Skessuhorn - 02.09.2020, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 11
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Auglýsing um skipulagsmál
á Akranesi
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Akraness samþykkti 20. júlí s.l að
auglýsa eftirtaldar skipulagstillögur í samræmi við 31. og 41. grein
skipulagslaga nr. 123/2010.:
Breyting á aðalskipulagi Akraness 2005-2017
Breytingin felst m.a. í stækkun Skógarhverfis, þannig að íbúðar-
svæði stækkar til norðurs. Íþróttasvæði við Skógarhverfi er breytt
í útivistarsvæði. Tjaldsvæði við Garðalund verður útivistarsvæði.
Garðalundur er minnkaður og miðast við gömlu skógræktar-
mörkin. Gert er ráð fyrir nýrri tengingu við Akrafjallsveg (þjóðveg)
norðan Skógarhverfis. Svæði fyrir verslun og þjónustu (hótelreitur)
er fellt út og verður útivistarsvæði. Stígakerfi er lagað að breyttum
mörkum Skógarhverfis.
Deiliskipulag Skógarhverfis, áfangi 3A
Skipulagið markast af stofnanalóð (skólalóð) að Asparskógum 25
til vesturs, raðhúsalóðum við Álfalund, Fjólulund og Akralund til
suðurs og óbyggðu svæði (framtíðarbyggð) til norðurs. Deiliskipu-
lagstillagan gerir m.a. ráð fyrir þéttri byggð einbýlis- og raðhúsa
á einni til tveim hæðum. Gert er ráð fyrir svæði með vatnsfarvegi
sem er liður í ofanvatnslausnum og nýtist sem útivistarsvæði.
Deiliskipulag Garðalundar - Lækjarbotna
Deiliskipulagssvæðið tekur yfir Garðalund, skógræktarsvæði Skóg-
ræktarfélags Akraness (Þverkelda og Lækjarbotnar) ásamt skóg-
ræktarsvæði í Klapparholti og liggur að mörkum Skógahverfis. Í
skipulaginu er m.a. gerð grein fyrir afmörkun skógræktar og op-
inna svæða, aðkomu ökutækja, bílastæðum, stígakerfi, tengslum
við aðliggjandi svæði, leiksvæðum, matjurtargörðum, núverandi
og fyrirhuguðum byggingum. Við gildistöku nýs deiliskipulags
verður deiliskipulag Garðalundar frá 2010 fellt úr gildi.
Tillögurnar verða til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að
Stillholti 16-18, Akranesi, og á heimasíðu Akraneskaupstaðar
www.akranes.is frá og með 4. september til og með 20. október
2020.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar til 20.
október 2020. Skila skal skriflegum athugasemdum í þjónustuver
Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@
akranes.is.
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Skógar-
hverfis áfangi 3A sem birtist í Skessuhorni 26. ágúst og Póstinum
27. ágúst 2020 fellur úr gildi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
Skipulagsstofnun óskaði á liðnu
sumri eftir umsögn Hvalfjarðar-
sveitar vegna stækkunar eggjabús
Stjörnueggja hf. að Vallá á Kjalar-
nesi. til stendur að fjölga fuglum
á búinu úr 50 þúsund í 95 þúsund
fugla. Vel að merkja er eggjabúið
og öll mannvirki sem framleiðsl-
una hýsa utan Hvalfjarðarsveitar.
Ástæða þess að leitað er umsagnar
sveitarfélagsins er sú að fyrirtækið
hyggst dreifa hænsnaskít sem fell-
ur til á búinu í landi Geldingaár í
Leirársveit. Áformað er að dreifa
þar 3.500 tonnum á ári, eða tæp-
um tíu tonnum af hænsnaskít á dag,
að því er fram kemur í umfjöllun
umhverfis-, skipulags- og náttúru-
verndarnefndar Hvalfjarðarsveitar
um málið 18. ágúst síðastliðinn.
Nefndin gerði athugasemdir við
tillögu að matsáætlun vegna stækk-
unar eggjabúsins, sem sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar staðfesti á fundi
sínum þriðjudaginn 25. ágúst. Í
umfjöllun nefndarinnar er bent á
að í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveit-
ar séu merkt inn þónokkur vatns-
ból og brunnsvæði í landi Geld-
ingaár, þar sem fyrirhugað er að
dreifa hænsnaskítnum. Stór hluti
svæðisins sé einnig skilgreindur
sem vatnsverndarsvæði og nefndin
minnir á að óheimilt sé að dreifa
búfjáráburði á slíkum svæðum.
