Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 25 Endurvinnslan – markaður er heiti á viðburði sem haldinn var í Sam- komuhúsi Grundarfjarðar um liðna helgi. Þar gat fólk leigt bása og boðið fatnað sem legið hafði í geymslum manna engum til gagns. Verði var stillt í hóf og voru sum- ir að gefa varning á meðan aðr- ir létu ágóðann renna til góðgerð- armála. Rut Rúnarsdóttir er for- sprakki markaðarins en hún sat sjálf uppi með mikið af barnafötum sem ekki var hægt að nota lengur. Um- hverfissjónarmið ráða för en að- spurð segist Rut vilja leggja sitt af mörkum í að endurvinna og end- urnýta ýmsan varning. „Það sem liggur óhreyft í geymslum er eng- um til gagns en gæti nýst öðrum,“ segir Rut og bætir við að þetta sé ekki gert til að stækka bankabókina en frekar til að sporna við að nýti- legum fötum sé hent með tilheyr- andi mengun enda er verðið á vör- unum þarna frekar hóflegt. Vonir standa til að halda þennan markað á tveggja mánaða fresti og er öllum frjálst að leigja pláss. Básaleigan er ekki dýr en markaðurinn er í sam- starfi við Grundarfjarðarbæ sem leggur til húsnæði enda smellpass- ar þessi viðburður við umhverfis- stefnu bæjarins. tfk Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem mun vinna reglulegar greiningar á efnahagsáhrifum val- kosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Bæði verða metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til að taka við sér að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá. Vart þarf að taka fram að Co- vid-19 faraldurinn og viðbrögð við honum hafa haft djúpstæð áhrif á efnahagslífið frá því snemma á þessu ári. Stjórnvöld hafa beitt sér- stökum úrræðum á landamærum til að takmarka útbreiðslu sjúk- dómsins, meðal annars með kröf- um um sóttkví og skimanir. Slík úr- ræði hafa víðtæk efnahagsleg áhrif. „Í ljósi þess að áhrifa faraldursins mun gæta a.m.k. næstu mánuði og að hann er síbreytilegur, bæði hér- lendis og erlendis, þurfa viðbrögð stjórnvalda að vera í stöðugri end- urskoðun. Mikilvægt er að unnin verði frekari greining á efnhagsleg- um kostnaði og ábata ólíkra sótt- varnaraðgerða og þeim valkostum sem helst kunna að koma til álita,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Starfshópurinn mun skila ráð- herra reglulegum greinigum á efnahagsáhrifum valkosta í sótt- varnarmálum. Hópinn skipa: Már Guðmundsson fyrrverandi seðla- bankastjóri, tómas Brynjólfsson skrifstofustjóri skrifstofu efnahags- mála í fjármála- og efnahagsráðu- neytinu og Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins. Benedikt Árna- son, skrifstofustjóri í forsætisráðu- neytinu, mun starfa með hópnum og Analytica ehf. verður hópnum til aðstoðar. kgk/ Ljósm. úr safni/ glh. „Finnst þér sama og mér?“ er nýtt lag sem hljómsveitin Meg- instreymi sendi frá sér fyr- ir helgina, ásamt myndbandi. Hlýða má á lagið á Spotify og öllum helstu streymisveitum og myndbandið má sjá á Youtube, auk þess sem það er aðgengilegt á Instagram- og Facebook-síðu hljómsveitarinnar. Hafa viðtök- urnar verið góðar, en horft var yfir 3000 sinnum á myndbandið við lagið fyrsta sólarhringinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitinni. Meginstreymi hefur undan- farin ár leikið á dansleikjum víðs vegar um landið en hefur nýtt skemmtanabannið undanfarið til að búa til nýja tónlist. „Finnst þér sama og mér?“ er fyrsta lagið sem tekið er upp í nýju hljóðveri sveit- arinnar, Stúdíó Straumi, en myndbandið er jafnframt tekið upp þar. Lagið er eftir Róbert Aron Björns- son og Jakob Grétar Sig- urðsson, en textann samdi Óðinn Arason. „Sérstök gestasöngkona í laginu er Unnur Birna Björnsdóttir, söngkona og fiðluleikari, en einnig komu fleiri að- stoðarmenn að upptöku lagsins eins og flamenco- gítarleikarinn Reynir Del Norte og gongleikarinn Atli Már Björnsson,“ seg- ir í tilkynningu frá hljóm- sveitinni. kgk Existentíalismi eða tilvistarstefn- an var áhrifamikil heimspekistefna upp úr heimstyrjöldinni og hafði víðtæk áhrif á menningu og hug- vísindi um heim allan. Kirkegaard, Nietzsche, Sartre og Dostojevs- kíj voru taldir til mikilvægra leik- manna (MVp´s) á þeim