Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 27 Vísnahorn Sumarið og reyndar árið 1882 var eitt það versta sem heimildir eru um á Íslandi í seinni tíð og í Öldinni sem leið er þess getið við árið 1882 að þá hafi beinlínis fallið á svæðinu milli Gilsfjarð- ar og Skarðsheiðar 136 nautgripir, 26 þús- und fjár, 16.400 unglömb og 1.300 hross. Er þá ótalin sú fækkun sem varð vegna heyskap- arleysis og er talið að á þessu ári hafi sauðfé landsmanna fækkað um þriðjung. Sem dæmi um sprettuna má nefna að það hey sem náðist var svo smágert að það tolldi ekki í böndum og varð að reiðast heim í pokum. Ofaná veður- farsleg harðindi geisuðu þá mislingar og tóku bæði drjúgan toll í mannslífum auk þess sem eftirlifendur voru illa í stakk búnir að standa í erfiðisvinnu nýstaðnir upp úr veikindum og var þetta sumar lengi kallað mislingasumar- ið. Ekki var ástandið betra í Skagafirðinum og á Gilsbakka á Kjálka lá allt heimilisfólkið rúmfast en Jón bóndi einn á fótum. Þó sárlas- inn en reyndi af bestu getu að hjálpa heimilis- fólki sínu. Einhverjar innantökur og melting- artruflanir grasseruðu líka og bættu ekki um ástandið. Stundum er talað um Lækjar Katr- ínu þá er hægðir gerast liprar og og ákafar og er ekki betri krankleiki en hver annar: Nú er aukvisum ekki rótt í þessu herbergi, mislinga þar eð sveimar sótt sigrar hún heilbrigði. Lækjar Katrín með þor og þrótt þrengir að mannkyni. Drulla menn bæði dag og nótt. -Dæmalaust helvíti. Haustið nálgast okkur nú allavega þó trú- lega verði það í meira lagi frábrugðið öðrum haustum miðað við allar aðstæður í þjóðfélag- inu en Ingólfur Ómar yrkir: Fölva slær á fjallahring fölna gróðurreitir. mosabreiðu laut og lyng litadýrðin skreytir. Falla lauf og fölnar reyr flögra í hringi þrestir. vankaðir nú virðast þeir vel af berjum hresstir. Stundum verður manni á að velta fyrir sér hver yrðu viðbrögð manna sem kæmu skyndi- lega inn í nútímann frá því fyrir svona 150 árum eða svo. Hætt er við að þeim kæmi all- margt undarlega fyrir sjónir. Gísli Ásgeirs- son velti fyrir sér hvernig Bólu Hjálmar hefði brugðist við að koma í Kringluna og sjá þar rúllustigann og fleira: Mér er ekki greitt um gang geng þó búða á milli hefi þetta færst í fang fíla ekki skrum og prang en strigapokann stirðlega þó fylli. Hér er nú mín hinsta búð horfi ég fram á stiga upp hann ber mig, allt að súð undramáttur hefur knúð en álagið mun eflaust rúllu sliga. Lengi hefur það verið siður okkar Íslend- inga að hnýta ósparlega í þá sem eru okk- ur andsnúnir í pólitík og þá ekki bregða því betra að nauðsynjalausu. Jón pálmason orti um Framsóknarmenn: Framsókn ýtir fleyi á mar fegrar grýtinguna flibbar hvítir fela þar fleira en skítmennskuna. Fyrir þeirra hönd svaraði síðan Valdimar Benónýsson: Svart á hvítu sýnir Pá svo ég hlýt að muna: Furðu nýtinn er hann á íhalds skítmennskuna. Ein íþrótt hagyrðinga er svokallaður Slitru- háttur en þá eru orð slitin í sundur og atkvæð- um endurraðað í þeim tilgangi að ríma, finna ljóðstafi eða búa til orðaleiki. Þegar Sigurður Ingi bar hærra hlut gagnvart Sigmundi Dav- íð í formannsslag í Framsóknarflokknum árið 2016 orti Helgi Ingólfsson: Sýtir stjórnar- sína -háttu, Sig- mun- láta hverfa -dur. Háði bar- og harða -áttu, hafði Sigur- góðan -ður. Sannarlega er pólitíkin ekki betri en aðrar tíkur nema síður sé. Óvíst líka hvað kærleik- urinn milli frammámannanna ristir djúpt þó allt sé kyrrt og fellt á yfirborðinu. Um einn ónafngreindan stjórnmálamann orti Onni á Kjörseyri: Beitti mælsku mjúkum hreim með því ýmsa blekkt’ann. Elskaður af öllum þeim sem ekki mikið þekkt’ann. Það hafa svosem fleiri en stjórnmálamenn verið elskaðir um tíma en síðan dalað nokk- uð í