Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202028 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Grein mín á dögunum um yfirvof- andi skipulagsslysfarir í Skógar- hverfi vakti bæði og kallaði á við- brögð Ragnars B Sæmundssonar, formanns skipulags- og umhverf- isráðs. Með því var nokkur sigur unninn því núverandi meirihluti bæjarstjórnar Akraness hefur lítt verið sýnilegur á kynningarfundum um málið og einatt falið embættis- mönnum bæjarins kynningu máls- ins. En að grein formannsins. Hann bendir á þá augljósu staðreynd að með breyttu skipulagi verði ekki al- veg skorið á tengingu Garðalundar og Klapparholts. Þar á hann við stíg er nú liggur á milli svæðanna. Ein- mitt þar kristallast, að ég vil segja, metnaðarmunur okkar. Mín fram- tíðarsýn er sú að þessi tvö svæði verði ein samfelld útivistarparad- ís Akraness. Formanninum dugar stígurinn sem jafnframt á að vera akvegur. Þá nefnir formaðurinn í löngu máli ofanvatnslausnir, sem hann kallar svo og brigslar mér um að þekkja ekki mun á slíkum lausnum og göngu- og hjólastígum frá græn- um svæðum. Það er algengur ósiður stjórnmálamanna í dag, sem á tylli- dögum vilja kenna sig við græna framtíð, að benda á næfurþunnt og fölt hálmstráið sem eftir stendur þegar skóginum hefur verið fórnað. Hjólastígar og regnvatnssprænur koma ekki í stað heildstæðs útivist- arsvæðis sem nýst getur bæjarbúum allan ársins hring. Uppbygging ferðaþjón- ustu – Hótel Formanninum þykir skjóta skökku við að ég skuli vilja halda mögu- leika á hótelbyggingu á svæðinu opnum þar sem enginn hafi óskað eftir leyfi til slíkrar byggingar. Þar kemur enn og aftur misjöfn fram- tíðarsýn okkar í ljós. Er til betri staður til slíks rekstrar en í mið- punkti útivistarsvæðis, Akrafjall- ið innan seilingar, í göngufæri við golfvöll, byggðasafnið, Jaðarsbakk- ana að ógleymdum Langasandin- um. Bíður einhver betur? Þessum gullna möguleika í ferðaþjónustu er algjör óþarfi að fórna. Vilji meiri- hlutans er hins vegar sá að á þeim reit rísi gróðurhús og geymslur þrátt fyrir að formaðurinn hafi gefi í skin bæði í ræðu og riti að þar verði grænt svæði! Formannin- um er ekki kunnugt um að nokk- ur hafi sótt um þessa hótellóð og því beri að taka hana út af skipulag- inu. Enginn hefur sótt um hótellóð á Sementsreitnum, er það þá næsta verkefni formannsins að taka hana út af skipulagi? Eigum við bara að bíða eftir því að einhver sæki um að byggja hótel og þá fara að skipu- leggja einhverja lóð? Stjórnmála- menn eiga að hafa framtíðarsýn og skapa möguleika til uppbyggingar. Skipulag hvers er verið að kynna? Alvarlegast er í grein formansins að ásaka mig um að fara niður á „það plan að leggja starfmönnum bæjar- ins og skipulagshöfundi orð í munn og lýsa yfir takmörkuðum skilningi þeirra á möguleikum svæðisins.“ Í umræðunni á kynningarfundinum kom fram spurning um hvort þetta land sem byggðin færist yfir og er skilgreint sem beitarland í dag, væri fundarmönnum dýrmætt? Í grein minni segi ég; „á fundinum kom ekki fram mikill skilningur af hálfu meirihlutans um möguleika svæðs- ins og talað um svæðið sem fer und- ir íbúðabyggð sem ómerkileg beit- arhólf.“ Ég skynjaði ásamt fleirum sem voru viðstaddir að þetta væri skoðun meirihlutans enda verið að kynna verk hans. Í mínum huga er skipulagið stefnumótun meiri- hlutans en ekki embættismanna. Á fundinum var hins vegar ekki kost- ur fyrir gesti fundarins að eiga rök- ræður við aðra en embættismenn. Það er nýlunda í bæjarmálum á Akranesi að kjörnir fulltrúar treysti sér ekki til þess að standa fyrir máli sínu gagnvart íbúum. Á síðasta kjörtímabili, þegar kynntar voru umfangsmiklar skipulagsbreyting- ar sem skiptar skoðanir voru um, þá var það formaður skipulags- og umhverfisráðs sem stýrði kynning- arfundum og fékk þá tækifæri til að hlusta á íbúana. Mikilvægustu verkefni stjórnmálamanna eru að marka stefnuna til framtíðar. Skýr- asta stefnumörkun til framtíðar eru ekki síst skipulagsmálin. Þar eiga og verða stjórnmálamenn að hafa skoðun og þora að kynna hana og standa fyrir máli sinu. Það hefur núverandi meirihluti bæjarstjórnar ekki gert heldur teflt fram embætt- ismönnum bæjarins. Það er gleðilegt hversu mikil eft- irspurn er til byggingar einbýlis- og raðhúsa á Akranesi. Þegar núver- andi meirihluti bæjarstjórnar tók við var í gildi skipulag sem uppfyllti þessa eftirspurn. Nú hefur meiri- hluti bæjarstjórnar hins vegar