Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202026
Fyrir tveimur árum var reist 27
metra löng ný brú yfir Norðlinga-
fljót á Arnarvatnsheiði. Frá náttúr-
unnar hendi var brúarstæðið kjörið
því syðri stöpull brúarinnar hvílir á
hraunkanti en hærri stöpull steyptur
að norðanverðu. Brú á þessum stað
hafði lengi verið í undirbúningi en
erfiðlega gekk um árabil að koma
brúargerðinni á fjárlög. Þó voru
ýmsir sem beittu sér fyrir því, en
auk heimamanna má tvímælalaust
nefna málafylgju Skúla Alexand-
ersson, fv. alþingismann og ferða-
frömuðar á Hellissandi, í því sam-
bandi. Brúin gerir það kleift að nú
er hægt að aka á jepplingum og vel
búnum bílum yfir Arnarvatnsheiði,
milli Borgarfjarðar og Miðfjarðar,
á þokkalegum vegi. Oft hefur það
gerst að ferðafólk og veiðimenn
hafi verið hætt komnir í Norð-
lingafljóti, bæði vegna krapa og íss,
en ekki síst vegna þess að skyndi-
lega getur vaxið hratt í fljótinu eft-
ir heita daga. Nú hefur því orðið til
kærkomin hringleið fyrir þá sem
vilja kynnast landinu betur. Þá má
sömuleiðis gera ráð fyrir að ásókn í
fengsæl silungsveiðivötn á heiðinni
muni aukast með öruggari veg-
tengingu.
Undirritaður fór akandi ásamt
nokkrum úr fjölskyldunni yfir Arn-
arvatnsheiði síðastliðinn fimmtu-
dag. Veður var gott en fremur
lágskýjað þannig að mikilfengleg
fjallasýn naut sín ekki nema að tak-
mörkuðu leyti. Ekið er sem leið
liggur upp vegslóða sem bræðurn-
ir Snorri og Jón Kristleifssynir frá
Sturlu-Reykjum lögðu um Hall-
mundarhraun fyrir um fjórum ára-
tugum. Sá vegur liggur framhjá
Surtshelli, sunnan við Norðlinga-
fljót í landi Kalmanstungu. Í stað
þess að áður þurfti að velja annað
hvort Úlfsvatnsvað eða Helluvað til
að komast yfir fljótið, er ekið yfir
nýju brúna skammt ofan við Hellu-
vað og þaðan áleiðis upp Arnar-
vatnshæðir. Á því svæði er heið-
in lítt gróin og landslagið fremur
hrjóstrugt á köflum. Vegurinn er
lagður yfir mela og urðhæðir, en er
þó ágætlega fær nema fyrir minnstu
bíla. Á hæðunum er víðsýnt til vest-
urs yfir hinn mikla fjölda vatna,
en í austur- og suðurátt blasir við
norðurendi hins 70 kílómetra langa
Langjökull en Eiríksjökull er í for-
grunni. Austur við Arnarvatn stóra
er ekið í gegnum hlið á merkjagirð-
ingunni sem skilur að sýslurnar og
afrétt Borgfirðinga og Húnvetn-
inga. Ekið er meðfram Arnarvatni
stóra og niður meðfram fjölmörg-
um litlum vötnum og loks samhliða
Austurá þaðan sem hluti Miðfjarð-
arár á upptök sín. Komið er niður í
Austurárdal og ekið þaðan um eyði-
byggð stuttan spöl áður en komið
er niður í Miðfjörð.
Ekki var um formlega vígsluat-
höfn að ræða þegar nýja brúin yfir
Norðlingafljót var tekin í notk-
un fyrir tæpum tveimur árum. Því
hefur lítið farið fyrir umræðu um
þá stórbrotnu leið sem þarna hefur
opnast og tengir saman landshluta.
Óhætt er að mæla með því fyr-
ir áhugasama að gera sér ferð yfir
Arnarvatnsheiði á björtum degi.
Áhugavert er að upplifa hversu
stutt er í raun milli sýslna, ekki síst
nú þegar vegasamband hefur stór-
lega batnað.
mm/ Ljósm. mm & gó Fálkahjón tóku á móti ferðalöngum þegar komið var niður í Austurárdal.
Ný hringleið hefur opnast yfir Arnarvatnsheiði
Á Arnarvatnsheiði. Nýja brúin yfir Norðlingafljót er á hentugu brúarstæði frá náttúrunnar hendi í Hallmundarhrauni.
Myndrænt rofabarð í Hæðarsporðinum. Tóftarbrot gamla skálans við Álftakrók sem var í notkun til 1955.
Skilti á heiðinni við þann stað þar sem flugvöllur var lagður á Svartárhæð, melinn
efst á Arnarvatnshæðum.
Horft í átt að gangnamannaskálanum í Álftakrók.