Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202030
Hvað gerðir þú í gær?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi á mánudag)
Ásrún Adda Stefánsdóttir
„Fékk mér Brynjuís, horfði á
úrslitaleikinn í meistaradeild
kvenna, Lyon og Wolfsburg.
Keyrði svo heim í Borgarnes frá
Akureyri.“
Bjartur Einarsson
„Fór á æfingu og kláraði heima-
vinnuna fyrir skólann.“
Gunnar Örn Ómarsson
„Var að vinna og fékk mér
kombótilboð á Olís.“
Páll Egilsson
„Ég fór í sund og svo í góðan
göngutúr.“
Sóttvarnaryfirvöld hafa ákveðið að
veita heimild fyrir áhorfendum á
íþróttaviðburðum hér á landi, að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum;
tveggja metra reglan þarf að gilda
milli einstaklinga sem ekki eru í
nánum tengslum og ekki mega
vera nema að hámarki 100 manns í
stúku/stæði. Mest geta íþróttafélög
fengið heimild fyrir tveimur stúk-
um/stæðum við hvern leikvang, að
því gefnu að svæðin séu aðskilin og
enginn samgangur þar á milli.
Heimildin tók gildi fyrir helgi, en
greint var frá málinu á vef Íþrótta-
og Ólympíusambands Íslands á
föstudagskvöld. Þannig mátti til
dæmis sjá áhorfendur á leikjum
helgarinnar í Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu. kgk
Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður
enska knattspyrnuliðsins Norwich
City, er kominn á lánssamningi til
ÍA. Mun hann leika með liði Skaga-
manna út keppnistímabilið 2020.
Ísak Snær er 19 ára gamall
miðjumaður og á að baki 23 leiki
með yngri landsliðum Íslands, þar
af níu með U19 ára liðinu. Hann
hefur einnig verið fyrirliði U19 ára
landsliðsins.
Ísak er uppalinn hjá Aftureld-
ingu en hefur verið á mála hjá Nor-
wich City frá 2017, en hefur einnig
leikið með Fleetwood town og St.
Mirren á láni. kgk
Lið Skallagríms í 4. deild karla í
knattspyrnu gerði jafntefli við topp-
lið Hamars á laugardaginn, þegar
liðin mættust í 13. umferð deildar-
innar. Leikið var á Skallagrímsvelli í
Borgarnesi.
Hamarsmenn komu beittir til
leiks og slógu tóninn strax á 6. mín-
útu þegar Magnús Ingi Einarsson
skilaði knettinum í netið og kom
gestunum yfir.
Eitthvað hefur forskot gestanna
kveikt undir heimamönnum. Borg-
nesingar pressuðu Hvergerðinga
hátt upp völlinn. Þeir voru með
tærnar í flestum sendingum, kæfðu
hverja sókn Hamarsmanna nánast í
fæðingu og voru með yfirhöndina
stærstan hluta fyrri hálfleiks. Það var
svo á þeirri miklu markamínútu, 43.
mínútu, sem Skallagrímsmenn fengu
aukaspyrnu á hættulegum stað. Fyr-
irgjöfin rataði á Declan Joseph Red-
mond sem reis manna hæst í teign-
um og skallaði boltanum inn fyrir
marklínuna og jafnaði metin fyrir
Skallagrím. Innan við mínútu síðar
fékk Viktor Ingi Jakobsson, leikmað-
ur Skallagríms, sitt annað gula spjald
og þurfti að víkja af velli. Staðan var
1-1 þegar flautað var til hálfleiks.
Bæði lið voru töluvert rólegri í
síðari hálfleik. Þrátt fyrir að vera
einum leikmanni færri þá héldu
Skallagrímsmenn vel í við gestina.
Þó litu fleiri mörk ekki dagsins ljós
og skildu liðin því jöfn að leikslok-
um.
Skallagrímsmenn detta niður um
eitt sæti eftir umferðina og sitja nú í
4. sæti með 19 stig. Ísbjörninn færði
sig upp um sæti í það 3. með 21 stig.
Lið KÁ er í 2. sæti með 22 stig og
Hamarsmenn sitja enn sem fastast á
toppi C-riðils með 28 stig nú þegar
13 umferðir eru búnar.