ógilt það skipulag með augljósum af- leiðingum. Það er formaður skipu- lags- og umhverfisráðs eðli málsins samkvæmt sem ber mesta ábyrgð á slíkum ákvörðunum hverju sinni. Hann getur ekki skýlt sér á bak embættismanna eða minnihlutans í þeim ákvörðun- um. Hans hlutverk er líka að sannfæra íbúa hverju sinni um að hann og meirihluti bæjar- stjórnar stefni í rétta átt. Tjaldað til einnar nætur Verðmætasta verkfæri við stjórn sveitarfélags er framtíðarsýnin. Skipulagsmál er besta dæmið um slíkt. Þar mega menn ekki tjalda til einnar nætur. Íbúar sem ráðast í húsbyggingu gera það með gild- andi skipulag í huga og með þá trú að þar sé horft til lengri tíma. Það er því fráleitt að með skipulagi lóða undir örfá íbúðarhús sé ekki bara gengið á rétt íbúa í Skógarhverfi heldur einnig á rétt allra íbúa sveit- arfélagsins hvað varðar framtíðar útivistar- og viðburðasvæði. Að lokum þá hvet ég íbúa á Akra- nesi að kynna sér þessar breytingar vel því þetta er ekki bara einkamál þeirra sem búa í Skógarhverfinu. Framtíðar útivistar- og viðburða- svæði okkar allra liggur undir. Það er ennþá hægt að forða þessu skipu- lagsslysi. til þess að svo megi verða þurfa íbúar Akraness að láta í sér heyra. Einar Brandsson Höf. er bæjarfulltrúi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn á Akranesi. Botnsskáli Þegar ég var krakki vestur í Stað- arsveit ferðaðist ég stundum suður, það var þá langur vegur varðaður vegasjoppum. Ein skar sig úr. pét- ur Geirsson seldi mönnum ódýrt bensín, sumir sögðu að hann borg- aði með því. Greiðvikin ungmenni dældu á bílana en inn þurftu menn að fara til að gera upp. Og þá var draumurinn úti. Þar mætti mönn- um smörrebröd sem fáir höfðu séð viðlíka, jafnvel í útlöndum. Þeg- ar ég ferðast um fjarlægar borg- ir heimsmenningarinnar, Kaup- mannahöfn, parís og Búdapest og kem inn í verslanir þar sem hillur svigna af kökum og smurbrauði, dettur mér alltaf Botnskáli í hug! Á þessu græddi pétur, hann var og er veitingamaður af Guðs náð. Enda enn að á níræðis aldri, rekið hótel á sömu kennitölu áratugum saman en slíkt þykir fátítt í voru landi. Annar vert ritaði í blað fyr- ir nokkrum árum og kvartaði yfir kúnnum sínum sem kæmu til að kúka en keyptu ekki neitt. Þá varð mér á að hugsa að þessi maður hefði ekki skólast hjá pétri og ætti kannski að fást við annað en að reka sjoppu. Riddari götunnar Í dag kynnist ég hinsvegar nýjum hæðum í lágkúru í túrisma! Á ferð minni um Suðausturland vildi ég líta aflögð varnarmannvirki en fá mér í leiðinni kaffivatn á veitinga- stað sem þar var í grenndinni. Við vorum feðgar á ferð og lögðum bílnum við kaffihúsið þegar okkur var ljóst að innheimt væri gjald fyrir frekara ferðalag á bíl. Ákváðum að fá okkur stuttan göngutúr áður en farið væri í kaffið. Hefst nú gang- an en skammt er farið niður brekku þegar hrópað er að baki úr kven- nmannsbarka skipandi rómi. Ljóst var þegar að hér væri ekki sung- inn matseðill dagsins! Þið verðið að borga tilkynnti konan. Heldur fór þetta illa í ferðalangana, erlend kona vildi nú rukka okkur fyrir að tipla um fósturjörðina. Við blasti timburskilti sem á stóð heiti kaffi- hússins, það gaf til kynna að hér svifi andi Egils Skallagrímssonar og Skarphéðins Njálssonar yfir vötn- um og lögmál péturs Geirssonar væru fyrir mönnum latína. Hér var kaffihús víkinga! Við flúðum kon- una en komust ekki langt áður en sjálfur eigandinn kom akandi og fór geist. Borga skildum við. Rök hans voru skýr, hann átti landið og veginn og hélt honum við. Allt var skýrt. Vildum við að hann kæmi heim til okkar og kúkaði í klósett á einkaheimilum okkar! Þarna lauk samtali okkar við veit- ingamanninn. Þegar komið var aft- ur að bílnum hafði, líkt og fyrir galdur, loft lekið úr hjólbarða far- þegamegin að aftan. Heimsókn á kaffihúsið góða vék því fyrir dekkja- skiptum. Sumir eru þeirrar gæfu aðnjót- andi að rata ungir í störf sem þeim fellur vel að sinna, lenda á réttri hillu í lífinu. Aðrir ættu að vera að fást við annað en það sem hefur orðið hlut- skipti þeirra um lengri eða skemmri tíma. Vandi ferðaþjónustu á Íslandi er mikill eins og víðast hvar um þessar mundir. Það er þó ljóst að hann einskorðast ekki bara við of fáa ferðamenn, í einhverjum tilvik- um eru veitingamennirnir allavega einum of margir! Finnbogi Rögnvaldsson Viðskiptamódelið Pennagrein Skammvinn framtíðarsýn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.