2% hafa ekki skoð- un á málinu. Í næstu viku er spurt: Ferð þú í göng- ur og réttir í haust? Rollubóndinn, sjómaðurinn og steina- pússarinn Páll Sigurvinsson á Hellissandi deilir hlykkjóttri lífsleið sinni með les- endum í blaðinu að þessu sinni. Páll er Vestlendingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Áhöfnin á netabátnum Bárði SH, sem rær frá Arnarstapa, fékk 120 kíló hámeri í netin í liðinni viku. Þorkell Símonarson vert í Langa- holti keypti fiskinn. Keli sagði að- spurður um hvernig hámeri væri elduð að hann gerði steikur úr henni, setti einfaldlega olíu á pönn- una og hvítlauk. Þá væri sömuleiðis ekkert mál að skella henni á grillið. Hámerin er því elduð líkt og kjöt enda er hún þéttari í sér en ann- ar fiskur. Hann bætti við að hám- erin væri eftirsóttur fiskur um all- an heim, en alla jafnan hreyfðist hún þó lítið á matseðlinum vegna þess að fólk þekkti lítið svona fisk. Engu að síður slær hámerin í gegn á fiskihlaðborðum þar sem hún er í boði. af Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 sem hófst í gær, 1. september. Úthlutun- in fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyr- ir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og undanfarin ár. tekið skal fram að enn eru fáein skip ófrágengin og get- ur því úthlutun til skipa enn breyst lítillega. Að þessu sinni er úthlut- að 353 þúsund tonnum í þorskígild- um talið samanborið við um 372 þús- und þorskígildistonn í fyrra. Úthlut- un í þorski er tæp 202 þúsund tonn og dregst saman um 13 þúsund tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn eykst um 3 þúsund tonn og fer í rúm 35 þús- und tonn. „Vakin er athygli á að síð- ar á árinu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að aukið sé við aflamark í uppsjávar- fiski. Benda má sérstaklega á að engri loðnu var úthlutað að þessu sinni. Ætla má að heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra breytist í kjölfar frekari úthlut- ana þegar líður á fiskveiðiárið,“ segir í tilkynningu frá Fiskistofu. Nú er það Guðmundur í Nesi sem slær út Sólbergið sem það skip sem fær mestu aflamarki úthlutað. Guð- mundur í Nesi fær 13.714 þorskígild- istonnum úthlutað en Sólber fær út- hlutað 10.670 þorskígildistonnum - það er um 300 tonnum meira en í fyrra en dugar ekki til þegar Guð- mundur í Nesi bætti við sig um 3.000 tonnum. Þessi tvö skip skera sig úr frá öðrum skipum að þessu leyti. Úthxlutun eftir fyrirtækjum Fimmtíu stærstu útgerðarfyrir- tækin fá úthlutað sem nemur um 90,4% af því aflamarki sem út- hlutað er og hækkar það hlutfall lítillega frá í fyrra. Alls fá 326 fyr- irtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða tíu færri en í fyrra. Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlut- un fær Brim (áður HB Grandi) mestu úthlutað til sinna skipa eða 9,6% af heildinni, næst kem- ur Samherji með 6,9%, þá FISK Seafood með 6,3% og Þorbjörn hf. með 5,6%. Bátar með krókaaflamark eru nú 238 og fækkar um 47. Skipum í aflamarkskerfinu fækkar um sex á milli ára og eru nú 175. Bátar undir 15 m og 30 tonnum fá út- hlutað rúmlega 46 þúsund þorsk- ígildistonnum en bátar yfir 15 og 30 tonnum fá úthlutað 306 þús- und þorskígildistonnum. Alls 1.852 þorskígildistonnum er úthlutað nú í upphafi árs sem skel- og rækjubótum en það er um heldur minna en í fyrra og fara þau til 50 báta en þeir voru 51 á fyrra ári .mm/ Ljósm. úr safni/tfk. Úthlutun aflaheimilda fyrir nýhafið kvótaár Fengu hámeri í netin Hámerin komin á skurðarborðið í Langaholti. Ljósm. Rúna Björg Magnúsdóttir. Frá löndun á hámerinni. Sjá má Pétur skipstjóra á Bárði taka mynd af fengnum. Ljósm. af. SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK BARNALÍNA Huggi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.