Næsti leikur Skallagríms er á
laugardag gegn Ísbirninum í Kórn-
um í Kópavogi og hefst kl. 12:00.
glh
Vesturlandsmót kvenna í golfi
var haldið á Bárarvelli í Grundar-
firði síðastliðinn laugardag. Kven-
kylfingar frá Golfklúbbi Borgar-
ness, Golfklúbbi Leynis á Akra-
nesi, Golfklúbbi Mostra í Stykkis-
hólmi ásamt mótshöldurunum úr
Golfklúbbi Vestarr í Grundarfirði
öttu kappi í mildu veðri á mótsdag.
Keppt var í höggleik án forgjafar og
punktakeppni með forgjöf. Mótið
er einnig sveitakeppni klúbbanna
og fjórar konur úr hverjum klúbbi
með flesta punktana mynda sveit-
ina.
Breyta þurfti fyrirkomulagi
mótsins vegna Covid-19. Var til að
mynda engin kvöldskemmtun sem
hefur verið stór hluti af þessari sam-
komu síðustu ár ásamt því að kepp-
endum var ekki boðið upp á morg-
unverðarhlaðborð áður en haldið
var út á völl. Í staðinn fengu allar
konur nestispakka með sér í golf-
pokann. Að móti loknu var setið úti
þar sem ekki máttu vera fleiri en tíu
manns inni í golfskálanum í einu.
Boðið var upp á hressinu og grill-
aðar pylsur ofan í hópinn auk þess
sem verðlaun voru veitt. Þrátt fyr-
ir breytt fyrirkomulag þá áttu kon-
urnar góðan dag saman, skemmtu
sér vel og fóru sáttar heim að sögn
mótsnefndar.
Úrslit mótsins voru
sem hér segir.
Punktakeppni:
Jófríður Friðgeirsdóttir, GVG1.
Erna Guðmundsdóttir, GMS2.
Aldís Ásgeirsdóttir, GVG3.
Höggleikur:
Arna Magnúsdóttir, GL1.
Anna María Reynisdóttir, GVG2.
Bára Valdís Ármannsdóttir, GL3.
glh/Ljósm. Sverrir Karlsson.
Í sumar hefur markvisst verið unnið
að framkvæmdum og endurbótum
á opnum svæðum í Borgarbyggð.
Þessi opnu svæði eru nýtt sem leik-
svæði fyrir börn. Í Bjargslandi í
Borgarnesi hefur verið bætt við af-
þreyingarmöguleikum fyrir börn-
in í hverfinu. Það hefur þótt vanta
en þess má geta að í Bjargslandi búa
flest börn í sveitarfélaginu.
Ærslabelgi hefur verið komið
fyrir á Wembley, ásamt því að nýj-
um knattspyrnumörkum verður
komið fyrir á sama svæði. Er þetta
annar ærslabelgurinn sem kom-
ið er fyrir í Borgarnesi, en búið er
að vinna skemmdarverk á belgnum
við íþróttamiðstöðina og eru íbúar
sveitarfélagsins hvattir til að ganga
vel um tækin. Ljóst er að sá belgur
er nú ónothæfur.
Fyrr í sumar var ærslabelgi komið
fyrir á skólalóðinni á Hvanneyri og
leiksvæðið við Hrafnaklett í Bjargs-
landi lagfært. Allt er þetta gert með
það í huga að bæta möguleika til af-
þreyingar og heilbrigðrar útiveru
og hreyfingar. glh
Áhorfendum leyft að
sækja íþróttaviðburði
Stuðningsmenn Víkings Ó. á knatt-
spyrnuleik. Ljósm. úr safni/ KSÍ.
Ísak Snær til ÍA á láni
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari
karlaliðs ÍA, ásamt Ísaki Snæ Þorvalds-
syni. Ljósm. Knattspyrnufélag ÍA.
Declan Joseph Redmond skoraði jöfnunarmark Skallagríms. Ljósm. glh.
Jafntefli gegn toppliðinu
Skemmdarverk. Ærslabelgurinn við íþróttamiðstöðina er nú ónothæfur.
Ærslabelgur á Wembley
Nýi ærslabelgurinn á Wembley í Bjargslandi.
Vel heppnað Vesturlandsmót kvenna í golfi
Verðlaunahafar Vesturlandsmóts kvenna 2020 sem fram fór í Grundarfirði síðast-
liðinn laugardag.
Golfklúbbur Grundarfjarðar GVG vann sveitakeppnina.