Lagði nefndin til að fenginn yrði
óháður aðili til að meta hvort hætta
sé á að vatnsbólin í nágrenni dreif-
ingarsvæðisins mengist. Þá væri
mikilvægt að í umfjöllun um áhrif
á yfirborðsvatn í frummatsskýrslu
verði einnig fjallað um áhrif á þessi
vatnsból og vatnsverndarsvæði.
Nefndin segir mikilvægt að um-
fjöllun um lyktarmengun í frum-
matsskýrslu verði ekki aðeins fjallað
aðstæður á Vallá, heldur einnig lykt-
armengun við Geldingaá, þar sem
til standi að dreifa 3.500 tonnum af
hænsnaskít á ári. Þá veltir nefnd-
in því fyrir sér hvort hænsnaskítur
sem dreift verði í landi Geldinga-
ár laði til sín fugla, sem kunni síðan
að dreifa honum víðar um svæðið.
Gera þurfi grein fyrir því og öðr-
um mögulegum smitleiðum í frum-
matsskýrslu.
Enn fremur sé þess ekki getið í
tillögu að matsáætlun yfir hve langt
tímabil sé áformað að dreifa skítn-
um í landi Geldingaár. 3.500 tonn
af hænsnaskít séu tæp 10 tonn á dag
og koma þurfi fram hvernig flutn-
ingi á svo miklu magni verði háttað
og mögulegum áhrifum flutninga á
umferð og umferðaröryggi í Hval-
fjarðarsveit.
kgk
Verðlaunin Framúrskarandi ungir
Íslendingar eru veitt árlega af JCI
á Íslandi. Fyrst og fremst er um að
ræða hvatningarverðlaun til ungs
fólks sem er að takast á við krefj-
andi og athyglisverð verkefni og ná
góðum árangri. „Markmið verð-
launanna er að verðlaunahafar
hljóti hvatningu til frekari dáða og
vekja athygli á verkum þeirra,“ seg-
ir í tilkynningu frá JCI á Íslandi.
Óskað er eftir tilnefningum til
verðlaunna. tilnefnt er í tíu mis-
munandi flokkum, en þeir eru:
Störf á sviði viðskipta, frum-
kvöðla og/eða hagfræði
Störf á sviði stjórnmála, ríkismála
og/eða lögfræði
Leiðtogar/afrek á sviði mennta-
mála
Störf /afrek á sviði menningar
Störf á sviði siðferðis og/eða um-
hverfismála
Framlag til barna, heimsfriðar
og/eða mannréttinda
Störf á sviði mannúðar og/eða
sjálfboðaliðamála
Störf á sviði tækni og/eða vís-
inda
Einstaklingssigrar og/eða afrek
Störf /uppgötvanir á sviði læknis-
fræði
Hægt er að tilnefna á heimasíðu
verkefnisins, www.framurskarandi.
is. Skilyrði fyrir tilnefningu er að
einstaklingar hafi með sýnilegum
hætti skarað fram úr, verið góðar
fyrirmyndir og gefið af sér til sam-
félagsins. Verðlaunin verða veitt í
október af forseta Íslands, sem er
verndari verkefnisins, en opið er
fyrir tilnefningar til 13. september
næstkomandi. kgk
Hyggjast dreifa hænsnaskít í
landi Geldingaár
Hvalfjarðarsveit gerir athugasemdir vegna
fyrirhugaðrar stækkunar eggjabús
Hænur. Ljósm. Pexels.com.
STARFSMAÐUR MEÐ
VINNUVÉLARÉTTINDI
Steypustöðin í Borgarnesi leitar að vönum
starfsmanni á vinnuvélar fyrirtækisins.
Óskað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem
er reiðubúinn til að takast á við ölbreytt verkefni
tengdum stjórnun lyftara og annarra vinnuvéla.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Starð felst í stjórnun vinnuvéla og þjónustu við
framleiðsludeildir fyrirtækisins í Borgarnesi.
Umósknir sendist á atvinna@steypustodin.is - Frekari upplýsingar um starð veitir Reynir Magnússon í síma 860 9014.
Steypustöðin ehf | Malarhöfða 10 | 110 Reykjavík | steypustodin.is | s: 4 400 400
• Vinnuvélaréttindi frá frá Vinnueftirliti ríkisins
• Stundvísi
• Reynsla af sambærilegum störfum kostur
Hæfniskröfur
Leita að framúrskarandi
ungum Íslendingum
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is