vinsældum og er þá skemmst að minnast blessaðra útrásarvíkinganna okkar sem var um tíma nánast blandað inn í trúarjátninguna en það tók nú af enda orti Jón Ingvar: Meðan okkar þjóðarþing þarf að halda á lausnum enginn grætur auðkýfing, einan sér á hausnum. Laxveiðin virðist hafa verið með dræm- ara móti í sumar. Allavega hér vestanlands þó blessuðum möðkunum hafi verið óspart drekkt þeim til dýrðar. Ingibjörg Guðmunds- dóttir frá Berghyl í Fljótum orti þetta erfiljóð um þá sem oftast hafa fórnað lífi sínu fyrir laxa og laxveiðimenn: Laxinn sér leikur á grynning - það lygnir í nótt eftir spánni - blessuð sé maðkanna minning sem mennirnir drekktu í ánni. Veiðifélög eru gagnmerkar stofnanir og að sjálfsögðu þurfa þau að halda fundi öðru hvoru eins og tíðkanlegt er. Fundargerðir eru og skrifaðar og jafnan valdir sem fundarritar- ar orðhagir og pennafærir menn í besta lagi. Eftir lestur á fundargerð veiðifélags nokkurs orti Jakob á Varmalæk: Fundur var haldinn og hjalað lengi um hæng og gálu. Hrifningu vakti og hrærði strengi í hvers manns sálu fundargerðin á gullaldarmáli góðu og þjálu. - Helst mætti ætla að hún væri skráð - af höfundi Njálu. Þegar séra Elínborg var nýkomin til starfa sem sálnahirðir í Stafholti varð henni það á vegna ókunnugleika að leggja í heimildarleysi net í Norðurá. Guðmundur á Skálpastöðum minntist þá þess þegar félagi Jesú var að telja fiskimennina við Genesaretvatn á að slást í för með sér: Postulans Péturs ráð prestinum hlýðir enn. Laxinn er bönnuð bráð, bara má veiða menn. Misjafnt er hvernig það fer í menn þegar hárum fer að fækka. Sumir láta sér á sama standa en aðrir hafa þungar áhyggjur og líða sálarkvalir miklar. Um skallamyndun sína orti Guðmundur Böðvarsson: Alltaf skallinn eykst með hverjum degi. Nú er hann kominn norður á haus og næst verður hann endalaus. Ætli nú sé ekki tími til að fara að ljúka þessu og mætti þar til nota þennan fyrripart eftir Kristján frá Djúpalæk: Himinn blánar öðrum yfir, alltaf gránar minn. Heiðrekur Guðmundsson botnaði: Annan smánar allt sem lifir, eltir lánið hinn. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Blessuð sé maðkanna minning - sem mennirnir drekktu í ánni Sólsetur við Skorradalsvatn er oft ægifagurt sumarlangt. Fólk ger- ir sér margt til dundurs eins og að veiða á stöng. Vegagerðin er á lokastigi frá Vatnsenda inn fyr- ir Dagverðarnes. Mikið í veg- inn lagt eins og það hafi farið inn 2+1 og 2+2 verklýsing enda mik- il umferð um fagran dal. Skógur- inn í Hvammsklifinu hefði mátt og má enn fá betri frágang. Veg- urinn gæti verið varaflugvöllur í Hvammshlíðinni í stað Stóra Kropps. Bíltúr og ganga um inn- dalinn innan við Fitjar og yfir að Vatnshorni er liðin tíð, lúpínan hefur endanlega fyllt dalinn og kaffært berjalandið og íslenskan gróður og gönguleiðir í fagurri náttúru, mjög sorglegt í annars einstakri náttúru. Vatnsvesenið virðist fylgja Andakílsárvirkjun, endalaus breytileg vatnshæð hef- ur slæm áhrif á lífríkið. Áður ið- aði fjöruborðið af síli nú er það allt horfið. Hreppsnefnd Skorra- dalshrepps er búin að vera mót- fallin virkjuninni í 60 ár en ekkert breytist til betri vegar í vatnsbú- skap. Höf. er Skordælingur til 32 ára. pS: Ég hafði ekki löngun til að taka mynd af lúpínu frumskóginum í Vatnshorni. Þingvallavatn er alltaf með sömu vatnshæð með sínar þrjár stórvirkjanir. Skorradalsvatn með sína litlu og óvinsælu virkjun hleypur upp og niður um allt að einn metra þannig að seiðin vita ekki hvort þau eru að koma eða fara. Sumarannáll úr Skorradal 2020 Veitt í kvöldhúminu. Frekar druslulegt í Hvammsklifi. Þessi dugði vel til verksins enda hokinn af reynslu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.