Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202022 Klukkan á Íslandi verður áfram óbreytt. Það er niðurstaða ríkis- stjórnarinnar eftir ítarlega skoð- un á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund. Seg- ir í ákvörðun þeirri að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sól- artíma á Íslandi hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukku- stund. Vegur þar þyngst að neikvæð áhrif fækkunar birtustunda á vöku- tíma og skerðingar birtustunda í lok dags sem dregið gætu úr útivist og hreyfingu eru ekki nægilega vel þekkt, en birtustundum hefði fækk- að um 13% á ársgrundvelli með breytingunni. mm/ Ljósm. als. Á tímum Covid-19 hefur dregið úr skiptinámi í háskólum. Við Háskól- ann á Bifröst hefur ætíð verið nokk- ur hópur skiptinema. Áformað var að 32 nemar kæmu að utan til náms á Bifröst þetta haustið. Skiljanlega urðu töluverð afföll í hópnum í ljósi ástandsins en sautján skiptinemar mættu á svæðið og létu Kófið ekki hefta för sína. Flestir úr hópnum eru frá Mið-Evrópu en einn nemi kemur alla leið frá Suður-Kóreu. Stjórnendur skólans höfðu vissar efasemdir um að rétt væru að taka við skiptistúdentum í ljósi ástands- ins, en nemendurnir voru alveg gallharðir, Borgarfjörðurinn væri fyrirheitna landið og þangað skyldu þær fara. Starfsmaðurinn sem heldur utan um hópinn er Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir sem jafnframt er al- þjóðafulltrúi skólans. Aðspurð segir hún að mikil og góð stemning sé í hópnum. Nemendurnir séu heillað- ir af umhverfinu í Norðurádalnum en hluti af upplifuninni er að anda að sér náttúru dalsins og stunda kröftuga útivist. Skólinn býður nemendunum upp á margs konar nám, t.d. í íslensku sem öðru máli, menningarsögu og þjálfun í frum- kvöðlahugsun og leiðtogafærni. Bifrastaranemar sem búa á staðn- um hafa tekið vel á móti skiptinem- unum að sögn Þorbjargar. Í sam- einingu hafa nemarnir skapað ið- andi mannlíf í upphafi skólaársins á Bifröst. Nemendafélag skólans er öflugt en í ár stýrir því Bjarni Heið- ar Halldórsson. grj Þeir virtust ekki láta rigninguna og rokið á sig fá ferðamennirnir sem dvöldu á tjaldstæðinu í Ólafsvík á sunnudagskvöldið, en í kringum 10 ferðabílar voru á svæðinu þetta kvöld. Mikið vatnsveður gekk yfir Snæfellsnesið þá um kvöldið og mátti sjá mikla aukningu á vatni í lækjum og fossum og hafði vatns- borðið í Hvalsánni hækkað mikið á stuttum tíma. Mestur vindur mæld- ist á sjötta tímanum um daginn, eða 17 metrar á sekúndu og 26 metr- ar í hviðum. Þá mældist 7 mm úr- koma þegar mest var. Engir ferða- menn voru á tjaldstæðinu á Hellis- sandi þó þar væri mun betra veður en þess má geta að suðaustan vind- átt er versta áttin og getur orðið bálhvasst í Ólafsvík. þa Umsóknarfrestur um starf sóknar- prests í Stafholtsprestakalli í Borg- arfirði rann út í byrjun júní. Aug- lýst var eftir sóknarpresti til þjón- ustu við prestakallið og miðað við að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. Sjö sóttu um starfið. Kjör- nefnd hefur nú kosið sr. Önnu Ei- ríksdóttur til starfans og hefur bisk- up Íslands, sr. Agnes M. Sigurðar- dóttir, staðfest ráðningu hennar. Í samræmi við þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á starfsmannamál- um Þjóðkirkjunnar er sr. Anna ráð- in ótímabundið í starfið með hefð- bundnum uppsagnarfresti. „presta- kallið var auglýst nú í vor með þeim fyrirvara að vera mætti að biskupa- fundur legði tillögur fyrir kirkju- þing er snertu m.a. Stafholtspresta- kall og sem kynnu að leiða til breyt- inga á skipan prestakalla í Vestur- landsprófastsdæmi, hljóti þær sam- þykki kirkjuþings,“ eins og segir í tilkynningu frá Biskupsstofu. Sr. Anna er fædd í Reykjavík 1955 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við tjörnina 1975. Hún starfaði um árabil við rekstur fyrirtækis en hóf nám við guðfræðideildina 1991 í BA- námi. Samhliða námi starfaði hún sem skrifstofustjóri Norrænu eldfjallastöðvarinnar þar sem hún annaðist umsýslu erlendra masters- og doktorsnema í jarðvísindum sem sóttu framhaldsnám til Íslands og frá árunum 2004- 2009 starfaði hún einnig sem skrifstofustjóri Jarðvísindastofnunar HÍ. Meðfram vinnu sótti hún nám í guðfræðideild Háskóla Íslands og útskrifaðist með guðfræðipróf árið 2011. Sr. Anna var vígð til Dalaprestakalls árið 2012 og hefur þjónað þar sem sóknarprestur síðastliðin átta ár. Veturinn 2019-2020 sótti hún diplóma- og sálgæslunám hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og útskrifaðist síðastliðið vor. Anna á tvö uppkomin börn. mm Útboð á sorphirðu í Dalabyggð stendur nú yfir en í því felst meðal annars nýtt sorphirðukerfi sem tek- ið verður upp á næsta ári. Að því er fram kemur í frétt á vef Dalabyggð- ar verður sett upp svokallað þriggja tunnu kerfi fyrir betri flokkun. Í þéttbýlinu koma tvær tunnur til viðbótar þeim sem eru nú þegar og í dreifbýlinu koma þrjár tunnur við hvert heimili og lögbýli. „Þann- ig verða öll heimili í sveitarfélaginu með þrjár sorptunnur; grátunnu, græntunnu og brúntunnu,“ segir á vef Dalabyggðar. Gráa tunnan verður fyrir almennt óflokkað heimilissorp, græna tunn- an verður fyrir flokkað sorp sem hægt er að endurvinna og brúna tunnan fyrir allan lífrænan úrgang. tunnurnar verða tæmdar á fjögurra vikna fresti auk þess sem brúnu tunnurnar verða tæmdar aukalega í fjögur skipti yfir sumarið. arg Sr. Anna Eiríksdóttir verðandi sóknarprestur í Stafholti. Ljósm. kirkjan.is. Séra Anna er nýr prestur í Stafholti Hópur erlendra skiptinema kominn á Bifröst Mynd úr gönguferð sem Nemendafélag Háskólans á Bifröst stóð fyrir. Af myndinni að dæma er ljóst að hamingja er í húsi á Bifröst og tilhlökkun í hópi nema og starfsmanna að fylgjast með þegar haustið knýr dyra í hrauninu. Ljósm. James Einar Becker. Brún, grá og græn tunna. Teikning: Íslenska gámafélagið. Þriggja tunnu kerfi í Dölum á næsta ári Ákvörðun tekin um að klukkunni verði ekki breytt Létu rok og rigningu ekki á sig fá

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.