leikvelli. Hugmyndin um sjálfræði er stór þáttur í stefnunni, þó var Nietzsche einn af þeim sem dró í efa mögu- leikann á skynsamlegu sjálfræði en það er efni í annan pistil. Í stuttu máli fjallar þessi stefna um að hin traustu bönd mannsins við Guð og náttúru séu rofin og maðurinn skuli ryðja sína eigin leið. Mað- urinn ber sjálfur ábyrgð á sínum mistökum, hvorki Guð né einhver annar. „Hver er sinnar gæfu smið- ur“ er orðatiltæki sem hnýtir þessa stefnu snyrtilega saman. En eins og fanginn stígur út fyr- ir veggi fangelsisins þá kemur það fyrir að manneskjan upplifi ótta, ótta við allt það frelsi og sjálfræði sem hann var eitt sinn sviptur. Hver skal vera leiðarvísir þessara týndu sála í öllu því frelsi sem sprottið hefur upp líkt og í aldingarðinum Eden, hver segir til um hvað sé rétt og hvað sé rangt o.s.fv? En hvernig er það? Á ég að setja bananaknipp- ið fyrst á vigtina eða leita að þeim fyrst í kerfinu og setja þá svo á vigt- ina? Hvar er Æ-ið á takkaborðinu fyrir sætu kartöfluna? Hvernig raða ég á pokasvæðið án þess að konan í tölvunni fari að kvabba við mig að það sé óvæntur hlutur á poka- svæði? Sjálfsafgreiðslukassarnir í matvörubúðunum hefur breytt því hvernig fólk hagar sér í búðinni, ef- laust hafa þeir haft meiri áhrif en ég geri mér grein fyrir. Eins og leikskólabörn sem bíða í röð eftir að vera smúluð af kenn- aranum eftir að hafa leikið sér í sandkassanum og drullunni áður en þau fara inn í nestisstund biðu viðskiptavinirnir eitt sinn eftir því að röðin kæmi að þeim á kassanum. Áhyggjuleysið í algleymingi þegar vörurnar rúlluðu hægt en örugglega í átt að peysu- klædda starfsmanninum með nafn- spjaldinu. Í huga okkar viðskipta- vina var hann Guð og náttúran holdi klædd. Hann einn veit hvern- ig á að stimpla inn vörunúmerið þegar strikamerkið bregst, hvort það eigi að setja ávextina á vigt- ina fyrir eða eftir vöruleit. Hann einn getur breytt magni dósa. Hjá honum er enginn óvæntur hlutur á pokasvæði. Nú er enginn tími fyrir spjall við kassana ef vel á að ganga við sjálfsafgreiðsluna, hnykkluð enni og einbeitt augu föst í störu á 15“ snertiskjánum einkenna þessa nýju áþján, sjálfs (afgreiðslu) stæði einstaklingsins. Axel Freyr Eiríksson Ferjukoti „Þetta var gaman, fiskurinn veidd- ist í Staðarhólsánni,“ sagði Ingi Stefán Ólafsson en hann skrapp að- eins í Hvolsá og Staðarhólsá í Döl- um en árnar hafa gefið ágætlega í sumar, bæði lax og bleikju. „Þetta var 75 sentimetra lax,“ sagði Ingi Stefán ennfremur. Krossá á Skarðsströnd hefur aðeins verið að lifna seinni hluta veiðitímans og það sama má segja um Fáskrúð í Dölum eftir rólega byrjun þetta sumarið. „Við feng- um fína veiði í Fáskrúð um daginn en aðeins er veitt á flugu í henni,“ sagði veiðimaður sem við hittum í Búðardal fyrir skömmu. En þrátt fyrir að það hafi rignt undanfarið virðist veiðin ekki hafa tekið mik- ið við sér. Haffjarðará hefur reynd- ar gefið vel og er stutt í að þúsund- asti laxinn komi á land, sem er frá- bær veiði. Mikið er af laxi í ánni og trónir áin á toppi vestlensku ánna. Norðurá og Þverá hafa alls ekki staðið undir væntingum í sumar, þótt þær hafa bætt sig síðan í fyrra. Norðurá hefur gefið um 840 laxa en Þverá er komin í 830 laxa. Langá á Mýrum hefur gefið 755 laxa. „Við náum sex löxum og þetta var gam- an, töluvert af fiski,“ sagði Jógvan Hansen er hann var á Langárbökk- um eins og oft áður í sumar. Þar kann hann best við sig í veiðinni. Hítaráin hefur verið góð í sumar og eru komnir 455 laxar á land, sem er mjög gott. En sumarið er ekki búið. Veiði- menn eru að reyna ennþá, víða er mikið eftir af veiðitímanum. Reið- ir hængar eru líklegir til að ráðst á agnið núna. Og þeir geta verið vænir. gb Benedikt Einarsson með lax úr Þverá. Ljósm. Aðalsteinn Pétursson. Rigning virðist lítið hafa hleypt lífi í veiðina Ingi Stefán Ólafsson með flottan lax í Staðarhólsá í Dölum. Greina efnahagsáhrif sóttvarna Rut Rúnarsdóttir við söluborðið sitt síðasta mánudag. Endurnýting og umhverfissjónarmið í Grundarfirði Nýtt lag með Meginstreymi Pistiill - Axel Freyr Eiríksson Óvæntur hlutur á pokasvæði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.