Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 20206
Svikapóstar í
nafni Póstsins
LANDIÐ: Íslandspóstur var-
ar viðskiptavini sína við svika-
póstum sem undanfarið hafa
verið sendir út þar sem reynt
er að komast yfir greiðslukorta-
upplýsingar fólks. Í tilkynn-
ingu á vef Íslandspósts kemur
fram að póstarnir séu ekki frá
fyrirtækinu. Þau sem eigi von á
sendingu geti greitt fyrir hana
á öruggri síðu á vef fyrirtækis-
ins. „pósturinn varar eindregið
við því að smella á hlekki sem
fylgja þessum póstum og undir
engum kringumstæðum ætti að
gefa upp kortaupplýsingar eða
aðrar persónulegar upplýsing-
ar,“ segir í tilkynningunni. -mm
Aðalfundur kjör-
dæmisráðs
NV-KJÖRD: „Kjördæmis-
ráð Samfylkingarinnar í Norð-
vesturkjördæmi boðar til aðal-
fundar sunnudaginn 13. sept-
ember kl. 12-16 í Menntaskóla
Borgarfjarðar. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf. Guð-
jón Brjánsson, þingmaður kjör-
dæmisins, og Logi Einarsson,
formaður Samfylkingarinnar,
ávarpa fundinn og taka þátt í
umræðum,“ segir í tilkynningu.
„Þeir félagsmenn sem hafa hug
á að bjóða sig fram eða til-
nefna aðila í stjórn, eða til ann-
arra embætta sem kosið verður
um, hafi samband við Ólaf Inga
Guðmundsson, formann upp-
stillingarnefndar fyrir 10. sept-
ember nk. í netfangið olafuringi-
gudmundsson@hotmail.com
eða í síma 847-7700. tillög-
ur að lagabreytingum þurfa að
berast undirritaðri fyrir 4. sept-
ember n.k. í netfangið isabrynd-
is@gmail.com. Stjórn kjördæm-
isráðs hvetur alla félagsmenn til
að mæta á aðalfundinn, ræða
stöðuna í stjórnmálunum í dag
og taka þátt í undirbúningi og
umræðum vegna alþingiskosn-
inga á næsta ári,“ segir í tilkynn-
ingu frá Bryndísi Friðgeirsdótt-
ur formanni kjördæmisráðs.
-fréttatilk.
Íslendingur vann
tæpar 96 milljónir
LOTTÓ: Íslendingur hafði
heldur betur heppnina með sér
á föstudag þegar dregið var í
EuroJackpot lottóinu. Um 2.
vinning var að ræða og fá vinn-
ingshafarnir rúmar 95,6 millj-
ónir króna hver. Miðinn var
keyptur hjá N1 á Ísafirði en
sjö miðahafar skiptu vinning-
inum með sér, hinir miðarn-
ir voru keyptir í Litháen, tveir
í Finnlandi og þrír í Þýskalandi.
Þetta er í fjórða sinn á innan við
tveimur árum sem annar vinn-
ingur í EuroJackpot kemur til
Íslands. Fyrsti vinningur gekk
einnig út en það var stálheppinn
Finni sem hlaut hann, fær tæp-
lega 5,7 milljarða króna í sinn
hlut. -mm
Sluppu vel frá
bílveltu
SNÆFELLSNES: Bílvelta
varð aðfararnótt laugardags
skammt frá Dritvík á Snæ-
fellsnesi. Viðbragðsaðilar voru
kallaðir til sem og þyrla Land-
helgisgæslunnar sem flutti tvo
slasaða úr bílnum á Landspít-
alann í Reykjavík. Lögregla
segir meiðsli þeirra ekki hafa
reynst jafn alvarleg og talið var
í fyrstu og eru báðir útskrifað-
ir af spítala. tildrög slyssins
eru til rannsóknar.
-kgk/ Ljósm. af
Sviðsstjóri
segir upp
BORGARBYGGÐ: Ragn-
ar Frank Kristjánsson hefur
sagt upp starfi sínu sem sviðs-
stjóri umhverfis- og skipu-
lagssviðs Borgarbyggðar. til-
kynnti hann um uppsögn sína
mánudaginn 24. ágúst síðast-
liðinn. Þetta staðfesti Þór-
dís Sif Sigurðardóttir, sveitar-
stjóri Borgarbyggðar, í samtali
við Skessuhorn, á fimmtudag.
Hún sagði að ákvörðun Ragn-
ars hefði verið kynnt formlega
á fundi byggðarráðs á fimmtu-
dagsmorgun, þar sem honum
voru þökkuð vel unnin störf
og óskað velfarnaðar. tíma-
setning starfsloka hafði ekki
verið ákveðin, að sögn Þórdís-
ar. -kgk
Síðdegis á sunnudaginn var boð-
að til athafnar við Biskupsbrekku
á Uxahryggjum. tilefnið var að
þann dag voru rétt 300 ár liðin
frá því Jón Vídalín Skálholtsbisk-
up lést þar á ferðalagi. Hann var þá
ásamt fylgdarliði á leið til jarðarfar-
ar mágs síns, séra Þórðar Jónssonar
á Staðastað. Nýjum rammgerðum
sex metra háum krossi úr málm-
furu hefur nú verið komið upp við
brekkuna en auk þess minnisvarða
um Jón Vídalín sem páll Guð-
mundsson listamaður á Húsafelli
hjón í stein af Kaldadal. Forgöngu
um gerð verksins hafði Skálholts-
félagið með fjárstuðningi Vinnslu-
stöðvarinnar í Vestmannaeyjum og
fleiri aðila. Fram kom að Jón Ví-
dalín hafði verið á nokkrum vetr-
arvertíðum í Eyjum á sínum tíma
og lengi átti Vinnslustöðin togara
sem bar nafn hans og var fyrrum
skipstjóri á skipinu viðstaddur sem
fulltrúi styrktaraðilans.
Það var séra Kristján Björns-
son, vígslubiskup í Skálholti, sem
stýrði athöfninni, en í henni tóku
auk hans þátt kórfólk, fleiri prest-
ar auk Agnesar M Sigurðardóttur
biskups. páll á Húsafelli hafði með-
ferðis litla sérsmíðaða steinhörpu
og flutti hann af þessu tilefni frum-
samið tónverk við hendingu sem
sagnir herma að sé eftir Vídalín og
ort í hans hinstu ferð og er meitlað
á skjöld á minnismerkinu:
Herra Guð í himnasal,
haltu mér við trúna.
Kvíði ég fyrir Kaldadal,
kvelda tekur núna.
Nýr kross var að endingu blessað-
ur og minningarsteinn um meistara
Jón biskup afhjúpaður en að lokið
sungið við rætur Biskupsbrekku.
mm
Páll við listaverkið af Jóni Vídalín.
Minnisvarði og kross
í Biskupsbrekku
Krossinn blessaður og listaverkið vígt.
Páll Guðmundsson lét sig ekki
muna um að frumflytja nýtt
tónverk við hendingu úr kvæði
Jóns Vídalíns á steinhörpu sem sér-
staklega var gerð fyrir þetta tilefni.