Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 13
ins í sumar og við höfum notið góðs af því
á Hamri,“ segir Guðveig.
Þurftu að segja upp fólki
Aftur á móti segir Guðveig að nú með
haustinu sé komin upp afar erfið staða, þar
sem útlitið sé ekki bjart fyrir komandi vet-
ur. „Við þurftum að taka þá erfiðu ákvörð-
un í morgun [þriðjudag; innsk. blms.] að
segja upp stórum hluta starfsfólksins, eða
um 20 manns. Við gerum ráð fyrir því í
vetur að hafa opið fyrir fundi og ráðstefn-
ur, árshátíðir, hópa og slíkt, ásamt því að
reyna að hafa opið um helgar. En það er
óljóst hvernig almennri opnun verður
háttað á virkum dögum. Þess vegna þurft-
um við að segja upp fólki. Það var í raun-
inni varúðarráðstöfun hjá okkur, því það er
mikil óvissa sem blasir við,“ segir Guðveig.
„Það er alveg grátlegt að þurfa að sjá á eft-
ir frábæru starfsfólki. Það er alltaf þyngra
en tárum taki að þurfa að segja upp góðu
fólki, en þetta var ákvörðun sem við neydd-
umst til að taka núna, því miður,“ segir hún
og bætir því við að ef staðan breytist muni
þeir sem sagt var upp nú eiga forgang í sín
störf.
„Vonandi fer ástandið
að breytast“
En hvað þarf að gerast til að ástandið breyt-
ist? „Við vonum auðvitað að tveggja metra
reglunni verði aflétt og fjöldatakmarkanir
rýmkaðar. Eins og ég sagði áðan þá viljum
við geta tekið á móti hópum í vetur, en við
þurfum svolítið að aðlaga okkar rekstur því
ástandi sem ríkir hverju sinni. Það er mik-
il óvissa og maður getur eiginlega ekki tek-
ið ákvarðanir langt fram í tímann. Það er
nánast bara vika fyrir viku, það er ekki hægt
að gera nein langtímaplön,“ segir Guðveig.
„En vonandi fer ástandið að breytast svo
við getum ráðið starfsfólkið aftur,“ segir
Guðveig Lind Eyglóardóttir að endingu.
Stay West á Akranesi
og Borgarnesi
Ágætt sumar en
erfiður vetur
framundan
Hjónin Eggert Hjelm Herbertsson og Ingibjörg
Valdimarsdóttir reka gistiþjónustu á Akranesi og í
Borgarnesi undir merkjum Stay West. Eggert seg-
ir í samtali við Skessuhorn að undangengið sumar
hafi verið betra en þau þorðu að vona. Hins veg-
ar blasi við erfiður vetur, en þrátt fyrir það stefna
þau á að halda öllum sínum gististöðum opn-
um á vetri komanda. „Sumarið var bara ágætt og
mun betra en maður þorði að vona um mánaða-
mót mars og apríl. Apríl og maí voru hræðilegir,
lítið sem ekkert að gera, mikið um afbókanir og
nánast einu verkefnin voru að svara afbókunar-
póstum. En svo fór það að lagast þegar komið var
fram í júní og í bæði júlí og ágúst var bara ágæt-
is gangur og talsvert meira en maður átti von á,“
segir Eggert en bætir því við að þeim tíma sé um
það bil að ljúka um þessar mundir. „Síðustu er-
lendu ferðamennirnir eru á vappi um landið þessa
dagana og þetta er að fasa út. Ef ekkert breytist
í þessum faraldri þá verður veturinn erfiður, að
lágmarki fram að áramótum. Á meðan verið er að
beita jafn ströngum aðgerðum á landamærunum
þá verður lítið sem ekkert að gera í gistiþjónustu.
túristar munu ekki koma í neinum mæli miðað
við þær aðgerðir sem nú eru í gangi, án þess að ég
sé að hallmæla þeim sem slíkum. Það er bara eins
og það er, en þær gera það að verkum að ferða-
menn koma ekki svo neinu nemur,“ segir hann.
Mismunandi staða
Undir hatti Stay West er rekið hostel í Borg-
arnesi og á Akranesi, sem og gistiheimili á
Byggingarverkfræðingur /
byggingartæknifræðingur
Starfið felur í sér að sinna fjölbreyttum hönnunar-
verkefnum á breiðu sviði mannvirkjagerðar, eftirliti
með framkvæmdum, landmælingar o.fl.
• Byggingarverkfræðingur /byggingartæknifræðingur
• Reynsla af hönnun, fjölbreytileiki í hönnunarverkefnum
mikill kostur
• Öflugur liðsmaður í verkefnaöflun
• Góð kunnátta í teikniforritum t.d. AutoCad, Revit eða
Civil 3D
• Reynsla af framkvæmdaeftirliti er æskileg
• Þekking á BIM aðferðarfræðinni og notkun líkana við
hönnun er æskileg
Rafkerfahönnuður
Starfið felur í sér hönnun rafkerfa fyrir ýmsar gerðir
mannvirkja, ráðgjöf og aðstoð við viðhald og
endurnýjun rafkerfa.
• Rafmagnstæknifræðingur eða rafiðnfræðingur
• Öflugur liðsmaður í verkefnaöflun
• Góð kunnátta í AutoCad og Revit er kostur
• Þekking á BIM aðferðarfræðinni og notkun líkana við
hönnun er æskileg
Verkis er öflugt og framsækið ráð-
gjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks
þjónustu á öllum sviðum verkfræði.
Yfir 300 manns starfa hjá fyrirtækinu
að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi
og erlendis. Unnið er með breiðum
hópi viðskiptavina s.s. opinberum
fyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum
og einkaaðilum.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að
sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með
13. september 2020.
Sótt er um á umsokn.verkis.is
Ofanleiti 2 I verkis@verkis.is I 422 8000
Nánari upplýsingar veita
Anna María Þráinsdóttir útibússtjóri, anmt@verkis.is
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Byggingarverkfræðingur/byggingartæknifræðingur og rafkerfahönnuður
Vegna aukinna verkefna viljum við bæta við okkur öflugu starfsfólki á Vesturlandi. Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum sem hafa
metnað, sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi og eiga auðvelt með að vinna með öðrum. Mikilvægt er að umsækjendur hafi gott vald á
íslensku og ensku. Starfsstöð getur verið á Akranesi eða í Borgarnesi.
Guðveig Lind Eyglóar-
dóttir, aðstoðarhótel-
stjóri á Icelandair Hótel
Hamri í Borgarnesi.
Ljósm. úr safni/ glh.
Hluti útisvæðisins á Icelandair Hótel Hamri. Ljósm. úr safni/ glh. Framhald á næstu opnu